Bændablaðið - 25.09.2014, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
Nemendur á öðru ári í BA-námi
í ferðamálafræði í Hólaskóla
kynntu sér í síðustu viku starfsemi
Landhelgisgæslu Íslands og
sérdeilda stofnunarinnar.
Var þessi heimsókn liður í áfanga
sem heitir Hátíðir og viðburðir.
Tilgangurinn með þessu var
tvíþættur, annars vegar að nemendur
kunni að halda viðburð og að halda
utan um heimsókn eins og þarna
var farið í og hins vegar að taka út
viðburði.
Ólöf Birna Jensen er ein af þeim
nemendum sem sáu um að skipuleggja
viðburðinn fyrir samnemendur sína.
Hún segir að liður í því hafi verið að
virkja fjölmiðil eins og Bændablaðið
til að taka þátt í þessu með þeim.
„Við ákváðum að kalla okkur
S.T.Ó.G.E sem eru upphafsstafir
í fornöfnum okkar; Sædís Anna
Jónsdóttir, Tinna Haraldsdóttir,
Ólöf Birna Jensen og Guðríður
Hlín Helgudóttir. Allar erum við að
taka BA í ferðamálafræði í gegnum
fjarnám frá Háskólanum á Hólum í
Hjaltadal.
Okkur þótti mjög sniðugt að
geta haldið viðburð sem tengdist
náminu okkar og þess vegna varð
Landhelgisgæslan fyrir valinu, til að
sýna okkur þá aðstöðu sem þeir hafa.
Mikið var að skoða og við fengum
að sjá sprengju- og kafaradeildina og
sjá þær sprengjur sem hafa fundist
hér á landi og sjó. Einnig fengum
við að sjá sprengjur sem notaðar
eru til að þjálfa fólk sem er að fara
utan. Við fengum að sjá tækjabíla,
róbóta og búninga. Þaðan fórum
við í Sjómælingar Íslands, sem er
deild innan Gæslunnar, og skoðuðum
mælinga- og kortadeildina. Þar
fengum við að sjá hvernig mælt er
fyrir sjókortum bæði í dag og hvernig
það var gert hér áður fyrr. Við fengum
að kynnast því hversu mikilvæg þessi
vinna er en líka hversu tímafrek hún
getur verið.
Eftir kynningu hjá Sjómæl-
ingum var haldið niður í
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
í Skógarhlíðinni í Reykjavík. Til
að komast þangað var gengið
framhjá símaveri Neyðarlínunnar
112. Við fengum margs konar
upplýsingar um hvað þeir gera í
stjórnstöðinni eins og að fylgjast
með bátaumferð og að fylgja því
eftir að tilkynningaskylda sé virt.
Þaðan var haldið í þyrluskýlið þar
sem við fengum að sjá hvernig þeir
skipuleggja ferðir sínar. Einnig
fengum við að skoða eina af stóru
þyrlum Gæslunnar sem var þar í
skoðun hjá flugvirkjum.
Í lokin voru nemendur sem sóttu
viðburðinn beðnir um að svara
gátlista og skila inn nafni sem fór
í pott. Dreginn var út vinningshafi
sem fékk tvo miða á Hið íslenska
reðarsafn og vinningshafinn var
Anna Margrét Árnadóttir.
Við viljum þakka Landhelgis-
gæslunni fyrir kynninguna,
Reðarsafninu fyrir stuðninginn
og auðvitað öllum þeim sem gáfu
sína vinnu til að aðstoða okkur við
viðburðinn,“ sagði Ólöf. /HKr.
Hópurinn skoðaði m.a. aðstöðu sprengju- og köfunarsveitar Gæslunnar,
en kafarar voru nýkomnir úr leiðangri af Austfjörðum vegna strands
Nemendur í ferðamálafræði í Háskólanum á Hólum á faraldsfæti:
Kynntu sér störf Landhelgisgæslu og Sjómælinga
Í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er fylgst vandlega með öllum skipum og
bátum sem fara um landhelgi Íslands og hafsvæðið sem heyrir undir eftirlit
Nemendahópurinn úr Hólaskóla ásamt Hrafnhildi Stefánsdóttur,
upplýsingafulltrúa Gæslunnar, sem er lengst til vinstri, og Teiti Gunnarssyni,
stýrimanni og sigmanni Gæslunnar, sem er lengst til hægri á myndinni.
Myndir / HKr.
Sjómælingar og kortagerð af hafsbotninum við Ísland verða stöðugt
mikilvægari, m.a. vegna aukinnar umferðar erlendra farþegaskipa.
Þetta fjarstýrða tæki sprengjudeildarinnar er hægt að nota ef skoða þarf
vafasama pakka sem gætu innihaldið sprengiefni.
Kornsekkir og
plastinnlegg
- Eigum
til á lager
mismunandi
stærðir
kornsekkja
sem eru
fullopnir
að ofan og með eða án
losunarops í botni.
- Bjóðum einnig upp á sterk
plastinnlegg sem henta fyrir
kornsekkina.
Legur:
- Eigum til
legum á lager –
vottuð gæði.
Brettatjakkar/Vinnuborð:
- Mjög gott
úrval af
brettatjökkum
og vinnu-
borðum á
lager.
Brettatjakkar
málaðir,
galvaniseraðir
og ryðfríir.
Efnavara:
- Höfum einnig mjög
breiða línu í efnavörum,
smurefnum, koppafeiti
vottuð smurefni fyrir
matvælaiðnað.
Leitið upplýsinga hjá okkur
Tunguháls 10
110 Reykjavík
Sími: 517 2220