Bændablaðið - 25.09.2014, Síða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
Árleg selatalning á Vatnsnesi á vegum Selaseturs Íslands:
Gestum fjölgar jafnt og þétt ár frá ári
„Gestakomum hefur fjölgað jafnt
og þétt undanfarin ár en það koma
í kringum 20 þúsund manns til
okkar í Upplýsingamiðstöðina
árlega,“ segir Unnur Valborg
Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri
Selaseturs Íslands á Hvammstanga.
„Ætla má að aukning milli ára
hafi að jafnaði verið um 10%, en á
liðnu ári má segja að hafi orðið alger
sprenging og aukning á gestakomum
var gríðarleg.“
Markmið að efla náttúrutengda
ferðaþjónustu
Selasetrið var stofnað vorið 2005
með það að markmiði að standa að
eflingu náttúrutengdrar ferðaþjónustu
í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu
selaskoðunar á svæðinu og standa
fyrir fjölbreyttum rannsóknum,
fræðslu og upplýsingamiðlun um
seli við Ísland. Selasetrið eignaðist
í upphafi tvær hæðir að Brekkugötu
2 á Hvammstanga þar sem verslun
Sigurðar Pálmasonar var til húsa. Þar
voru settar upp fræðslusýningar um
seli og húsnæðið nýtt fyrir fjölþætta
starfsemi setursins. Með aukinni
starfsemi var hluti starfseminnar
fluttur í húsnæði í eigu Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga niðri við
Hvammstangahöfn sumarið 2011. Þar
eru nýjar sýningar setursins, búið að
standsetja rannsóknaraðstöðu og þar
er upplýsingamiðstöð héraðsins og
móttaka ferðamanna. Skrifstofur eru
enn að Brekkugötu 2.
Rannsóknadeild Selaseturs
Íslands tók til starfa árið 2009 og
starfa eins og er tveir sérfræðingar
í fullu starfi við deildina, auk
aðstoðarfólks og rannsóknanema,
þeir eru verkefnaráðnir og
starfa einkum yfir sumartímann.
Deildin starfar á tveimur sviðum;
l íffræðirannsóknasviði og
ferða málarannsóknasviði. Því
síðarnefnda stýrir dr. Leah Burns,
sérfræðingur í náttúrutengdri
ferðaþjónustu. Leah er sameiginlegur
starfsmaður Háskólans á Hólum og
Selasetursins. Sandra Magdalena
Granquist, dýraatferlisfræðingur
og doktorsnemi, stýrir líffræði-
rannsóknarsviðinu, en hún segir að
meginverkefni þess séu rannsóknir
á selastofnum við Ísland. Meðal
verkefna er vöktun á stofnstærðum
útsels og landsels við Ísland,
rannsókn á fæðuöflun sela og áhrifum
sela á fiskistofna við landið.
Margt spennandi í gangi
„Það eru mörg spennandi rannsókna-
verkefni í gangi hjá okkur,“ segir
Sandra. Stofnstærðartalning á landsel
fer reglulega fram og þá teljum við
úr flugvél. Í ár erum við einnig að
kanna möguleika á að telja seli við
strendur landsins með svonefnda
dróna, ómönnuð loftför sem taka
myndir yfir landsvæði í sama tilgangi,
að telja seli. „Við reynum þá að telja
þá seli sem sjást á myndum og gera
áætlanir um stofnstærð út frá því,“
segir hún.
Sérfræðingar Selaseturs fá oft
beiðnir um að leiðbeina nemendum
við gerð lokaverkefna. Nú í sumar
hefur Sarah Marschall, meistaranemi
frá Háskólasetri Vestfjarða, unnið
að verkefni undir leiðsögn Söndru
Granquist og Leah Burns, en verkefni
hennar nær yfir hvernig best er að
koma skilaboðum til ferðamanna um
hvernig á að haga sér í kringum villt
dýr, til að lágmarka neikvæð áhrif.
