Morgunblaðið - 11.07.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
ÚTSALA - ÚTSALA
30–50% afsláttur af völdum vörum
Gríptu tækifærið!
Sími: 528 8800
drangey.is
Smáralind
Stofnsett 1934
Töskur
Hanskar
Seðlaveski
Ferðatöskur
Tölvutöskur
Belti
Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Kíktu inn á drangey.is
Framkvæmdastjórn Evrópusam-bandsins sagði frá því, eftir að
Grikkir höfðu í þjóðaratkvæði hafn-
að kröfum sambandsins, að sam-
bandið virti niðurstöðuna. Þessi
óvænta virðing ESB
fyrir atkvæða-
greiðslu í aðildarríki
kom á óvart enda
reyndist hún af öðr-
um toga en gengur
og gerist utan Bruss-
el.
Um svipað leytikom nefnilega
frá ESB, nánar til-
tekið frá Valdis
Dombrovskis, sem
fer með málefni evr-
unnar, að spurningin
sem borin hefði ver-
ið undir grísku þjóð-
ina hefði hvorki verið rétt efnislega
né lagalega. Og síðustu daga hefur
hvorki farið framhjá Grikkjum né
öðrum með hvaða hætti niðurstaða
kosninganna var virt.
Í gær kom fram eftir samtöl for-sætisráðherra Íslands og ráða-
manna ESB að sambandið virti að
fullu ákvarðanir stjórnvalda hér um
að vilja ekki að Ísland sé umsókn-
arríki. Ekki hefur verið útskýrt hvað
í þessari virðingu felst, en hún hefur
þó ekki dugað enn til að ESB lýsi því
yfir að Ísland sé ekki umsóknarríki
og að aðildarferlið sem sett var í
gang árið 2009 hafi enga þýðingu
lengur.
Varaþingmaður Pírata og fyrrver-andi starfsnemi við Evr-
ópuþingið, Ásta Helgadóttir, sagði í
viðtali í vikunni að utanríkisráðherra
hefði ekki náð að draga Ísland út sem
umsóknarríki því að það sé ekki
hægt, „það þarf að semja sig út“.
Getur verið að þetta sé rétt túlkuná virðingu ESB fyrir afstöðu ís-
lenskra stjórnvalda?
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
ESB virðir ákvarð-
anir á sinn hátt
STAKSTEINAR
Ásta Guðrún
Helgadóttir
Veður víða um heim 10.7., kl. 18.00
Reykjavík 10 skúrir
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 7 léttskýjað
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 25 heiðskírt
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 17 skúrir
Glasgow 21 léttskýjað
London 26 heiðskírt
París 27 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 18 heiðskírt
Vín 24 léttskýjað
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 31 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 26 heiðskírt
Montreal 23 léttskýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 25 skýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:30 23:38
ÍSAFJÖRÐUR 2:48 24:29
SIGLUFJÖRÐUR 2:28 24:15
DJÚPIVOGUR 2:49 23:17
Hlýindin undanfarna daga láta í minni pokann fyr-
ir vætu og kuldatíð. Gert er ráð fyrir lítils háttar
rigningu á Suðurlandinu öllu á hádegi í dag og hita
á bilinu 7-13 stig. Austast á Suðurlandi verður svo
talsverður vindur eða um 10 metrar á sekúndu.
Á Austurlandi verður einnig rigning samkvæmt
spánni og hitinn 6-8 stig. Besta veðrið verður á
norðvesturhorninu. Þar er spáð skýjuðu veðri og
6-12 stiga hita og vindurinn verður um 6-8 metrar
á sekúndu. Ferðalangar voru þó á ferðinni þrátt
fyrir vætutíð í kortum en um 12 þúsund bílar óku
um Kjalarnesið í gær og þá fóru 12 þúsund bílar
sömuleiðis austur fyrir fjall í gegnum Sandskeið.
Tæplega þrjú þúsund bílar fóru yfir Holtavörðu-
heiðina.
Eftir góða tíð undanfarna daga tókst Vegagerð-
inni að opna leiðina yfir Sprengisand í gær og er
leiðin nú opin fyrir fjallabíla. Einnig er búið að
opna leiðina um Kjöl og eru flestallir helstu há-
lendisvegir að opnast hægt og rólega. Þó er Fjalla-
baksleið syðri lokuð.
Vegagerðin tilkynnti einnig í gær að nú væri op-
ið inn í Hvanngil. benedikt@mbl.is
Hlýindin láta í minni pokann
Vætutíð og vindur í
spákortum helgarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Brunað burt Margir voru á faraldsfæti í gær
þrátt fyrir vætuspá í kortum og lágan hita.
Biskup Íslands hefur auglýst laust
til umsóknar embætti sóknarprests
í Grafarholtsprestakalli, Reykjavík-
urprófastsdæmi eystra frá 1. sept-
ember nk. Biskup skipar í embættið
til fimm ára.
Í Grafarholtsprestakalli er ein
sókn, Grafarholtssókn, með rúm-
lega sex þúsund íbúa og eina
kirkju, Guðríðarkirkju. Núverandi
sóknarprestur, sr. Sigríður Guð-
marsdóttir, hefur þjónað í Noregi
undanfarna mánuði. Í fjarveru
hennar hefur sr. Karl V. Matthías-
son gegnt embættinu.
Þá hefur biskup Íslands auglýst
laust til umsóknar embætti prests í
Keflavíkurprestakalli, Kjalarness-
prófastsdæmi.
Biskup skipar í embættið til fimm
ára. Í Keflavíkurprestakalli er ein
sókn, Keflavíkursókn, með tæplega
átta þúsund íbúa og eina kirkju,
Keflavíkurkirkju. sisi@mbl.is
Tvö prests-
embætti
auglýst
Morgunblaðið/Kristinn
Altari Guðríðarkirkja í Grafarholti.