Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
Hraustar kýr, jarðbundið fjós
Líður kúnum þínum illa í fjósinu
af völdum spennumunar eða
mikils rafsegulsviðs? Hér verður
rifjuð upp og uppfærð grein
undirritaðs frá 2002.
Vegna átaksverkefnis af hálfu
MS um bætt júgurheilbrigði er vert
að ítreka viðvörun um skaðleg áhrif
rafstraums á búpening, þó aðallega
kýr, og hugleiða nokkuð þetta mál
og gefa góð ráð til fyrirbyggjandi
aðgerða. Um þessi mál eru ýmsar
kenningar og menn eru ekki á einu
máli um hvað skiptir máli og hvað
ekki og sumt minnir beinlínis á
þjóðsögur.
Grundvallaratriði sem hafa ber í
huga er að rafmagn fer ætíð greiðustu
og stystu leið til jarðar, þ.e. um bestu
leiðnileiðina. Vitað er um nokkur
dæmi s.s. í nýju fjósi þar sem í ljós
kom að há frumutala og óskýranleg
tilvik júgurbólgu virtist m.a. vera
um að kenna lélegu jarðsambandi og
algjörlega óviðunandi sambindingu
járnavirkja og auk þess hált gólfefni
inni í mjaltabás.
Kýrnar viðkvæmar
Kýrin stendur á fjórum fótum og
langt er milli fram- og afturlappa
og er hún þar af leiðandi kjörin
til að tengja saman leiðandi hluti,
svo sem vatnsbrynningartæki og
flórrist, milligerði og hliðgrind
eða mjaltaþjón og stýrihlið svo
dæmi séu tekin. Jafnvel milli arms
og mjaltaþjóns getur myndast
spennumunur ef sambinding er ekki
nægilega trygg. Einnig er ljóst að
kýrin getur myndað smá hleðslu af
básmottum og dýnum og afhleðst
þá þegar hún snertir járn eða nær
jarðsambandi líkt og við þekkjum
sjálf.
Málið er að kýrnar eru mun
viðkvæmari fyrir spennumun en
maðurinn t.d. vegna fleiri útlima,
blautra grana, byggingarlags og
mun næmari skynfæra. Sem dæmi,
kýr með blautar granir sem snertir
milligjörð eða vatnsdall og stendur
með blautar afturlappir á flórristum
getur auðveldlega orðið fyrir
spennumun milli þessara járnvirkja.
Hún skynjar og hefur vanlíðan af
jafnvel örfáum millí-voltum, og
verður óróleg, vansæl og mun
líklegri til þess að verða nytlág,
veikindasækin og lystarlaus.Þetta
getur síðan leitt til streitu þannig
að kýrin verður veikari fyrir alls
kyns áreiti þ.m.t. júgurbólgu, þ.e.
ónæmiskerfi hennar verður veilla
og verr sett hvað varðar nýsmit
júgurbólgusýkla.
Fjölmörg leiðandi virki í fjósum
Eins eru legubásafjósin með allar
sínar básaeyjar, milligerði, stýrihlið,
mjaltaþjóna, vatnsbrynningu, kör og
vatnsdalla, sköfuþjóna (flórgoða)
eða flórsköfur sem stöðugt eru á
ferðinni, legubásafjósin eru því ekki
síður en gömlu básafjósin kjörin
fyrir spennumunarvandamál sé ekki
rétt að málum staðið. Þarna skiptir
auðvitað máli hvort skepnan nær að
snerta tvö leiðandi virki samtímis
en þó eru hugsanlega líkur fyrir því
að spennumunar og segulsviðs gæti
gætt milli frístandandi básaeyju og
flórgólfs vegna raka og bleytu.
Það má örugglega fullyrða
að með því að eyða nokkrum
aukakrónum í að vanda til verka
hvað varðar jarðbindingu og
ekki síst sambindingu megi búast
við margföldum ágóða til baka
í formi meiri mjólkur, minni
dýralækniskostnaðar, betra heilsufars
kúnna almennt og sennilega oft fleiri
mjaltaskeiða þ.e. heilbrigð kýr lifir
lengur.
