Bændablaðið - 25.09.2014, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
Eigendur að Merkurbúinu sf. fá glænýja Case IH dráttarvél:
Bæta tækjakostinn fyrir stækkandi kúabú
Eyvindur Ágústsson og Aðalbjörg
Rúna Ásgeirsdóttir, bændur á
Stóru-Mörk undir norðanverðum
Eyjafjöllum, voru mætt ásamt
börnum sínum hjá Kraftvélum á
föstudagskvöldið. Þar voru þau að
taka við glænýrri og öflugri Case
IH dráttarvél sem heitir Puma
CVX.
Vélin er keypt fyrir Merkurbúið sf.,
en auk þeirra Eyvindar og Aðalbjargar
eru Ragna Aðalbjörnsdóttir og
Ásgeir Ásgeirsson meðeigendur í
fyrirtækinu.
„Þetta er öflugt tæki, enda
þarf maður að draga á þessu allar
heyvinnsluvélar og annan búnað,“
segir Eyvindur. „Það er líka mikil
yfirferð því við erum með um 170
hektara land. Við erum með um 100
mjólkurkýr og nærri 180 kindur.
Síðan erum við að fara á fullt við
að stækka fjósið og bætum við um
40 básum.“
Vélin sem um ræðir er Case
IH Puma CVX og er 188/218
hestafla með aflauka. „Úr þessari
framleiðslulínu eru fáanlegar vélar
í 7 stærðum frá 170 til 260 hestafla
og eru þær allar með stiglausri
skiptingu. Verðið er frá 12.790.000
krónum án virðisaukaskatts.
Eigin þyngd vélarinnar er 8,5
tonn og olíutankurinn tekur 395 lítra.
Þá eru dekkin engin smásmíði því
framdekkið er 600/65R28 og að aftan
eru dekkin af stærðinni 710/70R38.
Vel búin og öflug vél
Annar helsti búnaður sem er í
vélinni er CVX stiglaus þriggja
þrepa skipting, með ökuhraða frá
0,01 til 43 km/klst. Þá er vendigír
með Park Lock-bremsu og hitari
fyrir skiptingu og mótor. Vökva- og
loftbremsuventlar eru í vélinni ásamt
mótorbremsu.
Alúttak er mjög fjölþætt, en að
aftan er 540/540E/1000/1000E og
1.000 snúninga aflúttak að framan.
Í vélinni er fjaðrandi framhásing
og framlyftibúnaður með lyftigetu
3,785 kg., en vökvadæla vélarinnar
afkastar 150 lítrum á mínútu.
Festingar er fyrir stjórnbúnað
tengitækja (rúlluvél o.þ.h.).
Þrítengibeisli er með opnum örmum
og 110 mm tjökkum með lyftigetu
upp á 8,7 tonn. Stjórnbúnaður fyrir
lyftu, aflúttak og 1 vökvasneið úti
á afturbrettum báðum megin og
vökvaútskotinn dráttarkrókur.
Þægindin eru eins og best verður
á kosið með fjaðrandi ökumannshúsi,
loftpúðasæti með hita og útvarp með
USB og Bluetooth. Stillanlegur
armpúði með stjórnbúnaði er
einnig í vélinni. Hliðarspeglar eru
rafstýrðir og með hita. Þá er í vélinni
loftkæling með ATC (automatic
temeratur control). Stór snertiskjár
er þar einnig þar sem upplýsingar eru
um gang vélarinnar og tengitækja,
t.d. rúlluvéla, sem eru með ISO
BUS-tengingar. Að sjálfsögðu er svo
öryggisbelti fyrir bæði ökumann og
farþega.
Nátengt Fiat-samsteypunni
Case IH varð til sem nýtt nafn í
landbúnaðartækjabransanum þegar
Tenneco keypti landbúnaðarhluta
International Harvester (IH) sem
einkum hafði verið þekkt nafn
hér á landi fyrir jarðýtur sínar.
Tenneco sameinaði IH við fyrirtæki
sitt J.I. Case, oftast einfaldlega
kallað Case, en hét áður J.I. Case
Threshing Machine Company. Það
var upphaflega stofnað af Jerome I
Case árið 1842. Í dag er Case IH hluti
af New Holland AG og er í eigu CNH
Global sem er í fjárhagslegri eigu
Fiat-samsteypunnar á Ítalíu. Flest
öll dráttarvélafyrirtæki heimsins í
dag eru reyndar í eigu Ítala.
/HKr.
Fyrstu Chamberlain-traktor-
arnir komu á markað árið 1949.
