Peningamál - 01.11.2009, Blaðsíða 53
Peningastefnan og stjórntæki hennar
Markmið og framkvæmd peningastefnunnar
Markmið stefnunnar í peningamálum er stöðugt verðlag. Hinn 27.
mars 2001 var tekið upp formlegt verðbólgumarkmið sem hér segir:1
• Seðlabankinn stefnir að því að árleg verðbólga, reiknuð sem
hækk un vísitölu neysluverðs á 12 mánuðum, verði að jafnaði sem
næst 2½%.
• Víki verðbólga meira en 1½ prósentu frá settu marki ber bankanum
að gera ríkisstjórninni grein fyrir ástæðu fráviksins, hvernig bankinn
hyggst bregðast við og hvenær hann telur að verðbólgumarkmið-
inu verði náð að nýju. Greinargerðina skal birta opinberlega.
• Seðlabankinn gerir verðbólguspár þar sem spáð er þrjú ár fram í
tímann. Spárnar eru birtar í riti bankans Peningamálum. Þar kemur
einnig fram mat bankans á helstu óvissuþáttum tengdum spánni.
Jafnframt gerir bankinn grein fyrir mati sínu á stöðu og horfum í
efnahagsmálum.
Peningastefnan miðar að því að halda verðlagi stöðugu og því verður
henni ekki beitt til þess að ná öðrum efnahagslegum markmiðum, svo
sem jöfnuði í viðskiptum við útlönd eða mikilli atvinnu, nema að því
marki sem slíkt samrýmist verðbólgumarkmiði bankans.
Helstu stjórntæki peningastefnunnar
Seðlabankinn framfylgir peningastefnunni einkum með því að stýra
vöxtum á peningamarkaði, fyrst og fremst með ákvörðun nafnvaxta
veðlána til fjármálafyrirtækja sem síðan hafa áhrif á aðra vexti. Vextir
á peningamarkaði hafa einnig sterk áhrif á gjaldeyrisstrauma og þar
með á gengi krónunnar og til lengdar innlenda eftirspurn. Viðskiptum
við fjármálafyrirtæki má í grófum dráttum skipta í regluleg viðskipti
annars vegar og önnur viðskipti hins vegar. Um viðskipti fjármálafyrir-
tækja við Seðlabankann gilda reglur nr. 553 frá 26. júní 2009.
Föst viðskiptaform
• Viðskiptareikningar: Á viðskiptareikningum geyma fjármálafyrirtæki
ráðstöfunarfé sitt. Viðskiptareikningar eru uppgjörsreikningar í
viðskiptum fjármálafyrirtækja og bindiskyldureikningar. Vextir við-
skiptareikninga mynda gólf fyrir daglánavexti á millibankamarkaði
með krónur. Viðskiptareikningar verða alltaf að vera með jákvæða
stöðu í lok hvers viðskiptadags..
• Daglán: Lán veitt til næsta viðskiptadags. Hlutverk daglána er fyrst
og fremst að tryggja fjármálafyrirtækjum aðgang að lausafé til
að tryggja að staða viðskiptareiknings sé jákvæð í lok dags og til
þess að uppfylla bindiskyldu. Daglán eru veitt gegn tryggingum í
verðbréfum. Vextir daglána mynda þak einnar nætur vaxta á milli-
bankamarkaði með krónur.
1. Sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands og Seðlabanka Íslands. Birt m.a. á heimasíðu
bankans.