Morgunblaðið - 11.07.2015, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
!"#
!$$#
% #
""$
###
$"%
! $
"
$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%"
!$"#
! #
%##
"$$
"
$!%
!##%
$#"
#
!#
!$#
% %
"%
#
$
!
#
$#%#
!%"#
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Arion banki gerir ráð fyrir hóflegri
lækkun á vísitölu neysluverðs í júlí-
mánuði upp á 0,2%. Við það ætti 12
mánaða verðbólga að fara í 1,5%. Á
sama tíma gerir Íslandsbanki ráð fyrir
0,1% hækkun vísitölunnar fyrir sama
tímabil. Sú hækkun myndi þýða að árs-
verðbólgan mældist 1,8%. Munurinn
milli spánna liggur helst í því að Ís-
landsbanki gerir ráð fyrir mun meiri
hækkun húsnæðisliðarins en Arion
banki. Báðar gera greiningardeildirnar
ráð fyrir því að helsti áhrifaþátturinn til
lækkunar vísitölunnar í mánuðinum
verði sumarútsölur og munar litlu sem
engu á því mati.
Verðbólguspárnar fyrir
júlí vísa í ólíkar áttir
● Íslandsbanki hefur verið valinn þriðja
árið í röð besti bankinn á Íslandi af al-
þjóðlega fjármálatímaritinu Eurom-
oney. Í tilkynningu frá bankanum segir
að við valið sé horft til ýmissa þátta í
rekstri og stefnu íslensku bankanna
eins og afkomu af reglulegri starfsemi,
kostnaðarhagræðingu og getu til að
bregðast við breyttum markaðs-
aðstæðum og þörfum viðskiptavina.
Euromoney útnefnir árlega bestu
bankana í tæplega 100 löndum og veitir
þeim viðurkenningu.
Euromoney segir Ís-
landsbanka bestan
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Sigurður Tómasson
sigurdurt@mbl.is
Til að auka framleiðni þarf að efla
nýsköpunarumhverfið og auðvelda
útbreiðslu þekkingar um hagkerfið,
samkvæmt nýrri skýrslu frá OECD.
Björn Brynjúlfur Björnsson, hag-
fræðingur Viðskiptaráðs, segir að
nýsköpunarumhverfið hér á landi
hafi batnað mikið á undanförnum
árum og vandamálið liggi frekar í
því að hjálpa þurfi fyrirtækjum að
keppa á alþjóðlegum mörkuðum.
Framleiðni er mælikvarði á
hversu miklum verðmætum aðföng
skila og er aukin framleiðni lykillinn
að hagvexti til lengri tíma. Vöxtur
framleiðni hefur dregist saman und-
anfarin 20 ár í löndum OECD og er
það mikið áhyggjuefni.
Í nýrri skýrslu OECD um framtíð
framleiðni eru kynntar leiðir til að
snúa þeirri þróun við. Framleiðni á
Íslandi er sérstaklega lítil og er hún
minni en meðaltal OECD-landanna.
Í Morgunkorni Arion banka fyrir
skömmu kom fram að þar sem fram-
leiðsla hér á landi sé hlutfallslega lít-
il hafi íslenska lausnin verið að vinna
meira til að auka lífsgæði, en að það
geti haft þveröfug áhrif á framleiðni.
Lykillinn að því að auka framleiðni
sé að vinna betur en ekki meira.
Bætt nýsköpunarumhverfi
Í skýrslu OECD er áhersla lögð á
að bæta nýsköpunarumhverfi land-
anna til þess að auka framleiðnivöxt.
Það er hægt að gera til dæmis með
því að hjálpa nýjum fyrirtækjum að
fara af stað með styrkveitingu eða
skattaafsláttum. Einnig þarf að
hjálpa þekkingu að dreifast um hag-
kerfið úr stóru fyrirtækjunum niður
í þau smærri. Það kallar á sveigj-
anlegan vinnumarkað.
Hér á landi virðist nýsköpunar-
umhverfi ekki standa framleiðni fyr-
ir þrifum. Í meistararitgerð Her-
manns Þráinssonar, viðskiptafræði-
nema úr Háskóla Íslands, var
lagalegt umhverfi frumkvöðlafyrir-
tækja hér á landi borið saman við
nágrannalöndin og stóð það íslenska
vel.
Almar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Samtökum iðnað-
arins, segir jafnframt að nýsköpun-
arumhverfið hér á landi sé í miklu
blóma. „Við sjáum það til að mynda í
fjárfestaumhverfinu að nýsköpun
gengur vel. Það eru að spretta upp
ýmsir sjóðir sem hafa áhuga á því að
fjárfesta sérstaklega í nýsköpun.“
Einnig bendir Almar á að sveigjan-
leiki á íslenskum vinnumarkaði sé
almennt meiri en í Evrópu sem ætti
að gera fyrirtækjum auðveldara að
vaxa.