Rannsókn á áhrifum
landsels á laxfiska
Sandra vinnur einnig að stórri
rannsókn um áhrif landsels á
laxfiska, en vinna við það verkefni
hófst árið 2009. Markmið þess er að
sögn Söndru að áætla áhrif sela sem
dvelja á ósasvæðum á laxfiskastofna
og laxveiði í ám. Í rannsókninni er
m.a. verið að skoða fæðuval landsela
við árósa, hreyfimynstur landsela í
Bjargarósi í Húnaþingi vestra og
eins ummerki eftir seli á veiddum
laxfiskum. „Við höfum skoðað
óbein áhrif landsela á laxveiðar með
því að biðja laxveiðimenn í helstu
ám í Húnaþingi vestra og Austur-
Húnavatnssýslu að skrá ummerki eftir
seli í laxfiskum. Niðurstöður sýndu
að minna var um bit á laxi eftir seli á
veiddum fiskum en menn hefðu talið,
en niðurstöðurnar eiga bara við um
árnar þar sem rannsóknin var gerð
og yfir ákveðnu tímabili,“ segir hún.
Selatalningin mikla
Selatalningin mikla var haldin á
vegum Selaseturs Íslands í lok júlí.
Talningin hefur farið fram árlega síðan
árið 2007 og var þetta því í áttunda
sinn sem til hennar var efnt. Markmið
talningarinnar er að fylgjast með fjölda
og staðsetningu landsela á Vatnsnesi
og Heggstaðanesi, ásamt því að gefa
almenningi tækifæri á að kynnast
og taka þátt í rannsóknarstarfsemi
Selaseturs Íslands.
Selir voru taldir á allri
strandlengjunni á Vatnsnesi og
Heggstaðanesi í Húnaþingi vestra,
samtals um 100 km. Sjálfboðaliðar
aðstoðuðu sérfræðinga Selasetursins
við talninguna. Með því móti gefst
færi á að kanna stórt svæði á mjög
stuttum tíma. Í ár tóku yfir 30 manns
þátt í talningunni og voru það bæði
erlendir og íslenskir ferðamenn
á leið um landið. Sumir bændur
töldu einnig sjálfir í sínu landi og
selaskoðunarbáturinn Brimill sem
gerir út frá Hvammstanga aðstoðaði
einnig við talninguna.
Rúmlega 700 selir sáust á svæðinu
Í ár sáust samtals 706 selir á svæðinu,
einkum landselur. Það eru aðeins færri
selir en sáust 2013, en þá voru talin
757 dýr. Árið 2012 voru talin 614 dýr,
en fjöldinn árin þar á undan hefur
verið yfir 1.000 dýr. Mikilvægt er að
hafa í huga að þessar talningar eru
aðeins vísbending um lágmarksfjölda
þeirra sela sem dvelja á þessu svæði.
Margir þættir hafa áhrif á fjölda sela
sem liggja uppi í látrunum hverju sinni
og er veður einn þeirra.
Á vef Selasetursins kemur fram
að tölurnar segja ekki endilega
til um ástand landselsstofnsins
í heild. Seinna í sumar verður
landselsstofninn talinn í helstu látrum
landsins úr lofti á vegum Selaseturs
Íslands. Stofnstærðarmat á landsel fór
síðast fram árið 2011 og hefur þar áður
farið fram reglulega síðan árið 1980
og þá hefur verið talið um land allt úr
flugvél. Niðurstöður talningarinnar frá
2011 benda til þess að landselstofninn
hafi staðið í stað síðan árið 2003 og
sé tæplega 12 þúsund dýr. /MÞÞ
Arnar og Helga, starfsmenn hjá Selasetri Íslands á Hvammstanga. Myndir / Selasetur
Talena, dýralæknir og sjálfboðaliði við Selasetrið á liðnu sumri, Ellen Magn-
úsdóttir, sem unnið hefur við svonefnt Fuglastígsverkefni, Valérie Scholl,
dýralæknanemi frá Frakklandi, og Sarah Marschall, meistaranemi við Háskóla-
setur Vestfjarða, en verkefni sitt vinnur hún við Selasetrið.
talningunni.
