Málfregnir - 01.12.1999, Qupperneq 32

Málfregnir - 01.12.1999, Qupperneq 32
samræmdu prófin í 4„ 7. og 10. bekk komi til með að kanna með óyggjandi hætti hvort hinni rituðu námskrá var fylgt á réttan hátt. Takist prófum að sanna það, nú þá eru vandamál kennslufræðinga úr sögunni. Þar með verður orðið ljóst að til er hinn rétti háttur til þess að kenna eftir nýju nám- skránni og þá verður að kalla til námsefnis- höfunda og höfunda kennsluleiðbeininga því að ef til er hinn rétti háttur til þess að prófa og mæla skólastarf þá hlýtur að vera til hinn rétti háttur við að kenna og hinn rétti háttur til þess að nema. Eg vona að ný námskrá, eins ýtarleg og hún er, verði ekki til þess að útgefendur námsefnis rjúki upp til handa og fóta og hefjist handa við að semja námsefni við námskrána, áðumefndan flokk, „Islenska 1,- 10. hefti“, „Lífsleikni 1.-10. hefti“ og svo framvegis, heldur verði kennurum áfram gefið það frelsi að kjósa sjálfir hvaða náms- efni og námsleiðir henti hverjum nemenda- hópi til þess að ná fram markmiðum nám- skrár. Á sama hátt mega bæði kennarar og þeir sem semja samræmd próf gæta þess að gera þau ekki að hinni einu og sönnu nám- skrá í 1.-10. bekk. í máli mínu hef ég fyrst og fremst horft á hið almenna hlutverk námskrár, með nám- skrána í íslensku að leiðaiijósi, án þess að draga sérstaklega fram hvort einhverjir hlut- ar námskrárinnar komi til með að gjörbreyta námi og kennslu í íslensku. Ég hef með öðrum orðum ekki á nokkum hátt velt fyrir mér hvort námskráin þjóni því hlutverki að vera leiðbeinandi fyrir málræstitækna. Ég verð reyndar að viðurkenna að nemendur mínir hafa undanfarin ár algjörlega eytt áhyggjum mínum af því að tungumálið sé að hverfa í enskunnar dá. Nemendur mínir frá því í fyrra, sem þá voru í sjöunda bekk, fundu leið til þess að rétta af fjárlagahall- ann, með orðskatti. Þeim fannst ástæða til þess að Japanar greiddu ríkissjóði nokkrar krónur í hvert sinn sem einhver þeirra notar nýyrðið hitcivcita og eins skyldu enskumæl- andi þjóðir borga íslenska ríkinu þó nokkuð ár hvert fyrir bruðl á hinu ágæta orði geysir. Þetta fannst mér sanna að ungdómurinn væri sannarlega meðvitaður um tungumál sitt, eignarrétturinn var allavega á hreinu. Hinn virki orðaforði unga fólksins er annað áhyggjuefni sem hefur viljað þvælast fyrir fyrmefndri stétt ræstitækna, þeim áhyggjum eyddi sex ára snáði sem vildi ólmur komast að með reynslusögu einn daginn í skólan- um, sagan hófst svona: „Um daginn þegar ég var frammi í stofu að færa brúðubangs- ann minn í konungsklæðin ...“ Þegar þrepamarkmiðin, inngangurinn, áfangamarkmiðin og lokamarkmiðin eru öll komin saman undir einn hatt má það þó ljóst vera að megininntak námskrárinnar stefnir að vinnubrögðum sem eru tungumáli til framdráttar, þ.e. mikilli notkun málsins á sem fjölbreyttastan máta. 32

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.