Morgunblaðið - 11.07.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nyrst á víðfeðmu Bessastaðanesi, í
fjörunni Skerjafjarðarmegin, er
Skansinn. Þægilegasta gönguleiðin
að honum er frá bæjunum Breiða-
bólstað og Jörva á svonefndu Norð-
urnesi. Þá er gengið um fjöruna
norður fyrir nesið, um grjótgarð á
minni Dugguóss, og þar er komið á
Skansinn.
Virkisborg og varðturn
Bessastaðanesið hefur oft verið
nefnt í fréttum síðustu vikur í kjölfar
útgáfu skýrslu um flugvallarmál á
höfuðborgarsvæðinu og nýja val-
kosti í því sambandi. Svæðið kemur
til greina sem flugvallarstæði þótt
Hvassahraun þyki, samkvæmt fyrr-
nefndri skýrslu, besti kosturinn.
Þegar Bretar hernámu Ísland
vorið 1940 dvaldist flokkur þeirra á
Norðurnesi um hríð. Ýmsar stríðs-
minjar, svo sem steyptur varðturn,
standa þar enn.
Samkvæmt lenskri málhefð eru
skans og virki samheiti. Viðsjár voru
á Íslandi í kjölfar Tyrkjaránsins árið
1627 og því var á nesinu hlaðin upp
virkisborg og þar komið fyrir fall-
byssum, en þaðan átti að berjast
„gegn aðvífandi ófriðarmönnum“
eins og Kristján Eldjárn, forseti Ís-
lands, ritaði í samantekt um örnefni
og minjar í Bessastaðalandi.
Þótt allur væri varinn góður kom
aldrei til þess að illvirkjar eins og
Tyrkir létu sjá sig við Ísland að nýju.
Því hrundi úr hlöðnum veggjum á
Skansinum og virkið varð rústir ein-
ar – sem þó er áhugavert að skoða.
Seinna var á þessum slóðum byggt
lítið kot sem kallað var Skans, þaðan
sem var Ólafur Ólafsson, fæddur ár-
ið 1842. Það var um hann sem ort
var danskvæðið um Óla skans og
„… voðalegur vargur er hún Vala
konan hans“.
Varist og barist
Sagan hefur þó oft þá tilhneigingu
að endurtaka sig um síðir, þótt í
breyttri mynd frá upphafinu sé.
Tæplega 400 árum eftir Tyrkjaránið
gerðu Bretar og Hollendingar hríð
að Íslendingum strax eftir banka-
hrunið vegna uppgjörs á Icesave-
skuldinni svonefndu. Alþingi sam-
þykkti lög þar að lútandi, sem Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
hafnaði tvívegis og vísaði í dóm þjóð-
arinnar. Gerðist það eftir mótmæli
og blysför á gamlársdag 2009 þar
sem Indefence-hópurinn svonefndi
var í forystu. Þannig var varist og
barist og Bessastaðir urðu miðdepill
mála, eins og forðum þegar Tyrkir
voru andvaragestir Íslendinga.
Gegn aðvífandi
ófriðarmönnum
Álftanes
Bessastaðir
Garðabær
Hafnarfjörður
Skansinn
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Stríð Ýmsar minjar úr síðari heimsstyrjöld eru á Norðurnesi við Breiðaból-
stað. Hér sést varðturn, en Bretar höfðu bækistöð þarna sumarið 1940.
Skansinn Rústir virkisins sem hlaðið var fljótlega eftir Tyrkjaránið árið
1627. Héðan átti að verjast og berjast gerðu mannræningjar úr suðri atlögu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Álftanesið Forsetasetrið frá sjónarhorni sem fáir þekkja. Bakhlið Bessa-
staðahúsanna og kirkjan og Keilir, tákn Reykjanessins, þar á milli.
Á slóðum Óla skans við Bessastaði á
Álftanesi Skans við Dugguós Sag-
an endurtekur sig Stríðsminjar
Morgunblaðið/RAX
Blysför Bessastaðir voru í brennidepli þegar félagar í Indefence-hópnum fylktu liði með neyðarblys til Bessastaða í
árslok 2009 og mótmæltu lögum um Icesave-samningana. Verja skyldi landið rétt eins og á Skansinum forðum.
ÓSKASTJARNAN
Þann 17. júlí hittir einn af áskrifendum Morgunblaðsins á óskastund
þegar við drögum út glæsilegan, fjórhjóladrifinn Mercedes-Benz B-Class
með 7 þrepa sjálfskiptingu að verðmæti 6.970.000 kr.* í áskriftarleik
Morgunblaðsins.
Víkkaðu hringinn með Morgunblaðinu í sumar.
*Innifalinn í verðinu er ríkulegur aukabúnaður: bakkmyndavél, rafstillanleg framsæti með minni, regnskynjari o.fl.