Morgunblaðið - 11.07.2015, Side 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Rannsókn sem fjallað er um í
breska læknablaðinu Lancet
Psychiatry í gær bendir til þess að
daglegar tóbaksreykingar kunni að
vera orsakaþáttur í geðsjúkdóm-
um.
Fólk sem þjáist af geðsjúkdómum
er um það bil þrisvar sinnum lík-
legra til að reykja en aðrir. Í rann-
sókninni voru greind gögn sem
safnað var í 61 rannsókn víðsvegar
um heiminn milli áranna 1980 og
2014, var niðurstaðan sú að 57%
þeirra, sem greinast með alvarlega
geðsjúkdóma, svo sem geðklofa,
reyktu. Einnig bendir rannsóknin
til þess að reykingafólk þrói með
sér geðsjúkdóma ári fyrr á ævinni
en aðrir sjúklingar.
Tekið er fram að ekki hafi með
þessu verið sannað að reykingar
geti valdið geðsjúkdómum; frekari
rannsókna sé þörf. Hins vegar
bendi niðurstöðurnar til þess að
ekki sé aðeins hægt að líta á reyk-
ingar sem afleiðingu geðsjúkdóma
heldur kunni þær að vera orsaka-
þáttur.
Vísindamennirnir veltu því fyrir
sér hvort breytingar á dópamín-
kerfi heilans kynnu að útskýra
þessi tengsl. Dópamín er taugaboð-
efni sem á þátt í að stjórna svo-
nefndri ánægjustöð heilans. Hugs-
anlegt sé að aukin losun dópamíns
af völdum nikótíns, virka efnisins í
tóbaki, valdi því að sjúklingar þrói
með sér geðsjúkdóma.
Reykingar
tengdar við
geðsýki
Reykingar Daglegar reykingar
kunna að tengjast geðsjúkdómum.
Danir eru ekki
ánægðir með
veðrið í sumar.
„Við klæðum
okkur í jakka og
flíspeysur þessa
dagana því veðrið
er eins og á
hausti en ekki
sumri,“ segir á
vef danska ríkis-
útvarpsins.
Þar segir að aðeins hafi verið sjö
eiginlegir sumardagar þar í landi í
sumar, þ.e. dagar þegar hitinn fór
yfir 25°C. Hæst komst hitinn í
31,9°C á Borgundarhólmi 5. júlí.
Næstu daga er spáð 14-18°C hita
og talsverðri vindkælingu.
Danir kvarta
yfir sumrinu
Danir striplast á
Hróarskelduhátíð.
Tæpur tugur manna hefur slasast
það sem af er nautahlaupinu í
spænsku borginni Pamplona þetta
sumarið. Dagana 7. til 14. júlí ár
hvert eru naut rekin á morgnana
eftir götum bæjarins að nautaats-
hringnum og mannfjöldi hleypur
með og reynir að forðast horn og
klaufir. Siðurinn er gamall en
skráðar heimildir ná til 1911. Frá
þeim tíma hafa 15 manns látið lífið í
hlaupunum. Síðasta banaslysið
varð 2009 þegar naut stakk 29 ára
gamlan Spánverja á hol.
Hættulegt
nautahlaup í
Pamplona
AFP
Hættuleg hlaup Hlaupið með nautum í Pamplona í vikunni. Talið er að 17
þúsund manns frá fjölda landa hafi tekið þátt í nautahlaupinu í fyrra.
Grænlenskur þingmaður segir að
grænlenskir fíkniefnasalar virðist í
auknum mæli þvætta ágóða af ólög-
legri hasssölu gegnum knattspyrnu-
getraunir og lottó, sem danska ríkis-
fyrirtækið Danske Spil rekur.
Grænlenska blaðið Sermitsiaq
hefur eftir Tillie Martinussen, þing-
manni Demokraatit, að hún vilji láta
rannsaka þetta mál.
„Mér skilst að lögreglan í Græn-
landi hafi fengið það staðfest að
hasssölumenn þvætti peninga gegn-
um spil og getraunir. Sé þetta rétt
verður að grípa í taumana,“ hefur
blaðið eftir Martinussen.
Mikil umræða hefur verið á græn-
lenska þinginu undanfarið um hass-
sölu í Grænlandi. Í fyrirspurn, sem
Martinussen lagði fram til græn-
lensku ríkisstjórnarinnar, segir m.a.
að með ákveðnum aðferðum geti
glæpamenn fengið allt að 90% af fé,
sem notað er til að tippa á knatt-
spyrnuleiki, til baka í löglegum vinn-
ingum.
Þvætta fíkniefnapen-
inga í getraunum
Grænlenskur þingmaður vill rannsókn
Fæst í apótekum, Hagkaup, Nettó, Fríhöfninni og víðar.
ALLT AÐ 6 TÍMA SÓLARVÖRN
ÞRÓUÐ FYRIR VIÐKVÆMA HÚÐ
Ofnæmisprófuð með sérhæfðum sólarfilterum fyrir húð barna.
Börn elska mjúka froðuna sem auðveldar að bera á rétt magn.
Vatnsheld vörn í sund, sjó og leik. Teppir ekki húðina.
Meðmæli húðlækna - Yfir 90% UVA vörn
Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð.
Proderm inniheldur engin paraben, ilmefni, litarefni eða nanóefni.
ÖRUGG VÖRN
www.celsus.is Berið reglulega vel og jafnt á húðina, sti l l ið sólböðum í hóf.
YFIR 90%
UVA VÖRN