Hvað á að gera?
Það sem kúabóndinn ætti að gera er
eftirfarandi:
Fá rafvirkja eða tæknimann sem
hefur til þess tæki og kunnáttu að
mæla hvort jarðbinding fjóss og
mannvirkja er nægileg. Þetta er
vanalega gert með s.k. megger og
hringrásarviðnámsmæli en svo má
auðveldlega sem forkönnun sjá með
skoðun og rannsókn kunnáttumanns
hvort nægilega vel sé bundið,
hreinlega líta eftir bindileiðslum,
aðstæðum og samsetningum
járnavirkjana og leiða þannig líkur
á að nægileg sambönd og bindingar
séu fyrir hendi.
Það þarf að skoða hvort
eingöngu sé um að ræða svokallaða
sökkuljarðbindingu eða eingöngu
jörð í kapli inntaks og ef svo er
að reka þá einnig niður í gljúpan
jarðveg úti nokkur stafskaut ekki
undir 1,5 –2,0 m að lengd og leiða
frá þeim 25–50 qvaðrat fjölþátta
jarðleiðslu að safnskinnu fyrir
jörð í rafmagnstöflu og að helstu
járnavirkjum þannig að rofni eitt þá
séu a.m.k. 2–3 önnur sem gefa gott
jarðsamband, þ.e. jörð úr mörgum
áttum, nokkurs konar „stjarna“.
Einnig má fá mjög gott
jarðsamband með því að grafa
niður 20–30 metra af sverum
óeinangruðum þráð (50–70 qvaðrat)
ca 1 metra niður í gljúpan jarðveg.
Frá töflu þarf síðan sérstaka
jarðleiðslu að vatnsinntaki og að
fyrsta leiðandi virki í fjósinu. Síðan
þarf, og þetta er áríðandi og á við
básafjós með mjaltakerfum eða
legubásafjós með mjaltaþjónum
eftir því hvað á við, að binda saman
allt leiðandi járnavirki með 16–25q
leiðslu, þ.e. vatnslagnir, milligjarðir
á básum sem og í mjaltabás, soglögn,
flórristar, ristar í mjaltabás ef þær
eru þar sem kýr standa í mjöltum,
mjaltaþjón, drullugrindina undir
mjaltaþjóni (Lely), stýrihlið, stök
millivirki, básamilligerði á eyjum,
grindur í gjafaaðstöðu, gjafakerfi
(weelink), hleðslustöð fyrir flórgoða
og önnur sjálfstætt standandi hlið
og grindverk. Þar sem lagnir og
milligerði eru samansoðnar eða
fest saman á annan tryggilegan hátt
nægir að jarðbinda þau virki hvort
í sinn enda. Ef flórristar í básafjósi
eru samansoðnar eða ná góðri leiðni
hvor við aðra er nægilegt að binda
þær saman við milligjarðirnar í
báða enda hverrar raðar. Þá þarf
að binda á a.m.k. tveimur stöðum
í loftklæðningu ef hún er úr járni
eða stáli og alla járnbita niður veggi.
Þakklæðningu, strompa, ef í er
vifta, og utanhússklæðningu úr járni
ætti einnig að jarð- og sambinda.
Láta huga að gömlum fluorsent-
lömpum og binda þá til jarðar
ef þarf ásamt því að þéttatengja
spóluna (ballestina) í ljósinu svo þeir
trufli síður og angri skepnur. Nýrri
gerðir fjósljósa með ofurperum eru
vanalega vel frá gengin séu þau sett
upp af fagmönnum.
Stundum reynist erfitt
að koma á sambindingu á
frístandandi básaeyjum en
venjulega þarf þá að fara
með bindinguna frá bita í
lofti, eða allavega leiðslan
verður að koma ofan frá í
járnröri og þarf að „gorma“ hana þar
sem hún kemur út úr rörinu þannig
að hún þoli hreyfingu og snus gripa,
venjulega er þræðinum snúið utan
um grannt rör eða sívalning og
þannig búinn til gormur.