Efla þarf samkeppni
Tillögur OECD sem snúa að auk-
inni framleiðni með eflingu nýsköp-
unar eiga alls staðar við að ein-
hverju leyti. Nýsköpunarumhverfið
hér virðist þó vera það gott að auka
þarf framleiðni með öðrum hætti.
„Til að auka framleiðni þarf fyrst og
fremst að bæta samkeppnisum-
hverfið,“ segir Björn Brynjúlfur.
„Opna þarf hagkerfið í meira mæli
fyrir alþjóðlegri samkeppni, t.d. með
afnámi tolla og fækka hindrunum í
alþjóðlegum viðskiptum,“ segir
Björn Brynjúlfur. Hann segir að af-
nám hafta leiki sérstaklega stórt
hlutverk í þeim efnum.
„Til að alþjóðlegi geirinn geti vax-
ið þarf mjög hagkvæmt rekstrarum-
hverfi og meiri framleiðni er í
stórum alþjóðlegum fyrirtækjum,“
segir Björn Brynjúlfur. Því þurfi að
hlúa að þeim fyrirtækjum, t.d. með
því að tryggja efnahagslegan stöð-
ugleika, hagfellt skattaumhverfi,
frjálst flæði fjármagns og sambæri-
legt regluverk og nágrannalöndin
búa við.
Framleiðnivandi Íslands
liggur ekki í nýsköpun
Morgunblaðið/Ómar
Efnahagsmál Nýsköpun hér á landi er í miklum blóma og þarf því framleiðnivöxtur að koma annars staðar frá.
Framleiðni á Íslandi er lítil Vandamálið liggur í samkeppnishæfni fyrirtækja
Ísland er í 18. sæti af 141 landi sem
World Economic Forum (WEF) seg-
ir að séu vel búin til að taka á móti
ferðamönnum og Ísland nær 5. sæti
þegar horft er til þess hvaða lönd
setja ferðaþjónustu í forgang. Þar er
Ísland í hópi með Möltu, Máritíus,
Kýpur, Singapúr, Spáni, Dóminíska
lýðveldinu, Seychelles, Eistlandi og
Barbados. Í skýrslu WEF kemur
fram að ný millistétt frá Kína, eldri
ferðalangar frá Vesturlöndum og
ungt fólk sé í auknum mæli að móta
ferðaþjónustuna í heiminum.
Löndin öll eru skoðuð út frá fjór-
tán mismunandi þáttum sem snúa að
ferðamennsku. Meðal þess eru
menningarleg verðmæti landsins,
geta landsins til að auðvelda leit að
afþreyingu á netinu ásamt framúr-
skarandi skipulagi á innviðum. Ís-
land skorar hátt í öryggi landsins,
hreinlæti, netvæðingu og innviðum
ferðaþjónustunnar en hins vegar er
það metið lægra í menningarlegum
verðmætum, viðskiptaferðum og
samkeppnishæfni í verði.
Á topp tíu listanum eru hefð-
bundnir vinsælir ferðamannastaðir
þar sem Spánn trónir á toppnum, þá
kemur Frakkland, Þýskaland,
Bandaríkin, Bretland, Sviss, Austur-
ríki, Ítalía, Japan og Kanada. Nýir
áfangastaðir eins og Brasilía, Kína,
Mexíkó, Singapúr og Sameinuðu ar-
abísku furstadæmin eru í hópi 30
efstu landanna. Í skýrslunni segir að
það gefi til kynna að það séu tæki-
færi fyrir lönd um allan heim að ná
fram samfélagslegum ávinningi með
ferðaþjónustu sem geti leitt til meiri
hagvaxtar og skapað ný störf.
margret@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ferðaþjónusta Ísland skorar hátt í
öryggi, hreinlæti og netvæðingu.
Ísland í 18. sæti í
ferðamennsku
Skorar hátt í ör-
yggi, hreinlæti og
netvæðingu
F
A
S
T
U
S
_
H
_
3
2
.0
5
.1
5
Fastus ehf., - Velkomin í verslun okkar. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900
Resorb Sport
Þegar þú stundar úthaldsíþróttir eins
og hjólreiðar, fjallgöngur, hlaup o.fl.
• Bætir upp vökvatap
• Minnkar líkur á vöðvakrömpum
• Flýtir endurheimt (recovery)
• Bragðgóður og handhægur
• Inniheldur m.a. magnesium
Fæst í fjölmörgum apótekum