Morgunblaðið - 11.07.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa
nýja súrdeigsbrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Veiðimenn og staðarhaldarar við
laxveiðiár á Vestur- og Suð-vestur-
landi eru lukkulegir þessa dagana,
smálaxinn „hellist inn,“ segja þeir.
Veiðitölur eru víðast hver betri en
það hörmungarsumar sem laxveiði-
vertíðin í fyrra reyndist vera. Og
augu manna eru á Norðurá, þar
mætir hann venjulega fyrst, og Ein-
ar Sigfússon sölustjóri er lukkuleg-
ur.
„Laxinn gengur eins og rakettur í
ána núna,“ sagði hann eftir hádegi í
gær. „Göngurnar hafa verið rosalega
kröftugar síðustu daga. Veiðimaður
sem lauk veiðum í gær, og veitt hef-
ur mikið í ánni gegnum árin, hringdi
áðan og óskaði okkur til hamingju.
Hollið sem endaði á hádegi í gær
landaði 202 löxum á þremur dögum.
Þeir fengu rúmlega 50 eftirmiðdag-
inn í gær og í morgun. Við erum
komin yfir 720 laxa.“ Rétt er að geta
þess að meðfylgjandi veiðitölur eru
eins og veiðin stóð í ánum á mið-
vikudagskvöldið þannig að hér
hækka tölurnar skarpt.
Einar hefur eftir leiðsögumönnum
við Norðurá að á sama tíma og þess-
um fimmtíu hafi verið landað á síð-
ustu vöktum hafi annað eins lekið af
flugunum; það var kalt og tökur
grannar.
„Laxinn hefur dreift sér vel um
ána. Til að mynda fengust fimm fisk-
ar í morgun við Glitstaðabrú uppi á
dal, þeir veiðast um allt. Reyndar er
lítið komið fram fyrir Króksfoss, það
hefur verið það mikið vatn, en nú
minnkaði það í kuldanum og fisk-
urinn stingur sér eflaust upp núna.
Erlendir veiðimenn byrjuðu á
svæðinu Norðurá II eftir hádegi í
gær og þeir settu í tíu fiska á vakt-
inni. Þetta er fjörugt og hefur gengið
ævintýralega vel – og fiskurinn sér-
lega vel haldinn. Eins árs hængarnir
eru upp í 70 cm langir.“
Hann bætir við að á morgunvakt-
inni í fyrradag hafi veiðst á tvær
stangir á svæðinu sem kennt er við
Stekk 25 laxar. „Og þeir héldu sig
hafa sett í annað eins til. Það var á
nánast í hverju kasti, söng og hvein í
öllu, og fiskur óð upp ána.
Í morgun tapaði ensku veiðimaður
einum mjög stórum í Myrkhyl, eftir
langa viðureign kvaddi hann.“ Það
er staður stóru laxanna í Norðurá.
Meira en helmings aukning
„Þetta er gaman og er mikil breyt-
ing síðan í fyrra, þetta er meira en
helmings aukning,“ segir Einar. „Og
allar horfur á að þetta haldi áfram
því laxinn er að bullganga áfram. Ég
held að laxinn sé bara viku á eftir
áætlun; trillukarlarnir við Breiða-
fjörð segja að sandsílið sé líka viku
seinna að landi en venjulega.“
Þegar spurt er um Hafffjarðará á
Snæfellsnesi, þar sem Einar er ann-
ar eigenda, segir hann veiðina þar
líka komna í fullan gang. „Fyrir
fimm dögum var hún í 150 löxum og
einhverjir voru órólegir, en ég sagði
að hún væri venjulega þremur til
fimm dögum á eftir Norðurá og í
fyrradag small laxinn inn og ætli nú
hafi ekki veiðst hátt í 250.“
Heldur betur að mæta
Haraldur Eiríksson, staðarhaldari
við Laxá í Kjós, tók undir með koll-
ega sínum í Borgarfirði. „Fyrir fimm
dögum var ég ekki mjög bjartsýnn
en nú eru flottar göngur að koma inn
og staðan allt önnur,“ sagði hann
lukkulegur eftir hádegi í gær.
„Nú fimmta morguninn í röð er
mjög þétt setið á neðsta svæðinu, lax
í hverri einustu holu við Kvíslafoss
og Laxfoss. Við erum að bíða eftir
því að efri svæðin detti almennilega
inn, þá munu veiðitölurnar hækka,
eins og við viljum sjá. Eins og veðr-
áttan hefur verið erum við að ná sex
til átta fiskum úr fossinum á morg-
unvaktinni, menn missa annað eins
og þá er búið að styggja hina.“
Haraldur segir enn gott vatn í
Kjósinni, „þrátt fyrir að þetta sé 29.
dagurinn án regns. Við lifum enn á
snjóbráðinni.
