Morgunblaðið - 11.07.2015, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Hannes Hlífar Stefánssoner stigahæstur ís-lenskra skákmannasamkvæmt júlí-lista
FIDE með 2.593 elo-stig. Það skip-
ar honum í 193. sæti á heimslist-
anum. Í 2. sæti er Héðinn Stein-
grímsson með 2.562 elo og í 3. sæti
Hjörvar Steinn Grétarsson með
2.559 elo. Stigalistinn er nú birtur
mánaðarlega og er það mikil breyt-
ing frá því sem áður var þegar
hann var birtur á sex mánaða fresti
og enn lengra er síðan listinn var
gefinn út einu sinni á ári. Elsti
stórmeistari heims, Júrí Averbakh,
rifjaði það upp í ævisögu sinni að á
fyrsta stigalista FIDE sem birtur
var árið 1971 hafi einungis verið
500 skákmenn; 40 árum síðar voru
yfir 130.000 skákmenn á FIDE-
listanum og þeim fjölgar stöðugt.
Magnús Carlsen er sem fyrr
langhæstur þrátt fyrir afhroðið á
Norska skákmótinu á dögunum og
er með 2.853 elo stig. Þrír aðrir
skákmenn eru yfir 2.800 elo stig-
um, Wisvanathan Anand og Vensel-
in Topalov eru í 2.-3. sæti með
2.816 elo og í 4. sæti kemur Hikaru
Nakamura með 2.814.
Íslendingum er raðað í 32 styrk-
leikasæti af 175 aðildarþjóðum
FIDE en þar er tekið meðaltal 10
sterkustu skákmanna hverrar þjóð-
ar. Rússar eru enn fremstir og
Kínverjar koma í humátt á eftir. Af
íslenskum skákmönnum er lítill vafi
á því að Hjörvar Steinn Grétarsson
er okkar helsta von um afburða
skákmann en hann varð í 2. sæti á
vel skipuðu Íslandsmóti á dög-
unum, tefldi í júní á Kúbu ásamt
fjórum öðrum íslenskum skák-
mönnum í opna flokki minning-
armótsins um Capablanca, hlaut 6½
vinning af 10 mögulegum og varð í
16.-28. sæti af tæplega 200 kepp-
endum. Síðan lá leiðin yfir hafið og
teflir hann þessa dagana á opnu
móti í Benasque á Spáni. Eftir sjö
umferðir var Hjörvar í efsta sæti
með sex öðrum og hafði þá hlotið
sex vinninga af sjö mögulegum og
er það árangur sem reiknast upp á
2.687 elo-stig.
Athyglin beinist að Wei Yi
Eftir sigur Kínverka í opna
flokki síðasta ólympíumóts hefur
athyglin beinst að þeirra bestu
skákmönnum einkum þó undra-
barninu Wei Yi sem tefldi ásamt
flokki landa sinna í Reykjavík-
urskákmótinu 2013. Hann er nú 16
ára gamall og er í 29. sæti á heims-
listanum. Það eru þó tilþrifin frek-
ar en elo-stigin sem vekja athygli
sbr. eftirfarandi skák sem tefld var
á dögunum á sterku alþjóðlegu
móti á eyjunni Danzhou í Suður-
Kína:
Wei Yi – Bruzon Batista (Kúba )
Sikileyjar vörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. Rc3 a6 4.
Be2 Rc6 5. d4 cxd4 6. Rxd4 Dc7 7.
0-0 Rf6 8. Be3 Be7 9. f4 d6 10.
Kh1 0-0 11. De1 Rxd4 12. Bxd4 b5
13. Dg3 Bb7 14. a3 Had8
Alþekkt staða sem komið hefur
upp í ótal skákum. Svartur reynir
að hindra framrás e4-peðsins en at-
lagan kemur þá annars staðar frá.
15. Hae1 Hd7 16. Bd3 Dd8 17.
Dh3 g6 18. f5 e5 19. Be3 He8 20.
fxg6 hxg6 21. Rd5! Rxd5?
