Morgunblaðið - 11.07.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Verslunarmannahelgin á
Mallorca
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444
Verð frá94.900 kr.*
*m.v. 2 fullorðna og 2 börn í eina viku
30. júlí. Verð fyrir 2 fullorðna 134.900 kr.
Einnig í boði 23. júlí í 2 vikur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hinn 10. júlí fyrir 200 árum var Hið íslenska
biblíufélag stofnað á biskupssetrinu að Aðalstræti
10 í Reykjavík. Af því tilefni var í gær haldin guðs-
þjónusta í Dómkirkjunni en að henni lokinni var
afhjúpaður skjöldur sem settur hefur verið á hús-
ið. Á honum er þess m.a. getið að félagið hafi þar
verið stofnað. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, og Þröstur Ólafsson, stjórnarformaður
Minjaverndar, sviptu hulunni af skildinum.
Skjöldur afhjúpaður á gamla biskupssetrinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Athöfn við Aðalstræti 10 í tilefni 200 ára afmælis Hins íslenska biblíufélags
Ísak Rúnarsson
isak@mbl.is
Undanfarna daga hefur töluverður
fjöldi lögmanna öðlast réttindi til
fasteignasölu en samþykkt var á
Alþingi þann 30. júní að breyta
lögum um fasteignasala.
Breytingarnar höfðu m.a. í för
með sér að lögmenn geta ekki
lengur öðlast réttindi til fasteigna-
sölu á grunni lögmannsréttinda
sinna heldur þurfa þeir nú að setj-
ast á skólabekk til þess að geta
fengið réttindin.
Lögin hafa hins vegar ekki verið
birt og því ekki tekið gildi. Í Lög-
birtingablaðinu kemur fram að 28
löggildingar hafa farið fram það
sem af er júlímánaði en til sam-
anburðar var ein löggilding í júní,
þrjár í maí og tvær í apríl á þessu
sviði.
Flestir þeirra sem hafa fengið
löggildingu réttinda sinna í júlí eru
lögmenn og því virðast margir
þeirra ætla að grípa gæsina meðan
hún enn gefst.
Fyrrverandi hæstaréttardóm-
ari í löggildingu
Athygli vekur að af þeim 28 lög-
gildingum sem birtar hafa verið í
Lögbirtingablaðinu hafa 16 þeirra
verið á réttindum lögmanna á lög-
mannsstofunni LEX. Meðal þeirra
sem þar starfa og fengið hafa lög-
gildingu eru Aðalsteinn E. Jón-
asson, Kristín Edwald, Heiðrún
Lind Marteinsdóttir og Karl Ax-
elsson en hann var einnig settur
hæstaréttardómari þar til fyrir
skemmstu.
Lögmannafélagið hefur gagn-
rýnt breytingarnar á lögunum en
Grétar Jónasson, framkvæmda-
stjóri Félags fasteignasala, segir
breytingarnar af hinu góða. Þær
skýri út hlutverk fasteignasala og
tryggi neytendum betri þjónustu.
Grétar telur breytingarnar þó
ekki endilega til þess fallnar að
auka tekjur fasteignasala, þó að
tíminn verði að leiða það í ljós, en
lögin munu þó gera þá skylda til
þess að sinna stórauknu hlutverki
við miðlun fasteigna.
Lögmenn flykkjast í löggildingu
Lagabreytingar á Alþingi um störf fasteignasala hafa sent lærða lögmenn á
skólabekk á ný Flestir af LEX Lögmannafélagið gagnrýndi breytingarnar
Fasteignasala Breytingar hafa orð-
ið á starfsskilyrðum fasteignasala.
Morgunblaðið/Ómar
Kona á sextugsaldri var í gær dæmd
í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið
unnusta sínum til níu ára að bana
með hnífstungu í Hafnarfirði 14.
febrúar sl. Konan neitaði allan tím-
ann sök í málinu. Þegar lögreglan
kom á vettvang var ákærða, dóttir
hennar og 15 ára barnabarn á heim-
ilinu. Eftir að lögregla hafði rætt við
þá sem staddir voru á vettvangi var
tekin sú ákvörðun að handtaka
ákærðu og færa hana á lögreglustöð
vegna gruns um að hún hefði átt þátt
í andláti sambýlismanns síns.