Laxinn er að ganga upp, Bugðan
datt vel inn í gær og ég reikna með
því að efri svæðin geri það líka, ef
ekki í kvöld þá á morgun.
Laxinn er heldur betur að mæta,
eftir hvert flóð sjáum við 20 til 30
laxa undir brúnni. Þetta er eins og
það á að vera“.
Sagan er svipuð frá Grímsá, mikið
af laxi á tveimur neðstu svæðunum,
þar af 30 til 50 laxar fyrir neðan Lax-
foss, og morgunvaktir að fá 12 til 16
laxa á þeim. Enn er beðið eftir að
Oddstaðafljót og aðrir gjöfulir staðir
uppi á dal detti í gang.
Þá berast svipaðar fréttri frá
Langá, sem var sein í gang en nú
hefur laxinn dreift sér ágætlega um
ána og mun vera að veiðast á öllum
svæðum.
Sex til átta á dag úr Korpu
Af minni ám nærri borginni má
nefna að í Brynjudalsá hafa veiðst
nær 30 laxar og í Korpu veiðast sex
til átta laxar á dag.
Ef stokkið er norður í Þistilfjörð,
hvaðan fréttir berast ekki eins ört,
þá fór veiðin vel af stað í Svalbarðsá
þar sem veitt er á tvær stangir og
veiði hófst um mánaðamót. Fyrstu
tvö hollin fengu sex og níu laxa, og
allt stórlaxa eins og vera ber á því
svæði á þessum tíma.
Göngurnar „rosalega kröftugar“
Smálaxinn sagður „hellast inn“ í Norðurá Síðasta holl fékk 202 laxa „Þetta er fjörugt og
hefur gengið ævintýralega vel,“ segir Einar Sigfússon Þétt setið á neðsta svæði Laxár í Kjós
Ljósmynd/Kristinn Á. Ingólfsson
Lukkulegur Erlendur veiðimaður kampakátur við Kálfhylsbrot í Norðurá.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is* Tölur liggja ekki fyrir
Norðurá (15)
Blanda (14)
Þverá-Kjarrá (14)
Miðfjarðará (10)
Ytri-Rangá & Hólsá (20)
Haffjarðará (6)
Laxá í Aðaldal (18)
Langá (12)
Flókadalsá (3)
Elliðaárnar (6)
Víðidalsá (8)
Eystri-Rangá (18)
Laxá í Kjós (8)
Hítará (6)
Vatnsdalsá (6)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í
fyrra
Á sama
tíma
2013
Staðan 8. júlí 2014
329
615
334
203
61
197
131
60
72
125
75
160
73
88
125
1150
731
806
331
223
570
143
535
313
354
75
254
218
*
105
630
515
488
301
209
185
132
130
130
129
95
91
89
83
79
Hjólreiðakeppnin KIA Gullhringur-
inn fer fram á Laugarvatni í dag.
Keppnin er orðin næststærsta hjól-
reiðakeppnin hér á landi á eftir
WOW Cyclothon, en tæplega 700
keppendur hjóla af stað síðdegis.
Keppnin var fyrst haldin fyrir þrem-
ur árum og hefur vaxið mjög síðan
og nokkurn veginn í takt við áhuga
landsmanna á hjólreiðum, segir í til-
kynningu.
Í aðdraganda keppninnar verður
margt um að vera á Laugarvatni, s.s.
sveitamarkaður við Gallerí, hoppu-
kastalar, strandblaksvöllur, vatna-
boltar og siglingar á sjálfu Laugar-
vatni fyrir börn og fullorðna. Þá
verður einnig hægt að komast í út-
sýnisflug og ferðir inn að jökli.
Keppnin sjálf hefst svo stundvís-
lega klukkan 18 og verður þá ræst til
austurs. Hjóla allir keppendur frá
Laugarvatni í átt að Efsta-Dal og
Úthlíð. Vegfarendur á þessum slóð-
um eru beðnir að sýna tillitssemi á
meðan keppnin fer fram.
Hjólreiðar Frá síðustu hjólreiðakeppni KIA Gullhringsins, en keppnin var
fyrst haldin fyrir þremur árum. Mikið verður um dýrðir á Laugarvatni.
Hjóla Gullhringinn
frá Laugarvatni
Búist við um 700 keppendum í dag