Hann varð að reyna 22. … Bxd5
23. exd5 Hb7. Nú kemur mikill
hnykkur.
22. Hxf7! Kxf7 23. Dh7+ Ke6 24.
exd5+ Kxd5
Ekki dugar 24. … Bxd5 25. Bxg6
og mátar. Nú er spurningin hvort
svarti kóngurinn sleppi yfir á
drottningarvænginn.
25. Be4+! Kxe4 26. Df7!
Tveir bráðsnjallir leikir.
26. … Bf6 27. Bd2+ Kd4 28.
Be3+ Ke4 29. Db3! Kf5 30. Hf1+
Kg4 31. Dd3 Bxg2+ 32. Kxg2
Da8+ 33. Kg1 Bg5 34. De2+ Kh4
35. Bf2+ Kh3 36. Be1!
– og svartur gafst upp. Það er
engin vörn við hótuninni 37. Hf3+.
Næsti heimsmeistari
gæti komið frá Kína
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Mannkynið hefur
gengið í gegnum iðn-
byltingu og tölvubylt-
ingu. Næst verður
það orkubylting. Hún
hefst á næsta áratug
og þar með lýkur
væntanlega olíuöld
sem hófst árið 1861.
Ástæðan er sú að nýir
orkukostir eru á
næsta leiti. Þar á ég
fyrst og fremst við hagnýtingu um-
hverfisvænnar kjarnorku sem getur
skipt sköpum fyrir orkubúskap í
heiminum um langa framtíð.
Knýjandi þörf fyrir
nýjar lausnir
Áhyggjur manna af áhrifum
notkunar jarðefnaeldsneytis á
hnattræna hlýnun hafa ýtt undir
viðvarandi leit að betri orkukostum.
Kjarnorkuslysið í Fukushima í Jap-
an 2011 herti enn á þessari leit og
peningar tóku að streyma til fyr-
irtækja sem stunda rannsóknir á
þessu sviði. Þá voru dregnar fram
af veraldarvefnum upplýsingar um
tilraunir bandaríska flughersins frá
7. áratugnum með kjarnaofna sem
knúnir væru þóríum, uppleystu í
saltlausn (MRS = Molten Salt
Reactor). Menn áttuðu sig á því að
vert væri að þessar gömlu rann-
sóknir gengju í endurnýjun lífdaga.
Það sem er sérstakt við þessa
kjarnaofna er að þeir geta notað
þóríum, úran og plútón sem elds-
neyti og breyta allt að 99% orkunn-
ar í varma í stað 2-3% nýtingar eins
og hún er í dag. Og það þarf ekki
að auðga úranið. Það þýðir að þess-
ir kjarnaofnar eru allt að 100 sinn-
um betri en þeir sem notaðir eru í
dag og margfalt umhverfisvænni.
Úrganginn frá þeim þarf einungis
að geyma í fáeina áratugi í stað
tugþúsunda ára. Og það sem meira
er: Úrganginn frá núverandi
kjarnaofnum ásamt kjarn-
orkuvopnum má vel nýta sem elds-
neyti. Það er stórt, vistvænt fram-
faraskref út af fyrir sig.
Fjöldaframleiðsla innan 7 ára?
Í N-Ameríku vinna nokkur fyr-
irtæki að því að búa til slíka kjarna-
ofna. Eitt fyrirtækjanna reiknar
með að árið 2020 verði hægt að
setja upp fyrsta ofninn hjá fyrsta
kaupandanum. Annað fyrirtæki
reiknar með að geta hafið fjölda-
framleiðslu á ofnunum í byrjun
næsta áratugar. Ég geri ráð fyrir
að árið 2022 verði að minnsta kosti
þrjú fyrirtæki farinn að fjölda-
framleiða þessa kjarnaofna og að
afköstin hjá hverju fyr-
irtæki um sig verði að
minnsta kosti 50 MW á
dag. Fyrstu nýju orku-
verin verða væntanlega
notuð til þess að koma
í staðin fyrir kolaorku-
verin í Bandaríkjunum
sem þarfnast endurnýj-
unar á næstu tveimur
áratugum. Og hvað
skyldi nýja orkan svo
kosta? Menn reikna
með að hún verði ódýr-
ari en úr kolaorkuverum og verðið
verði vel undir 30 USD/MW í upp-
hafi. Þegar fjöldaframleiðsla verður
komin í gagnið, er áætlað að verðið
verði undir 10 USD/MW. Það gæti
vel gerst fyrir 2030.