Vera vakandi fyrir einkennum
Í öllum fjósum á reglulega að prófa
virkni útsláttarrofans (lekastraums-
liðans) í rafmagnstöflunni en næmni
hans á að vera minnst 30 mA.
Prófunarhnappur er á liðanum.
Mikill raki og bleyta í fjósi
og mjaltaaðstöðu eykur líkur
á spennumun þannig að góð
loftræsting er nauðsynleg. Þar sem
kýr sýna merki vanlíðunar, eða eru
taugatrekktar, éta illa, há frumutala
í hjörðinni, of mikið um júgurbólgu
og óútskýranleg nytlægð, ef allt
þetta eða einn af þessum þáttum
er gegnumgangandi í fjósinu ætti
hiklaust að kanna jarðsambönd og
sambindingar járnavirkja.
Binni Snorra og aðrir snillingar
Nokkrir aðilar gefa sig út í mælingar
á þessum þáttum og er þekktastur
Brynjólfur Snorrason í Mið-
Samtúni sem unnið hefur mjög gott
brautryðjandastarf sem lofsvert
er. Því er vert fyrir bændur að fá
Brynjólf eða aðra sem kunna til
verka til að kíkja á jarðsambönd og
sambindingar. Eins er hægt að fá
kunnáttumenn til að hreinlega skoða
með berum augum sambindingar
og gerð jarðskauta svona sem
forkönnun.
Varðandi áhrif skaðlegs eða
sannarlegs rafsegulsviðs utandyra
af einhverjum orsökum er vitað
að allsterkt rafsegulsvið getur
verið utanhúss í afmörkuðum
radíus umhverfis háspennuvirki
(spennustöðvar) og undir háspennu-
línum og er því ástæða til að byggja
ekki fjós undir hápennulínum eða
í nálægð háspennuvirkja þar sem
líklegt er að það geti
aukið á vanlíðan skepna
og manna.
Það er fjöldi
rafsegulsviða í og upp úr
jörð sem við göngum á og
sem auðvelt er að finna
og mæla, en erfiðara að
meta hvort það gerir skepnum og
mönnum einhverja skráveifu eða sé
sárameinlaust.
Hvaða áhrif menn eru að mæla
utanhúss þegar engin háspennuvirki
eru nálæg er alls ekki vitað né heldur
hvort þar er um að ræða skaðlegt eða
meinlaust segulsvið.
Segulsvið mælist í staðbundnum
raflögnum t.d. inni í fjósum en ef vel
er jarðbundið og sambundið verður
það ólíklega til óþæginda fyrir
skepnur og menn og mun hættulegri
er spennumunur (útleiðsla) sem
orsakast af s.k. „flökkustraumum“
sem í einföldun eru þau amper
eða brot úr amperi (straum) sem
fer á flakk eftir bakrásum í t.d.
fjórleiðarakerfi (stofn) þar sem eru
t.d. 3x380 volta fasar og núll, en núll
og jörð sambundið (núllað kerfi) og
er því skynsamlegra að nota ævinlega
fimmleiðara stofn, þ.e. núll og jörð
aðskilin, þannig að flökkustraumar
asnist ekki núllleiðina til baka heldur
jarðsambandsleiðina.
Með góðri sambundinni
jarðtengingu í fjósum og öðrum
skepnuhúsum er vísast að bændur
geti verið nokkuð vissir um að
gripir þeirra búi við kjöraðstæður
með tilheyrandi vellíðan og aukinni
hreysti.
Kristján Gunnarsson
ráðgjafi hjá Bústólpa
Brynjólfur Snorrason hefur unnið mjög gott brautryðjandastarf.
Málið er að kýrnar eru mun viðkvæmari fyrir spennumun en maðurinn.
Vandaður hornsófi
með leðri á slitflötum,
massív trégrind.
Stærð; 2,78x2,27, hægt að snúa.
Verð: 365 þús. Einnig til með svörtu
áklæði á 295 þús eða sem sófasett
3+1+1, verð: 385 þús.
Heimilisprýði húsgagnaverslun
v. Hallarmúla 108 Reykjavík
Sími 553-8177 - heimilisprydi@simnet.is
Heimilisprydi.is