Bændablaðið - 25.09.2014, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
Fréttir
Samkvæmt frétt á vef Náttúru-
fræðistofnunar Íslands fundust í
sumar undarlegir maðkar þegar
rótað var í safnhaug í garði í
Reykjavík.
Maðkarnir voru afar kvikir í
hreyfingum og hreinlega stukku úr
lófa og voru hálir sem álar.
Maðkarnir hafa ekki verið
greindir til tegundar en um
svokallaða slöngumaðka er að ræða.
Þótt maðkar séu þarfadýr í jarðvegi
er ekki víst að það gildi um þá nýju.
Slöngumaðkar tilheyra ættinni
Megascolecidae og eru því ekki af
sama toga og ánamaðkar sem eru af
ættinni Lumbricidae. Upprunaleg
heimkynni slöngumaðka ná frá
Austur-Asíu suður til Eyjaálfu
og einhverra tegunda í Norður-
Ameríku. Af slöngumöðkum er
fjöldi tegunda. Þekktust er risavaxni
maðkurinn í Ástralíu, „Gigant
Gippsland earthworm“ sem getur
orðið allt að þriggja metra langur.
Slengjast til með hnykkjum
Slöngumaðkarnir fundust í
Þingholtunum í Reykjavík,
fyrst einn og síðar fleiri. Atferli
maðkanna reyndist einstakt og afar
frábrugðið því sem við eigum að
venjast hjá ánamöðkum. Þeir eru
grannir og stinnir, slengjast til með
snöggum S-formuðum hnykkjum,
hlykkjast, hoppa og skoppa eins og
skrykkdansarar. Þegar þeim er sleppt
lausum eru þeir fljótir að hverfa
niður í svörðinn.
Þótt enn hafi ekki tekist að greina
slöngumaðkana til tegundar er
nokkuð ljóst að um er að ræða tegund
af ættkvíslinni Amynthas sem rakin
er til Austur-Asíu. Fjórar tegundir
eru skráðar fundnar í Evrópu, taldar
hafa borist þangað með innfluttum
plöntum frá Asíulöndum og jafnvel
náð festu í gróðurhúsum sums staðar.
Brjóta hratt niður plöntuleifar
Slöngumaðkar hafa einnig borist til
austanverðrar Norður-Ameríku og
valda þar áhyggjum því þeir geta
sett allt á annan endann í vistkerfum.
Þeir þykja einkar öflugir við að
brjóta niður rotnandi plöntuleifar
og losa þannig um næringarefnin í
jarðveginum. Slíkur hraði niðurbrots
er ekki æskilegur í öllum vistkerfum
því margar plöntur kjósa meiri
stöðugleika í jarðveginum og fá ekki
þrifist við svo hraða umbyltingu.
Dæmi eru um það í Ameríku að
gróður hafi horfið af skógarbotnum
þar sem slöngumaðkar hafa
náð völdum í jarðvegi. Þá eru
slöngumaðkar sagðir svo gráðugir
að þeir láta ekki rotnandi plönturnar
einar sér duga, heldur leggjast einnig
á lifandi plöntur og eyða þeim.
Á vef Náttúrufræðistofnunar
segir að þetta sé enn eitt dæmið
um það hvaða hættur eru fólgnar
í innflutningi á pottaplöntum með
rót í jarðvegi. Það er í sjálfu sér
ekki vitað hvernig slöngumaðkarnir
bárust hingað, heldur ekki hvernig
þeim kemur til með að vegna og þá
í framhaldinu haga sér. Alla vega
er um að ræða kvikindi af ættkvísl
maðka sem á vafasama sögu í
numdum lendum vestan Atlantsála.
/VH
Slöngumaðkar finnast
í Þingholtunum
Slöngumaðkar eru grannir og stinnir. Þeir slengjast til með snöggum hnykkj-
um, hlykkjast, hoppa og skoppa eins og skrykkdansarar. Mynd / Erling Ólafsson.
Bændur í Jökuldal vel birgir
af heyi eftir einstakt sumar
„Heyskapur gekk mjög vel í
sumar og mun betur en nokkur
maður þorði að vona í vor,“ segir
Sigvaldi H. Ragnarsson, bóndi á
Hákonarstöðum í Jökuldal.
Annað árið í röð var þó nokkurt
kal á túnum nokkurra bæja á
Jökuldal. Útlitið var því ekki gott
en annað kom á daginn, einstaklega
gott sumar með góðri grastíð gerði
það að verkum að heyfengur er með
meira móti og fara Jökuldælingar
líkt og aðrir bændur á austanverðu
landinu því með góðar birgðir inn í
komandi vetur.
Leit ekki vel út í vor
Sigvaldi segir að tún við
Hákonarstaði hafi verið metin á
liðnu vori og reyndist kal þá vera
á 50 til 60% túna á jörðinni. Þar
sem mest var fór hlutfallið upp í
um 80%. „Bændur voru því ekki
sérlega bjarsýnir í vor, en þetta er
annað árið í röð sem við búum við
þetta ástand, að stór hluti túna hefur
kalið,“ segir hann. Klaki var yfir
túnum í hluta Jökuldals stóran part
síðasta vetrar, eða frá því fyrir áramót
og langt fram í mars. Kal var bundið
við nokkra bæi að sögn Sigvalda, þá
sem standa fremur hátt og lentu inni
í veðurskilum þar sem ýmist snjóaði,
rigndi eða krapaði. Á þeim svæðum
hefði svell verið yfir jörðu lengi með
þeim afleiðingum að tún voru kalin á
stórum parti í vor. „Það fóru nokkrir
bæir hér um slóðir illa út úr þessu
árferði og því var útlitið langt í frá
gott,“ segir Sigvaldi sem er þakklátur
góðu sumri og góðum heyfeng.
