Morgunblaðið - 11.07.2015, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 1 1. J Ú L Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 161. tölublað 103. árgangur
6
Við drögum eftir
daga
í áskriftarleik
Morgunblaðsins
VÍKKAÐU
HRINGINN
ÍMYNDUÐ
ÆVISAGA Á
ÍSLANDI SÖGÐ
KLERKUR Á
KANTINUM
HJÁ GEIR
MAGDEBURG 6NINA ZURIER 46
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Á um tíu ára tímabili upp úr miðri
síðustu öld lenti Magnús Jónsson
þrisvar í sjávarháska. Fyrsta skipið
var nærri sokkið langt frá Íslands-
ströndum vegna leka. Annað skipið
fékk í sig tundurdufl og sökk og það
þriðja strandaði í klettafjöru.
Ýtarlega er rætt við Magnús í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins en
þar segir hann sögu sína í fyrsta
sinn opinberlega.
Þegar dagblöð eru skoðuð frá
sjötta áratugnum eru forsíður blað-
anna reglulega með fréttum um
skipskaða og manntjón í hafi. Það
var kannski þess vegna sem ekki var
getið um það í blöðunum að togarinn
Maí hefði næstum sokkið langt frá
landi á síðari hluta 5. áratugarins.
Togarinn hefði „farið niður“
„Maí hefði farið niður ef við hefð-
um verið með fullfermi. Við vorum
hins vegar aðeins með hálffermi.
Það kom aldrei neitt um þetta í blöð-
unum,“ segir Magnús.
Einnig er rætt við Hákon Jónas
Hákonarson, fyrrverandi sjómann, í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Faðir hans, sem hét sama nafni,
drukknaði árið 1956, þegar Hákon
Jónas var níu mánaða. Þrjátíu og
fjórum árum síðar, í ágúst 1990,
bjargaði Hákon Jónas lífi félaga síns
þegar báturinn Vöggur sökk vestan
við Þjórsárósa, aðeins 60-70 mílur
frá staðnum þar sem faðir hans
drukknaði. Hákon Jónas segir slysið
hafa verið mikið áfall, en hann og fé-
lagi hans voru við dauðans dyr. „Ef
ég má tala hreint út er eins og það
slökkni á einhverju þegar svona ger-
ist. Ég varð alveg kaldur í tíu ár,“
segir Hákon Jónas sem hvetur sjó-
mennina sem komust lífs af úr sjó-
slysinu úti af Aðalvík á þriðjudaginn
var til að vinna rétt úr því. Erfið
reynsla hans sé víti til varnaðar.
Slapp þrisvar úr sjávarháska
Magnús Jónsson upplifði mikil örlög á árum sínum sem sjómaður við Ísland
Morgunblaðið/Kristinn
Sjómaður Magnús Jónsson kynntist
á yngri árum vel hættum hafsins.
Eydís Eyjólfsdóttir áhugaljósmyndari myndaði þennan
spaka lunda í björgunum við Látrabjarg í vikunni. Ey-
dís lagðist á jörðina og skreið eins nálægt og hún
komst, svo manninum hennar stóð ekki á sama, enda
200 metra þverhnípi niður. „Halldór, maðurinn minn,
hélt í ökklann á mér, honum stóð ekki á sama. Það var
svolítið hátt niður. Til að ná þessari mynd þurfti ég að
mjaka mér fram á bjargbrúnina,“ segir Eydís.
Ljósmynd/Eydís Eyjólfsdóttir
Lundinn sem starir á hafið
Veiðitölur eru víðast hvar betri
en það hörmungarsumar sem lax-
veiðivertíðin í fyrra reyndist vera.
Eins og staðan var 8. júlí sl. voru
komnir 630 laxar á land í Norðurá á
15 stangir en Blanda er næst-
aflahæsta áin með 515 fiska.
Þverá-Kjarrá fær bronsið með
488 fiska. Og augu manna eru á
Norðurá, þar mætir hann venjulega
fyrst.
„Göngurnar hafa verið rosalega
kröftugar síðustu daga. Veiðimað-
ur sem lauk veiðum í gær, og veitt
hefur mikið í ánni gegnum árin,
hringdi áðan og óskaði okkur til
hamingju. Hollið sem endaði á há-
degi í gær landaði 202 löxum á
þremur dögum,“ segir Einar Sig-
fússon, sölustjóri í Norðurá. »14
Veiði víða betri en á
sama tíma í fyrra
Við Norðurá Bubbi Morthens og Elvar Fið-
riksson leiðsögumaður mynda aflann.
Morgunblaðið/Einar Falur
Reykjavíkurborg hefur auglýst
til sölu húsin við Lækjargötu 2 og
2b og Austurstræti 22. Húsin eru
tengd með sameiginlegum kjallara
og seld sem ein eining.
Þessar byggingar urðu eldi að
bráð árið 2007 og í kjölfarið keypti
borgin byggingarreitinn. Voru hús-
in endurbyggð í sem upprunaleg-
astri mynd. Samtals eru húsin um
2.400 fermetrar að flatarmáli og
hýsa í dag veitingastaði, skrif-
stofur, listaháskóla og verslun.
Samkvæmt auglýsingu Eignamiðl-
unar er brunamótamat húsanna um
1.600 milljónir króna. »4
Lækjargötuhús
komin í sölu
Fjölgun ferðamanna til Vestmanna-
eyja hefur verið svo mikil að undan-
förnu að nú er svo komið að eyja-
skeggjar fá vart pláss í Herjólfi til
og frá eyjunni. Hafa farþegar í
Herjólfi í júnímánuði aldrei verið
fleiri og voru 48.781 í ár. Er það
fjölgun um tæplega 2.000 farþega.
„Það gengur ekki að álagið á
Herjólf sé orðið slíkt að heimamenn
geti ekki notað skipið þegar á þarf
að halda, þetta er vegurinn heim til
okkar og frá okkur,“ segir Elliði
Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, og bendir á að ein-
faldast væri að taka ákvörðun um
að sigla skipinu fleiri ferðir á milli
lands og Eyja. »6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigling Heimamenn komast vart í Herjólf.
„Vegurinn“ til Eyja
tepptur af ferðafólki
Landsbankanum
hafa staðið til
boða aðrir og
ódýrari lóðakost-
ir en sá sem varð
fyrir valinu, við
hliðina á Hörpu,
undir nýjar höf-
uðstöðvar. Mann-
verk var eitt
þeirra fyrirtækja
sem buðu bank-
anum lóð en var hafnað.
Hjalti Gylfason, framkvæmda-
stjóri Mannverks, segist ekki sjá
nein rök sem mæla með því að ríkis-
banki byggi á svo dýrum stað sem
lóðin við Austurhöfn er. Var hún
keypt á 957 milljónir króna. »12
Landsbankinn hafn-
aði ódýrari lóðum
Bærinn hefur hýst
bankann lengi.