Morgunblaðið - 11.07.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Smiðjuvegur 11, sími 571 377,
taekjataekni.is
fjárfesting í vellíðan
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Þ
ótt ekki virðist alltaf tek-
ið út með sældinni að
vera kvikmyndagerð-
arkona á Íslandi, er létt
yfir Ásu Helgu Hjör-
leifsdóttur, handritshöfundi og leik-
stjóra. Enda ekki við öðru að búast
því í vikunni fékk hún þau gleðitíð-
indi að nýja stuttmyndin hennar, Þú
og ég, hefði verið valin í keppni um
bestu norrænu stuttmyndina á Nor-
disk Panorama kvikmyndahátíðinni.
Auk þess verður mjög góð þátttaka
í sumarnámskeiði fyrir stúlkur á
framhaldsskólaaldri í stutt-
myndagerð, sem þær Dögg Mós-
esdóttir, kvikmyndagerðarkona og
formaður Wift, Women in Film and
Television, efna til í næsta mánuði í
samstarfi við RIFF og Kvikmynda-
skóla Íslands.
Öll þessi gleði kemur svo til
viðbótar gleðinni frá í fyrra þegar
Kvikmyndamiðstöð Íslands veitti
henni vilyrði um framleiðslustyrk
fyrir kvikmynd í fullri lengd. Þau
voru þrjú, sem fengu slíkt vilyrði
fyrir tökur 2016, tvær konur og
karl, og þótti kynjahlutfallið tíð-
indum sæta í ljósi umræðunnar um
að konur bæru skarðan hlut frá
borði þegar styrkveitingar væru
annars vegar.
Gusan um hlut kvenna
Skömmu áður hafði Ása Helga
einmitt flutt hátíðargusuna svo-
kölluðu á opnunarhátíð RIFF, Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í
Reykjavík, þar sem hún fór yfir
hlutskipti kvenna í kvikmyndaiðn-
aðinum. „Ég vakti meðal annars
athygli á að fjögur ár væru liðin
frá því kona leikstýrði kvikmynd
fyrir ríkisstyrk á Íslandi og lýsti
sérkennilegu viðmóti sem konur í
stéttinni mæta oft hjá kollegum,
karlkyns sem og kvenkyns. En
jafnframt talaði ég um það hversu
þreytandi það er að vera alltaf
stimplaður sem „kvenleikstjóri“,
ekki bara „leikstjóri“, og vera
þannig sjálfkrafa komin í pólitíska
stöðu. Það er endalaust hægt að
tala um þetta mál, en með nám-
skeiðinu sem við ætlum að halda
viljum við reyna að tækla vandann
á frumstigi og hvetja stelpur til að
segja sínar sögur gegnum þann
miðil sem kvikmyndin er. Það
skýtur til dæmis mjög skökku við
að í myndbandaklúbbum fram-
haldsskólanna er að meðaltali ein
stelpa á móti hverjum níu
strákum,“ segir Ása Helga og vísar
í tölur frá mennta- og menningar-
málaráðuneytinu máli sínu til
stuðnings.
Það leynir sér ekki að henni er
í mun að rétta hlut kvenna í grein-
inni. Sjálf hefur hún að leiðarljósi
hvatningarorð sem hún heyrði í fyr-
irlestri ástralska leikstjórans Jane
Campion, en hún sagði konum ein-
faldlega að „just do the work“ – að
þannig myndi byltingin eiga sér
stað, en Campion tók það jafnframt
fram að til að svara því kalli þyrftu
kvikmyndasjóðir allra landa að hafa
kynjakvóta á úthlutunum.
Fyrst Þú og ég,
síðan Svanurinn
Ása Helga Hjörleifsdóttir er ein þriggja kvikmyndagerðarmanna sem hafa fengið
vilyrði Kvikmyndamiðstöðvar Íslands fyrir framleiðslustyrk kvikmyndar í fullri
lengd árið 2016. Hún ætlar að hefja tökur næsta sumar um leið og styrkurinn
kemur í hús, en áður og von bráðar frumsýnir hún stuttmyndina Þú og ég.
Tragikómedísk drama Gríma Valsdóttir í hlutverki sínu í Þú og ég.
Óperusöngvarinn Ágúst Ólafsson og
Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari
mæta kl. 14 í dag í Bókamarkað Bóka-
bæjanna austanfjalls í Hveragerði og
flytja nokkur falleg og sígild verk, t.d.
Maístjörnu Jóns Ásgeirs úr Heims-
ljósi Halldórs Laxness og aríu Don
Giovanni eftir Mozart.. Þema Bóka-
markaðsins um helgina er drama-
tískar bókmenntir.
Bókamarkaðurinn er í húsi Leik-
félags Hveragerðis, Austurmörk 23.
Markaðurinn er opinn frá kl. 12-18
föstudag til sunnudags.
Bókamarkaður
Morgunblaðið/Eggert
Tónleikar Ágúst og Eva Þyrí.
Dramatískar
bókmenntir og
óperusöngur
Á morgun kl. 11 mun Grasagarður
Reykjavíkur standa að fræðslu um
notkun einærra sumarblóma í
görðum. Sumarblóm eru allstór og
fjölbreyttur hópur garðplantna
sem sáð er til snemma vors og for-
ræktaðar í gróðurhúsi þar til þær
eru gróðursettar úti. Flest sum-
arblóm blómgast stærstan hluta
sumars og deyja næsta vetur.
Svanhildur Björk Sigfúsdóttir,
garðyrkjufræðingur hjá Grasagarð-
inum, leiðir gönguna og verða
gróðursetningar í beð, ker og potta
skoðaðar í Grasagarðinum og
skrúðgarði Reykjavíkur í Laug-
ardal.
Fræðslugangan hefst við aðal-
inngang Grasagarðsins. Þátttaka
er ókeypis og eru allir velkomnir.
Grasagarður Reykjavíkur
Fræðsla
um einær
sumarblóm
Sumarblóm Sólboði (Osteo-
spermum) er sumarblóm sem þrífst
vel á Íslandi.
Ástarsaga Aðalleikararnir Katherine Waterston og Walter Grímsson.
Margir af bestu og þekktustu harmonikuleikurum
landsins koma fram og spila eins og þeim einum er
lagið á hinni árlegu Harmonikuhátíð Reykjavíkur í Ár-
bæjarsafni á morgun, 12. júlí. Þeir hefja leikinn kl. 13.
Á safninu geta gestir jafnframt fylgst með og tekið
virkan þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir
daga heyvinnuvéla – að því tilskildu að veður haldist
þurrt. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að kynnast
því hvernig forfeðurnir og -mæðurnar notuðu orf, ljá
og hrífur á árunum áður. Um aldir höfðu Íslendingar
engin önnur verkfæri til að afla vetrarforðans. Þessi
gömlu handbrögð eru sjaldséð í sveitum landsins en
voru þó víða viðhöfð allt fram yfir miðja síðustu öld.
Dagskráinni lýkur með samspili allra harm-
onikuflytjendanna undir stjórn hins eina sanna Karls
Jónatanssonar.
Árbæjarsafn
Harmonikuhátíð og heyannir
Ljúfir tónar Harmonikuleikur verður á dagskrá Árbæjarsafns á sunnudaginn.
Stjórnandinn Karl
Jónatansson.