Sóttu heyskap í aðrar sveitir
Sumarið aftur á móti má heita
einstakt, það var sérlega gott og
gras spratt sérlega vel. Uppskeran
var í takt við veðurfarið, mjög góð.
Sigvaldi segir að þeir bændur sem
lentu í hvað mestu kali hafi sótt
heyskap lengra til, út í Jökulsárhlíð
og jafnvel austur á Hérað. Þeir
sem lengst sóttu stóðu í miklum
heyflutningum með tilheyrandi
kostnaði. Þeir sem mest hafi flutt
heim á hlað óku hátt í tvö þúsund
kílómetra fram og til baka með hey
á flutningabílum. „En það gildir
bara gamla orðtækið; að duga eða
drepast, og auðvitað deyjum við ekki
ráðalausir, Jökuldælingar,“ segir
Sigvaldi. /MÞÞ
„Það gildir bara gamla orðtækið; að duga eða drepast, og auðvitað deyjum við ekki ráðalausir, Jökuldælingar,“
vori. Hann sótti heyskap m.a. í Jökulsárhlíð og þegar upp var staðið að honum loknum er heyfengur með mesta
móti. Mynd / MÞÞ
Sala á kindakjöti í ágúst
síðastliðinn var 642 tonn, en í sama
mánuði 2013 var salan 621 tonn.
Miðað við sama ársfjórðung og
2013, júní-ágúst, var salan 3,4%
meiri en 2,4% minni miðað við 12
mánaða tímabil.
Markaðshlutdeild kjöts á tólf
mánaða tímabili, ágúst til september,
skiptist þannig að alifuglakjöt er í
1. sæti (32,1%), kindakjöt í 2.
sæti (26,7%), svínakjöt í þriðja
(24,3%), nautakjöt í fjórða (14,7%)
og hrossakjöt í fimmta (2,3%).
Heildarsala á innlendu kjöti dróst
saman um 4,3% á tímabilinu.
Allar ofangreindar tölur miðast
við heildsölu afurðastöðva á
innlendu kjöti. Innflutt kjöt er ekki
talið með, en ekki var flutt inn neitt
lamba- eða kindakjöt fyrstu sjö
mánuði ársins 2014. Hins vegar er
verulega aukinn innflutningur á öðru
kjöti, einkanlega nautakjöti.
Útflutningur var 73 tonn í ágúst,
samanborið við 131 tonn í ágúst 2013.
Með útflutningi er heildarafsetning
lamba- og kindakjöts 2% minni
fyrstu átta mánuði ársins 2014 miðað
við sömu mánuði 2013.
Birgðir í ágústlok, við upphaf
sláturtíðar, voru 1.304 tonn, eða 239
tonnum meira en í lok ágúst 2013.
Þar af eru 1.140 tonn af framleiðslu
ársins 2013. /VH
Sala á innlendu kjöti hefur dregist
saman um 4,3% á ársgrundvelli
RÚV og Tómasi J. Knútssyni veitt verðlaun
á Degi íslenskrar náttúru
Á Degi íslenskrar náttúru hinn
16. september síðastliðinn veitti
umhverfis- og auðlindaráðherra,
Sigurður Ingi Jóhannsson,
RÚV – hljóðvarpi og sjónvarpi,
fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins.
Við sama tækifæri veitti
hann Tómasi J. Knútssyni,
náttúruverndarviðurkenningu
Sigríðar í Brattholti.
Tómas stofnaði Bláa herinn,
sem eru frjáls félagasamtök sem
hafa starfað síðan árið 1995 að
umhverfisvernd í hafinu. Blái herinn
hefur unnið brautryðjendastarf við
hreinsun í höfnum landsins með
óeigingjörnu sjálfboðastarfi. Má
þar nefna að yfir 1.200 tonn af rusli
hafa verið hreinsuð úr náttúrunni og
komið til endurvinnslu.
Til fjölmiðlaverðlaunanna voru
eftirtaldir tilnefndir:
Gunnþóra Gunnarsdóttir,
blaðamaður á Fréttablaðinu, fyrir
greinaflokkinn Útivist og afþreying
þar sem sjónum var beint að
áhugaverðum náttúruperlum í öllum
landshlutum á hnitmiðaðan, einfaldan
og fallegan hátt.
Just.In.Iceland fyrir að nýta sér
netið og gagnvirkni þess til að kynna
sérstöðu Íslands fyrir umheiminum
með því að skapa stafrænan vettvang
til að birta og deila fagmannlega
teknum ljósmyndum af íslenskri
náttúru og lífríki.
RÚV, hljóðvarp og sjónvarp fyrir
ítarlega og vandaða umfjöllun um
almannarétt og gjaldtöku fyrir aðgang
að náttúruperlum á liðnu ári.
Í rökstuðningi dómnefndar
fjölmiðlaverðlauna segir: „Umræða
og umfjöllun um almannarétt
og gjaldtöku fyrir aðgang að
náttúruperlum hefur verið eins og
rauður þráður í upplýsingamiðlun
fjölmiðilsins [RÚV] á síðastliðnum
tólf mánuðum, mikil að vöxtum,
alhliða, upplýsandi og gagnrýnin.
Öll mikilvægustu sjónarmið málanna
hafa komið fram en ekki verður gert
upp á milli einstakra þátta, RÚV er
tilnefnt til verðlaunanna í einu lagi.
Er það niðurstaða dómnefndar að
sú umfjöllun samantekin verðskuldi
fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins árið 2014
enda hafi mikilvægum hagsmunum
og réttindum almennings hvað
snertir náttúruna og umhverfið verið
gerð ítarleg skil frá öllum hliðum
málanna.“ /smh