Bændablaðið - 25.09.2014, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
ram skal haldið
með kveðskap frá
hagyrðingasamkomu
„Kátra daga“ á Þórshöfn.
Jóhannes á Gunnarsstöðum lauk
sínu máli í síðasta þætti. Þessi
þáttur er helgaður Hjálmari
Freysteinssyni og framlagi hans.
Hjálmar hefur sýnilega sinnt
kveðskaparefnum sínum betur
en Jóhannes og því hugsanlegt
að helga honum rausnarlegra
rými en heimamanninum
á Gunnarsstöðum. Um sig
sjálfan orti Hjálmar í upphafi
samkomunnar:
Leikur mér allt í lyndi,
léttvægar mínar syndir.
Svo er ég augnayndi
allra – sem eru blindir.
Að horfa á mig er hörmung sönn,
hér þyrfti margt að laga,
enda hefur tímans tönn
tuggið mig ár og daga.
Um sessunauta sína orti Hjálmar:
Þótt hugsun mín sé fjarska frjó
og fæðist vísur enn,
er ég búinn að yrkja nóg
um alla þessa menn.
Stjórnandinn, Birgir Sveinbjörns-
son, fékk smá völu. Birgir hafði
nýverið lokið mikilli sólpallasmíði
við sumarhús sitt í Krossavík:
Sæll er Birgir í seinni tíð
síðan hann fékk pallinn,
sá er mikil meistarasmíð
og miklu stærri en skallinn.
Næstu tvær vísur Hjálmars
tengjast ekki beint efnistökum
samkomunnar, en ortar samt á
árinu. Látum lesendum eftir að
álykta um tilefni vísnanna:
Fer mér hægt og forðast slys
fallegt er í góðri tíð,
og útsýnið fæst ókeypis
alla leið í Reykjahlíð.
Við fjallavötnin fagurblá
er ferðamönnum vistin blíð,
þótt fæstir hafi efni á
útsýninu í Reykjahlíð.
Þétting var ort um barnaskólann
á Svalbarði sem hefur nú verið
aflagður. Þrátt fyrir að „Vigfús“
gerði sitt til þess að viðhalda
nemendafjölda við skólann, þá
fór sem fór. Hjálmar orti limru
um lokun skólans:
Frægur er „Vigfús“ að vonum,
virðingar aflaði honum
að í 5 ára törn
átt‘ann 20 börn
með 28 konum.
Þá skyldi ort um flutning opinberra
stofnana út á land, þ.m.t. flutning
Fiskistofu til Akureyrar. Hjálmar
orti:
Sigurð ei setur ofan,
sumir prís‘ann og lof´ann
og málsháttinn þann
mætavel kann:
„Flýgur fiskistofan“.
Óbeðinn fer svo Hjálmar að huga
að frekari flutningi opinberra
starfa út á land:
Stjórnin er að ráðum rík,
rétt er hana að lofa.
Í haust verður flutt á Húsavík
Höfuðborgarstofa.
Að trúarlífi hér skal hlúð;
hef ég fundið leið til þess.
Það má flytja Þorláksbúð
til Þórshafnar eða Sauðaness.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
F
„Smalamennska gekk mjög vel,
þetta er fremur létt dagsverk hér
á okkar svæði og veðrið lék við
okkur. Þannig að allt var eins
og best verður á kosið,“ segir
Andrés Kristinsson, réttarstjóri í
Þórustaðarétt á Moldhaugnahálsi
í Hörgársveit.
Féð kom vænt af fjalli eftir gott
og grösugt sumar, en ríflega eitt
þúsund fjár eru í eigu fjárbænda sem
rétta í Þórustaðarétt. Einkum eru þeir
búsettir í Kræklingahlíð og niður í
„skotti“ eins og heimamenn nefna
svæðið frá Hlíðarbæ að Gásum og
upp að Hlöðum.
Enginn sérstakur afréttur er á
svæðinu að sögn Andrésar, féð heldur
sig í Hlíðarfjalli og Laugalandsheiði.
„Þetta er auðvelt viðureignar hjá
okkur og alls ekki margt fé heldur,
flestir hér á svæðinu halda kindur
sér til gamans og eru með þetta tvö
til þrjú hundruð ær þeir sem mest
eiga,“ segir Andrés. /MÞÞ
Þórustaðarétt á Moldhaugnahálsi:
Veðrið lék við fé og fólk
Myndir / MÞÞ