„Það gekk ljómandi vel í sumar
og hingað komu fjölmargir
gestir,“ segir Lilja Óladóttir sem
ásamt eiginmanni, Birni Halli
Gunnarssyni, hefur umsjón með
rekstri ferðaþjónustunnar á
Sænautaseli á Jökuldalsheiði.
Undanfarin sumur hafa um 4.000
manns lagt leið sína í Sænautasel yfir
sumarmánuðina, en þeim hefur farið
fjölgandi ár frá ári frá því staðurinn
var opnaður ferðafólki fyrir 20 árum,
árið 1994.
„Við byrjuðum með einfalda
kaffisölu og höfðum ekki mikið
umleikis, en þetta hefur smám
saman undið upp á sig og má
segja að Sænautasel sé nú vinsæll
viðkomustaður gesta á Austurlandi
og þeirra sem ferðast á milli Austur-
og Norðurlands,“ segir Lilja.
Vilja ekkert annað en lummur
Gamli bærinn var fyrst eingöngu í
notkun, en gamalt fjárhús var gert
upp og endurbyggt frá grunni og hýsir
nú veitingasöluna. „Það er oft mikil
ös hjá okkur, einkum þegar veðrið
er gott og við getum nú ekki kvartað
yfir veðrinu á liðnu sumri, það var
einstaklega gott,“ segir Lilja. Frægar
eru lummurnar sem steiktar eru í gríð
og erg alla daga í Sænautaseli og
segir hún að gestir vilji vart sjá neitt
annað. „Ég prófaði að bjóða upp á
aðrar veitingar, brauð með laxi og
silungi og því um líkt en okkar gestir
voru ólmir í að prófa lummurnar svo
ég hætti þessum tilraunum og einbeiti
mér að lummunum. Þær eru ansi
margar sem við steikjum suma daga,
fleiri hundruð talsins þegar mest er.“
Sveitarfélagið hafði forgöngu
um það árið 1992 að ráðist var í
endurbyggingu gamla bæjarins
að Sænautaseli og vann Lilja
ásamt fleiri sveitungum við þá
uppbyggingu. „Svo fóru menn að
velta fyrir sér hvað ætti að gera þarna
og ég ákvað að prófa að vera yfir
sumarið með kaffisölu. Það komu nú
sárafáir fyrsta sumarið, en mynd um
svæðið hér sem sýnd var í sjónvarpi
árið 1995 jók strauminn talsvert og
síðan hefur gestafjöldinn vaxið með
hverju sumrinu,“ segir Lilja. „Þá fór
boltinn að rúlla.“
Fjölmargir litu við sumarið
2007, en þá var kominn vegur yfir
Kárahnjúkastíflu og fýsti marga að
berja hana augum. „Það opnaðist
leið fyrir ferðamenn hér um óbyggð
svæði á Jökuldalsheiði og það sumar
komu mjög margir, ég myndi giska
á að sumarið nú hafi verið álíka
gott, þetta voru metsumur hvað
ferðamannafjölda varðar.“
Kem endurnærð af fjöllum
Lilja kveðst hvergi annars staðar
vilja vera yfir sumarið en á fjöllum,
þar kunni hún vel við sig. Hún hefur
verið staðarhaldari á Sænautaseli í
20 ár og hefur nýlega gert fimm
ára samning við sveitarfélagið um
reksturinn. „Ég kem alveg endurnærð
af fjöllum, tilbúin fyrir átök vetrarins
og hlakka alltaf til á vorin að komast
í Sænautasel aftur,“ segir hún, sem
býr á bænum Merki í Jökuldal ásamt
sinni fjölskyldu. Þar er tvíbýli, Stefán
bróðir hennar og fjölskylda búa
þar einnig sauðfjárbúi með 5–600
kindur. Sjálf starfar Lilja að hluta til
á Egilsstöðum yfir veturinn. /MÞÞ
Æ fleiri ferðamenn leggja leið sína í Sænautasel:
Gott sumar að baki
– Gestafjöldi álíka og góðærissumarið 2007
Myndir / MÞÞ