Skírnir - 01.09.1994, Page 98
36B
ADOLF FRIÐRIKSSON
SKÍRNIR
3. Fjósatunguþing
I Ljósvetninga sögu segir að þing hafi verið haldið í Fjósatungu.42
Sem fyrr leituðu fornfræðingar fyrri tíma að vísbendingum um
þinghaldið og fundu örnefnin Búðargil, Búðarhóll og Búðar-
höfði. Þar nærri fundu þeir nokkrar ferhyrndar tóftir og eina
hringlaga sem þeir töldu vera dómhring.43
4. Ljósvetningaleið
I Ljósvetninga sögu, Reykdæla sögu og Njáls sögu er Ljósvetn-
ingaleið nefnd, en lega þingstaðarins ekki.44 A 19. öld mun bónd-
inn á Þórðarstöðum í Fnjóskadal hafa lagt til að örnefnið Leiðar-
nes vísaði til þess að þar hafi verið haldið leiðarþing, fremur en að
nesið lægi svo nærri leið vegfarenda.45 Á Leiðarnesi hafa menn
fundið nokkra tugi tófta og aðkenningu að dómhring og getið sér
til að þar hafi hin týnda Ljósvetningaleið verið haldin.46
5. Reykdælaleið
I Ljósvetninga sögu er Reykdælaleið nefnd án staðarlýsingar og
eru engar aðrar heimildir um þing þetta.47 Samkvæmt munnmæl-
um í Reykjadal var haldið leiðarþing á Leiðarhóli. Þar má sjá
nokkrar tóftir og gerði sem fornfræðingar hafa talið vera þing-
minjar.48
Til að átta okkur á gildi kenningarinnar um þingstaði, þarf að
svara þremur lykilspurningum: Hvað segja heimildirnar um þessa
meintu þingstaði? Hvaða ályktanir má draga af rannsóknarsögu
þeirra? Hver er aðferðin við að bera kennsl á þingstaði?
42 íslenzkfornrit'X.,\4.
43 P. E. Kristian Kllund: tilv. rit, 110-112; Brynjúlfur Jónsson: „Rannsóknir á
Norðurlandi sumarið 1900.“ Árbók hins íslenzka fomleifafélags 1901 (1901),
15-16.
44 íslenzk fornrit X, 7, 181, 215; íslenzk fornrit XII, Einar Ól. Sveinsson gaf út
(Reykjavík 1954), 303.
45 Brynjúlfur Jónsson: tilv. st. 1901, 14-15.
46 P. E. Kristian Kálund: tilv. rit, 112; Brynjúlfur Jónsson tilv. st. 1901, 14-15;
Daniel Bruun: Fortidsminder og Nutidshjem paa Island [2. útg.]. (Kaup-
mannahöfn 1928), 104.
47 Islenzk fomrit X, 7.
48 Brynjúlfur Jónsson: tilv. st. 1901,13-14.