Bændablaðið - 25.09.2014, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
Í tæplega 400 fermetra húsi
í Grindavík er að finna eitt
glæsilegasta einkasafn landsins
af gömlum dráttarvélum og
fornbílum. Vélarnar eru allar
gangfærar, spegilbónaðar og
ótrúlega glæsilegar á að líta.
Hermann Th. Ólafsson
útgerðarmaður er einn eigenda
Stakkavíkur. Hann stundar einnig
búskap og er með hundrað ær
ásamt nokkrum félögum sínum og
fjölskyldu. Auk þess stundar hann
ræktun á um 50 hestum. Hermann
og fjölskylda á eitt glæsilegasta
einkasafn landsins af gömlu
dráttarvélum og fornbílum.
Útgerðarfélagið Stakkavík
í Grindavík er stærsta útgerð
landsins í krókaaflamarkskerfinu
auk þess að reka ferskfiskvinnslu.
Stakkavík gerir út 12 báta og er
að láta smíða tvo glæsilega báta í
smábátakerfinu.
Hundrað kindur á gjöf
„Föðurfjölskylda mín er ættuð
úr Staðarhverfinu sem er nokkra
kílómetra frá Grindavík og afi var
með rollur þar og pabbi eftir hann
og svo tók ég við þeim eftir pabba.
Ég og félagar mínir erum með
kindurnar af því að okkur finnst
Hermann Th. Ólafsson á nýjustu viðbótinni á safninu í Grindavík, Fordson árgerð 1918. Myndir / VH
Fyrsti traktorinn sem Hermann eignaðist, MCCormick Cub, kveikti áhugann.
MCCormick Farmal er í hávegum hafður á safninu.
Kælipressa og vélar sem bíða uppgerðar.