Skírnir - 01.09.1994, Síða 163
SKÍRNIR
AÐ SYNGJA Á ÍSLENSKU
433
Passíusálmanna oft meira tónlist hrynbragarins en einföldu takt-
slagi rímnaháttanna.
Sé lestur sálmanna undirbúinn af næmi á misgengi hinna ólíku
bragradda, sé lesandinn vitandi um bakgrunn og forgrunn rytm-
ans, bragfræðilegt og framburðarlegt gildi orðanna, fæðist tónlist-
in af sjálfri sér þegar lesið er. Allur tónlistarlegur og tilfinninga-
legur kraftur sálmanna geislar þá í upplestrinum.
Svo litið sé á fáeitt það sem magnar hljóm kvæðisins verður
fyrst fyrir okkur bragliðaskyn skáldsins. Við sáum að í hrynjandi
rímnaháttanna er naumast hægt að tala um raunverulega þríliði.
Ef snurðulaust er kveðið renna þeir þar saman við rytma tvílið-
anna og enginn afgerandi lengdarmunur er á þessum tveimur.
Hallgrímur býr til nýjan þrílið sem hvorki hlýðir skipulagi
áherslubragarins og spyrðir saman 2. og 3. atkvæði, né festir stað-
setningu langra og stuttra atkvæða eins og í hrynbrag. Hann virð-
ist öllu heldur vera óræð þríliða eining, einfaldlega þrjú atkvæði.
Galdurinn felst í því að áherslur innan þessarar einingar og raun-
veruleg lengd hennar eru síbreytilegar. Lesandinn kemst sjaldan
upp með að renna sér á honum eins og í ferskeytlu. Við getum
aldrei vitað fyrirfram hvernig hann hljómar og hvar áherslurnar
standa. Þetta skilyrðir svo framburðinn að þríliðurinn breiðir úr
sér, verður eins og tímalaus eyja í straumi frásagnarinnar og gerir
okkur að vera stöðugt vakandi fyrir merkingu orðanna. Stundum
er hann aðeins liður í stærra samhengi, stundum virðist hann
draga til sín athyglina og inniheldur næstum heila setningu.
Þessi tilhögun leiðir jafnframt af þeim ásetningi skáldsins að
hlaða textann stundum eins mikilli merkingu og hann fær borið.
Þrjú atkvæði eru þrjú dýrmæt hólf að fylla.
Óþarft ætti að vera að hafa dæmin mörg: „Eg spyr, hvað veld-
ur, ódyggð flest“ (28.6.1), '„tvenns slags sverðs glöggt við gáum“
(7.8.3), j^Sverð slíðra, Símon, þú“ (7.5.8), „Heiður, lof^dýrð á
himni og jörð“ (3.18.1), „viska, makt,1 speki og lofgjörð stærst“
(50.18.2).
Fáein dæmi um fjölbreytt svipmót þríliðanna, auk þess venju-
lega (— U U) (hér merkjum við eftir framburði, en ris bragarins
ætti að sjálfsögðu bara að vera eitt):