Krufningin leiddi í ljós að dánaror-
sök var blæðing út um sár á efra
lungnablaði hægra megin. Sárið í
lunganu opnaði engar stærri æðar.
Engu að síður var að finna mikið
magn fljótandi og storknaðs blóðs í
brjóstholi hægra megin. „Af þessum
sökum er unnt að ganga út frá því að
nokkur tími hafi liðið á milli tilkomu
sársins og andlátsins. Hugsanlega
hafi liðið 30 mínútur þar á milli,“ seg-
ir í dómnum yfir konunni.
Drakk tvo bjóra um morguninn
Parið sat að drykkju langt fram á
laugardagsmorgun en í dómnum
segir að hin dæmda hafi vaknað
klukkan 06.00, hringt í vinnuna sína
og tilkynnt að hún kæmi ekki. Hún
hafi lagt sig en vaknað skömmu síðar
og drukkið tvo bjóra. Unnustinn hafi
svo viljað fara í Bónus um leið og
opnað var þar. Hin ákærða greindi
frá að hinn látni hefði fengið sér tvö
vodkastaup og verið mjög ölvaður
þegar hann fór. Hin ákærða varð eft-
ir og svaf. Þegar hún vaknaði var
hann látinn. Lögreglan var kölluð til
um kl. 15 þann 14. febrúar sl.
Héraðsdómur telur atburðarásina
um morguninn vera afar óljósa.
Hann telur sannað svo ekki verði vé-
fengt með skynsamlegum rökum að
ákærða hafi veist að sambýlismanni
sínum með hnífi og stungið hann
þannig að hann hlaut bana af.
benedikt@mbl.is
Kona dæmd í 16 ára
fangelsi fyrir manndráp
Neitaði ávallt sök 30 mínútur liðu frá stungu til andláts
Sigurður Ingi
Þórðarson, betur
þekktur undir
nafninu Siggi
hakkari, hefur
verið ákærður
fyrir brot gegn
níu drengjum,
meðal annars
kynferðisbrot.
RÚV greindi frá
þessu í gær-
kvöldi.
Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir
Sigurði, sem féll í Hæstarétti 5. nóv-
ember síðastliðinn, kom fram að lög-
reglan væri að rannsaka meint brot
hans gegn 11 drengjum. Tvö mál
enduðu ekki með ákæru. Munu brot-
in gegn drengjunum varða þau
ákvæði hegningarlaga er snúa að
nauðgun, samræði við börn undir 15
ára aldri, tælingu barna til samræðis
og fégreiðslu fyrir vændi og vændi
barns.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Sigurður kemst í kast við lögin en á
síðasta ári var hann dæmdur fyrir
blekkingar eftir að hann lofaði 17
ára gömlum dreng, sem hafði verið
tekinn við ölvunarakstur, að hann
gæti látið kæruna hverfa gegn sam-
ræði. Geðlæknir sem gerði rannsókn
á Sigurði telur hann sakhæfan en
siðblindan, samkvæmt gæslu-
varðhaldsúrskurðinum.
Grunur um
brot gegn
níu piltum
Sigurður Ingi
Þórðarson
Siggi hakkari sið-
blindur en sakhæfur
Viðræðunefnd Bandalags háskóla-
manna (BHM) afhenti gerðardómi í
gær þau gögn sem lögð hafa verið
fram af hálfu BHM í viðræðunum
við ríkið. Einnig voru lagðar fram
18 möppur af aðildarfélögum BHM.
Næsti fundur er boðaður á
fimmtudaginn, en þá rennur út
frestur samninganefndanna til að
gera athugasemdir við kröfugerð-
irnar. Gerðardómur hefur frest til
15. ágúst næstkomandi til að
ákveða kaup og kjör félagsmanna
BHM, samkvæmt verkfallslögunum
sem Alþingi samþykkti 13. júní síð-
astliðinn.
Kveðinn verður upp dómur í máli
BHM gegn íslenska ríkinu á mið-
vikudag klukkan 14 en málið fékk
sérstaka flýtimeðferð fyrir dóm-
stólum. benedikt@mbl.is
Ekkert sumarfrí hjá
samninganefnd BHM