Og hvar skyldu menn svo stað-
setja þessi nýstárlegu orkuver?
Sem næst notandanum! Engar há-
spennulínur, engin spennuvirki. Það
er mín skoðun að spurnin eftir því
að flytja rafmagn á milli staða með
dýrum mannvirkjum muni einfald-
lega hverfa. Ódýr rafmagnsfram-
leiðsla á staðnum í hæfulegum
skala, sérsaumuð að þörfum hvers
notanda, muni taka við. Í þessu
ljósi sjáum við til dæmis að hug-
myndin um orkuflutning í gegnum
sæstreng frá Íslandi til Bretlands
stenst ekki. Ég þarf ekki einu sinni
að taka upp reiknistokkinn. Síðla
árs 2017 verða komnar niðurstöður
úr tilraunum með þessa nýju
kjarnaofna og þá strax breytist
orkuumræðan.
Breytt staða
Frumefnið þóríum heitir í höfuðið
á norræna þrumuguðinum Þór. Það
er kannski táknrænt að þóríum
mun væntanlega hafa mikil áhrif
hér á Sögueyjunni. Í mínum huga
er það þannig að við höfum um þrjú
ár til að fá hingað orkusækinn iðn-
að. Eftir það fer varla nokkur norð-
ur í Ballarhaf til að ná sér í orku.
Enginn veit því fyrir víst í hvaða
stöðu við verðum til að semja um
raforkuverð eftir nokkur ár.
Orkubyltingin
mikla er að hefjast
Eftir Kjartan
Garðarsson
Kjartan Garðarsson
» Það sem er sérstakt
við þessa kjarnaofna
er að þeir geta notað
þóríum, úran og plútón
sem eldsneyti og breyta
allt að 99% orkunnar í
varma í stað 2-3% nýt-
ingar eins og hún er í
dag.
Höfundur er vélaverkfræðingur.
Það kom fram í frétt-
um um daginn að hér
hafa um þrjátíu manns
greinst með hettusótt
nýlega, einkum á suð-
vesturhorni landsins.
Landlæknir hvetur þá
sem ekki hafa verið
bólusettir eða ekki
fengið hettusótt til að
láta bólusetja sig.
Borgari.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hettu-
sótt
Bólusetning Bólga í munnvatnskirtli er eitt af ein-
kennum hettusóttar.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
FEB Reykjavík
Mánudaginn 6. júlí var spilaður
tvímenningur á 15 borðum hjá brids-
deild Félags eldri borgara í Reykja-
vík
Efstu pör í N/S
Pétur Antonsson – Guðlaugur Nielsen 418
Jón Hákon Jónss. – Sigtryggur Jónss. 361
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 349
Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 340
A/V
Hrólfur Guðmss. – Axel Lárusson 420
Kristín Óskarsd. – Unnar A. Guðmss. 400
Skarphéðinn Lýðs. – Ægir Ferdinandss. 370
Ormarr Snæbjss. – Sturla Snæbjörnss. 354
Spilað er í Síðumúla 37.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
BMW 320D F30
Nýskr. 07/2012, ekinn aðeins 8 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur, leður, lúga og mjög mikið af flottum
aukabúnaði! Tilboðsverð 6.990.000. Raðnr.253805
BMW 520D XDRIVE F10
nýskr. 04/2014, ekinn 31 Þ.km, diesel, sjálf-
skiptur mjög vel útbúinn stórglæsilegur bíll!
Tilboðsverð 8.990.000 kr. Raðnr.230069