Bændablaðið - 25.09.2014, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
Danska fyrirtækið Fiberline
Composites A/S hefur um
þrjátíu ára skeið verið
í frumkvöðlahlutverki
hvað varðar framleiðslu á
burðarbitum, gluggaefni og öðru
úr viðhaldsfríu, trefjastyrktu
FRP-fjölliðuplastefni í marg-
víslega mannvirkjagerð. Helsti
kostur þessara efna er lítið
viðhald, gríðarlegur styrkur auk
mikils léttleika.
Ragnar Kærnested hjá Gný
í Reykjavík er umboðsaðili
Fiberline Composites A/S á Íslandi.
Segir hann að notkun á FRP (Fibre
Reinforced Polymers) efnum
fyrirtækisins byggist á mikilli
sérhæfingu varðandi smíðatækni
og aðferðir. Því sé ánægjulegt
að komist hafi á samstarf við
landsbyggðarfyrirtæki um að
taka það hlutverk. Þar er um
að ræða fyrirtækið Stykki hf. í
Stykkishólmi.
Þórarinn Sighvatsson hjá Stykki
segir að hægt sé að nota þessi efni
í nánast hvað sem er. Þótt efnið sé
dýrara á hverja lengdareiningu en
stál, þá sé efnið ekki dýrt ef tekið
sé mið af því að burðurinn er mun
meiri miðað við þyngd en næst með
stáli. Því þurfi mun meira af stáli en
fíberefninu til að ná sama markmiði
hvað burðareiginleika varðar. Til
viðbótar komi mun meiri ending
og að efnið sé viðhaldsfrítt, mengi
ekki, þoli vel bleytu og uppfylli
EN13706-staðalinn.
Fyrirtækin kynntu Fiberline-
efnin á 60 manna brúarráðstefnu
Norræna vegasambandsins
(NVF) sem haldin var á Hótel
Sögu í Reykjavík 3.–4. september
síðastliðinn. Þar var til sýnis 12
metra löng göngubrú úr Fiberline-
efni sem Stykki hf. smíðaði
sérstaklega af þessu tilefni.
Bráðsniðugt efni til margra
hluta
„Ég sé fyrir mér að svona efni
geti verið mjög sniðugt í grindur
í fjárhús og í bita undir slíkar
grindur. Þetta ryðgar hvorki né
fúnar og auðvelt er að þrífa það,“
segir Þórarinn sem þekkir ágætlega
til sauðfjárræktar.
„Þó sé hægt að nýta þessi efni
í nánast hvað sem er þá er ég
ekki viss um að það sé hagkvæmt
að nota þau í burðarvirki á
byggingum þar sem annars er
notuð stálgrind. Menn hafa samt
notað þessi efni í þeim tilgangi,
m.a. í kjarnorkuverum. Kosturinn
er líka að þetta er laust við alla
rafleiðni og segulmyndun.
Þannig mætti hugsa sér að þessi
efni hentuðu vel í gagnaver og á
öðrum stöðum þar sem leiðni getur
verið vandamál.“ Auk þess megi
nefna útsýnispalla, gangstíga,
flotbryggjur, handrið og tröppur.
Dönsk hugmynd
Fiberline Composites A/S var
stofnað í danska bænum Kolding
1. maí 1979 af Dorthe og Henrik
Thorning. Fyrirtækið þróast
smám saman úr því að vera
tveggja manna fyrirtæki í stóra
verksmiðju sem fyrirtækið rekur
í bænum Middelfart á Fjóni í
Danmörku sem er skammt frá
Litlabeltisbrúnni. Framleiðsla
fyrirtækisins úr FRP-efnum
hefur unnið til fjölda verðlauna
en á boðstólum eru margvíslegir
prófílar og plötuefni. Efnið hefur
m.a. verið notað í spaða á stórar
raforkuvindmyllur og ýmsa hluti í
vindmylluturna eins og sjá má víða
úti fyrir ströndum Danmerkur.
Einnig eru framleiddir burðarbitar
af margvíslegum gerðum í ýmiss
konar mannvirki eins og brýr og
efni í plastglugga og fleira.
Burðarbitar eins og svokallaðir
I bitar frá fyrirtækinu hafa
gríðarlegan styrk sem byggist á því
að þeir eru í raun forspenntir með
trefjum líkt og steinsteypubitar sem
forspenntir eru með stálstrengjum.
Þannig næst fram gríðarlegt
burðarþol í hlutfalli við þyngd
efnisins. Getur slíkt efni því hentað
mjög vel til brúargerðar auk þess
sem fyrirtækið framleiðir sérstakar
burðarplötur í dekk á slíkar brýr.
Þá er einnig mikill kostur að
þessi plasttrefjaefni standast vel
tæringaráhrif af völdum t.d. sjávar
og kemískra efna.
Hentar vel í göngubrýr
Þórarinn nefnir að með slíkum
efnum sé hægðarleikur að byggja
göngubrýr sem hengdar eru utan
á eldri steinsteyptar brýr, án
þess að raska burðareiginleikum
brúnna. Þá hefur hann kynnt
þetta fyrir ferðaþjónustuaðilum
vegna hugmynda um að setja
göngubrýr yfir ár í óbyggðum,
eins og í Þórsmörk, þar sem erfitt
getur reynst að koma að þungum
stálbrúm.
Þá hafa menn verið með
hugmyndir um að smíða
hjólastólarampa úr svona
efni, segir Þórarinn. Einnig er
Vegagerðin að láta skoða nýtingu
á Fiberline-efni m.a. í brúargerð.
„Möguleikarnir eru óendanlegir,
en við erum fyrst og fremst að selja
þetta út á styrk og léttleika,“ segir
Þórarinn.
/HKr.
Gnýr sf. í Reykjavík og Stykki hf. í Stykkishólmi kynna nýjung á íslenskum byggingamarkaði sem gæti vel hentað í landbúnaði:
Danskt FRP-plasttrefjaefni sem er
afar sterkt, létt og viðhaldsfrítt
– Mikið notað í glugga, brúargerð, útsýnispalla, vindmyllusmíði og margvísleg önnur mannvirki
Tækni
Ragnar Kærnested hjá Gný og Þórarinn Sighvatsson hjá Stykki við brú úr FRP-efni sem kynnt var á brúarráðstefnu
Norræna vegasambandsins (NVF) sem haldin var á Hótel Sögu fyrir skömmu. Þess má geta að brúin stendur þarna
á svokölluðum Dvergum sem eru undirstöðustólpar sem Íslandshús hefur verið að markaðssetja. Myndir / HKr.
Hægt er að fá margvíslega prófíla úr FRP-efni frá Fiberline Composites A/S í Danmörku. www.heimavik.is