Bændablaðið - 25.09.2014, Side 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
liklegur@internet.is
Hjörtur L. JónssonÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Margir eru á Facebook til
að fylgjast með fjölskyldu og
vinum ásamt að vera meðlimir
í alls konar hópum sem tengist
áhugamáli hvers og eins, besta
mál og oft ágætis skemmtiefni.
Nokkrir hópar á Facebook
tengjast landbúnaði, en einhver
stærsti þeirra sem ég hef séð er
hópur sem er með ýmislegt tengt
landbúnaði til sölu (Landbúnaður
til sölu/ óska eftir), fín síða sem að
mestu er að auglýsa gömul tæki
og oft úr sér gengin. Einnig hef
ég rekist á síður sem eru meira
lokaðar og ætlaðar fyrir smærri
hópa eins og einn hópur sem mér
var boðið í sem eru hjálparmenn
við smalamennsku á bóndabýli
hjá vinum mínum. Skemmtileg
síða, sett upp af bændahjónum á
Suðurlandi með mikið af myndum
úr ævintýrum sem tengjast
smalamennsku.
Facebook ekki bara vinsæl á
Íslandi
Erlendis eru svipaðar síður um
ýmis mál sem tengjast landbúnaði
og má þar nefna síðu sem birtir
aðallega myndir af seinheppnum
bændum við störf sín og nefnist
Farming Accidents. Bresku
bændasamtökin eru svo með síðu á
Facebook sem þeir nota til að koma
fréttatengdu efni frá samtökunum
(NFU Online). Írar eru með síðu,
sem nefnist Stop Farm Accidents,
þar sem þeir koma á framfæri
ýmsum fróðleik. Persónulega er
ég mjög hrifinn af forvarnasíðu
Íra sem rekin og fjármögnuð er
af Írsku heilbrigðisstofnuninni
HSE (http://www.hsa.ie). Í síðasta
forvarnapistli, þar sem ég skrifaði
um hjálmlausa strákinn með
farþegana tvo í kringum réttirnar,
rakst ég á þessa síðu á Facebook:
Kids/Teens Killed In Farm Related
Accidents. Ef vilji er fyrir hendi
þá er hægt að finna ótal síður sem
eru um forvarnir í landbúnaði á
Facebook. Einnig er mikið efni
sem má finna á veraldarvefnum
um forvarnir úti í heimi.
Á þessu eina ári sem ég hef
skrifað um forvarnir hefur mér oft
dottið í hug hvort ekki væri full
þörf fyrir síðu á Facebook þar sem
hægt væri að deila reynslusögum
sem mættu hugsanlega koma í
veg fyrir slys og fjárhagslegt tjón
sem tengjast landbúnaði. Með smá
vakningu í forvarnamálum má gera
kraftaverk, en fyrir nokkru kvartaði
ég yfir því að hafa ekki enn séð
slökkvitæki áfast við dráttarvél.
Stuttu eftir þann pistil fékk ég
senda mynd sem gladdi mig mikið.
Það á ekki að vera feimnismál að
benda á það sem betur má fara,
s.s. að nota hjálm á hestbaki og
fjórhjóli, klæðast áberandi vestum
við smalamennsku, hafa ljósabúnað
í lagi á dráttarvélum og fleira.
Máttur Facebook
Dráttarvél með slökkvitæki.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
2
Árleg smákökukeppni Gestgjafans og KORNAX
fer fram 20. október nk. Skilyrði er að í smá-
kökunum sé bæði KORNAX hveiti og súkkulaði
frá Nóa Síríus. Einnig má hver smákaka ekki vera
stærri en 5 cm í ummál. Verðlaunauppskriftirnar
munu birtast í kökublaði Gestgjafans sem kemur
út 7. nóvember. Vinnings smákakan verður í boði
á jólahlaðborði Argentínu.
SMÁKÖKUSAMKEPPNI
GESTGJAFANS OG KORNAX
SÚKKULAÐISMÁKAKA ÁRSINS 2014
Vegleg verðlaun
sjá nánar á www.kornax.is
Verkefna- og rannsóknasjóður
Fljótsdalshrepps og Landsbankans
Verkefna- og rannsóknasjóður Fljótsdalshrepps og Landsbankans auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum árið 2014.
Veittir verða tveir aðalstyrkir, kr. 300.000-, og einn verkefnastyrkur, kr. 100.000-. Sjóðsstjórn getur
ákveðið þegar umsóknir liggja fyrir að eingöngu verði veittir styrkir til aðalverkefna ársins og hækka þá
þær styrkupphæðir í kr. 350.000.
Heimilt er að fella úthlutun ársins niður telji sjóðsstjórn engar umsóknir hæfar.
Úthlutað er til verkefna sem tengjast Fljótsdalshreppi, eða verkefna er sjóðsstjórn telur að nýtast muni
sveitarfélaginu. Háskólanemar með lögheimili í Fljótsdalshreppi er sækja um fyrir verkefni sem metin
eru hæf af sjóðsstjórn hafa forgang umfram aðra umsækjendur.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Fljótsdalshrepps, Végarði, 701 Egilsstaðir, fyrir 15. október, eða á
netfangið fljotsdalshreppur@fljotsdalur.is. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á
heimasíðu Fljótsdalshrepps www.fljotsdalur.is