Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNl 2008
SUÐURLAND DV
4
Árni Steinarsson og Eiður Birgisson teiknuðu 800 Bar á hálftíma. Félagarnir eru bjartsýnir:
DRAUMUR SEM RÆTTIST
a iíjíjitiliiiiíiii iiit tt f • : .i
f fi
800 Bar var opnaður 17. maí síð-
astliðinn. Eigendurnir Árni Stein-
arsson og Eiður Birgisson teiknuðu
fyrstu teikningarnar að barnum á
hálftíma við eldhúsborðið heima
og hönnuðu þeir barinn alveg sjálf-
ir. Þeir fengu hugmyndir alstaðar
að og eru þeir mjög ánægðir með
afr aksturinn og telja þetta vera eins
og draumur að rætast. Þeim hefur
verið tekið mjög vel og er barinn
mjög vel sóttur þegar hann er op-
inn. „Okkur langaði að gera eitt-
hvað fyrir bæjarfélagið enda ekki
mikið um skemmtistaði á Selfossi,
eitt kaffihús," sagði Árni.
Barinn var opnaður formlega 17.
maí síðastiiðinn þegar hljómsveitin
Vítamín kom og tryilti lýðinn. í fyrstu
var haldið að loftræstingin væri bil-
uð eða hefði hreinlega gleymst. „Við
erum með fyrsta flokks loftræstingu
en þegar það er mikið af fólki þarf að
opna út og á opnuninni var troðfullt
hús," sagði Árni. Nafnið á barnum
kemur ffá þeim félögum en póst-
númerið á Selfossi er 800 og þaðan
kemur hugmyndin 800 Bar.
Alltaf kemur eitthvað upp á
enda er barinn nýr og peninga-
kassarnir duttu út á meðan hljóm-
sveitin spilaði síðastliðið laugar-
dagskvöld. Árni segir að það hafi
verið stillingaratriði sem búið er að
kippa í lag.
Barinn er í gamla Málningar-
þjónustuhúsinu og höfðu þeir leit-
að að húsnæði í eitt og hálft ár áður
en þeir komu niður á þetta hús-
næði. „Þetta virtist ekki vera rétta
EIGENDURNIR Árni
og Eiður er stoltir af
afrakstrinum.
húsnæðið í fýrstu en í dag gæti ég
ekki hugsað mér betra húsnæði,"
sagði Árni. Þá langaði að breyta
aðeins til og með því bættu þeir við
VlP-herbergi en er það opið öllum
sem leigja borð þar eða allt her-
bergið. „Við erum með púlborð og
núna út júní verður barinn opinn
allan sólarhringinn á meðan ver-
ið er að sýna EM, við munum sýna
alla leikina í beinni," sagði Árni.
Barinn er ekki fullbókaður út sum-
„Þetta virtist ekki vera
rétta húsnæðið í fyrstu
en i dag gæti ég ekki
hugsað mér betra hús-
næði"
arið en búið er að bóka mörg kvöld.
Þetta er forsmekkurinn að því sem
koma skal bætir Eiður við
800 BAR Barinn hefur
notið gífurlegra
vinsælda á stuttum tíma.
BARINN Árni og Eiður
teiknuðu hann sjálfir.
Mikið úrval af nýjum kristal og
postulíni
Handunnar vörurí miklu úrvali, glös, Ijósakrónur, vasar
og margt margt fleira