Það ár smíðuðu feðgar, faðir og
tveir synir, ellefu dráttarvélar í
yfirgefinni skotfæraverksmiðju
og notuðu ættarnafn sitt til að
markaðssetja framleiðsluna.
Í upphafi gengu traktorarnir
fyrir tvígengisvél sem brenndi
steinolíu og hönnuð var af
Phil Irving sem seinna gat sér
gott orð fyrir hönnun á vélum
fyrir mótorhjól. Steinolíuvélin
í Chamberlain-traktorunum
reyndist ekki vel og og árið 1952
var skipt yfir í dísilvél. Við tóku
vélar frá General Motors og voru
þær notaðar í allar stærri týpur
fram til 1967.
Um miðjan sjötta áratug
síðustu aldar hóf Chamberlain
að framleiða minni traktora með
Perkins-vél. Vélarnar voru þriggja
gíra og með háu og lágu drifi og
nutu gríðarlegra vinsælda og
seldust yfir 20.000 slíkar á næstu
20 árum.
Dæmi um þrautseigju Perkins-
vélanna er að árið 1955 tók ein
slík þátt í rúmlega 9.600 kílómetra
Ástralíurallíi þar sem hún kom 30
öðrum traktorum til bjargar sem
höfðu fest sig í sandi eða bilað.
Tveimur árum seinna var sama
Chamberlain-traktornum ekið
tæplega 18 þúsund kílómetra á
ellefu dögum. Góð ending það.
Meðalframleiðsla fyrirtækisins
var 3000 dráttarvélar á ári sem taldist
lítið á þeim tíma. Árið 1970 keypti
landbúnaðartækjaframleiðandinn
John Deere 49% hlut í Chamberlain
og var þá farið að nota sams konar
vélar í báðar gerðir dráttarvéla.
Árið 1986 tók John Deere alfarið
við rekstrinum. Skömmu seinna var
framleiðslu Chamberlain-traktora
hætt þrátt fyrir að framleiðsla á
varahlutum í eldri vélar héldi áfram
í nokkur ár. /VH
Chamberlain – eitt sinn mest
selda dráttarvél í Ástralíu
Fjölskyldan frá Stóru-Mörk ásamt sölumanni Kraftvéla við Case IH 170 dráttarvélina. Talið frá vinstri; Ásgeir Ómar,
Lilja Rut og Emilía Rós Eyvindarbörn, Aðalbjörg Rúna Ásgeirsdóttir, Eyvindur Ágústsson og Dagbjartur Ketilsson,
sölumaður Kraftvéla, sem er frá þeim margfræga bæ, Brúnastöðum. Mynd / HKr
Risagróðurhúsið sem á að reisa við Grindavík:
Fjárfestingamálin enn ófrágengin
Í byrjun júlímánaðar síðastliðnum
greindum við frá því hér í blaðinu
að fyrirhuguðum framkvæmdum
við risagróðurhús, sem ætlunin
var að reisa í níu kílómetra fjarlægð
frá Grindavík, hefði seinkað um sex
mánuði frá upphaflegri áætlun.
Enn liggja fjárfestingasamningar
ekki fyrir, þótt stefnt hefði verið að
ljúka þeim málum í júlí.
Kristján Eysteinsson, talsmaður
fyrirtækisins EsBro á Íslandi, sem
hyggur á þessa framkvæmd, sagði
í viðtali við blaðið í sumar að
fjárfestingasamningar myndu liggja
fyrir í lok júlímánaðar – en þeir eru
meðal annars forsenda þess að ríkið
taki formlega afstöðu til umsóknar
um mögulegar ívilnanir til handa
fyrirtækinu.
Tíu þúsund tonn
af vistvænum tómötum
Í viðtalinu í sumar kom fram að gert
væri ráð fyrir um tíu þúsund tonna
vistvænni tómataframleiðslu á ári.
Ákveðnir skilmálar yrðu gerðir um
að framleiðslan yrði ekki, undir
nokkrum kringumstæðum, sett á
innanlandsmarkað.
Kristján segir nú að
fjárfestingamálin séu ófrágengin.
Hann segist vænta þess að
fá upplýsingar um framtíð
verkefnisins á allra næstu dögum.
/smh
Sams konar hús og fyrirhugað er að reisa við Grindavík.
Bændablaðið
Með yfirburðalestur á landsbyggðinni
(Samkvæmt lestrarkönnun Capacent)
Kemur næst út 9. október
Smáauglýsingar
56-30-300