Morgunblaðið - 11.07.2015, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Það er ærið margt
sem fer um aldinn huga
þegar hlýtt er á eða
horft til fregna af vett-
vangi þjóðmála. Sá sem
sat á löggjafarsamkomu
okkar í sextán ár verður
oft ansi undrandi á hegð-
an manna á Alþingi. Vel
man ég eftir að menn
settu á langar tölur þeg-
ar mönnum þótti nauð-
syn að tefja mál, en að
eyða klukkutímum saman í málskraf
um fundarstjórn forseta, sú enda-
leysa var ekki til. Eflaust hefur þetta
ákvæði verið sett til að gjöra um-
ræðuna markvissari, að ég tala nú
ekki um gegnsærri sem er tízkuorð
dagsins eða hvað og gamall fyrrver-
andi hlýtur að spyrja sig til stjórn-
arliða nú þetta varðandi sem not-
færðu sér málskrafið ótakmarkað
meðan þetta góða fólk var í stjórn-
arandstöðu. Eða þá framíköllin ótal-
mörgu sem æra mann stundum,
nokkuð sem þekktist svo sem en í al-
gjöru lágmarki miðað við þessi ósköp.
Um orðfærið ræði ég ekki, en mínir
beztu samverkamenn á þingi forðum
daga forðuðust slíkt orðbragð og
hefðu margir í dag mátt af þeim
nokkuð nema. Nýliðnar eldhúsdags-
umræður voru þó blessunarlega með
öðrum brag, svo hver veit nema Eyj-
ólfur hressist.
Að öðru þá, sem skiptir fólk miklu í
lífsbaráttunni, en þar
er ég að tala um þátt
bankanna í lífskjörum
fólks. Þessara göf-
ugmenna sem auglýsa
að þeir séu að „hjálpa“
fólki til að eignast þak
yfir höfuðið, þessara
sem telja arð sinn í
margmilljörðum, en
segjast samt ekki fá
nóg, þessara sem eru
að loka fyrir þjónustu
sína svo víða úti um
land til að hámarka
betur þessa heilögu arðsemi sína,
þessara sem vilja fá aukabónusa ofan
á ofurlaunin fyrir að hámarka arðinn,
ekki fólksins heldur bankanna sjálfra,
eitthvað sem venjulegt fólk skilur
ekki eða jafnvel fyrirlítur sem ein-
bera græðgi. Himinn og haf skilja á
milli innláns- og útlánsvaxta, vaxta-
munur sem er óþekkt fyrirbæri í ná-
grannalöndum okkar, enda fjár-
málasiðferði þar greinilega allt
annað. Það rifjast upp fyrir mér að
eitt sinn var hamrað á því að brýna
nauðsyn bæri til að „losa fjár-
málastofnanir úr viðjum spilltra póli-
tíkusa“ eins og það var gjarnan orðað
og nú eru þessar stofnanir sem sagt
sjálfstæð fyrirbæri, lúta aðeins „hin-
um heilbrigðu lögmálum markaðar-
ins“ eins og það heitir víst í dag.
Vaxtamunurinn og milljarðagróðinn
eru táknin um þetta svokallaða heil-
brigði.
Og nokkuð á sömu nótum. Dæmið
um Actavis, eða hvað það nú heitir nú,
er lýsandi um það þegar erlendir auð-
hringar ná tangarhaldi á dýrmætum
hluta atvinnulífs okkar og ein-
kennileg er sú kenning að við þurfum
fyrst og síðast að ná slíkum hér inn í
landið, auðhringum sem, eins og Al-
coa og eflaust fleiri, skila gróðanum
til erlendra móðurfélaga að mestu
leyti eða flytja starfsemina úr landi
þegar búið er að græða nóg hér eins
og nú er raunin. Þessi dýrkun á auð-
hringunum erlendu er ofvaxin mínum
skilningi.
En svo að samfélagsverkefni sem
brýn þörf er að bæta og það ríkulega,
því nú stendur upp á stjórnvöld að
bæta hag þeirra tekjulágu hópa sem
eru öryrkjar og aldraðir og eru á
sama tekjulega rólinu og enn lægra
þó en það fólk sem fékk þó leiðrétt-
ingu sinna kjara nýverið, leiðréttingu
sem er svo sem ekki til að hrópa
húrra fyrir. Ekki skal trúað að þetta
tekjusnauða fólk verði skilið eftir.
Auðvitað eru eldri borgarar ekki
einsleitur hópur kjaralega séð, en því
meiri nauðsyn er að bæta hag þeirra
sem þar bera í dag minnst úr býtum.
Það er samfélagsleg skylda að ör-
yrkjar og eldri borgarar séu ekki við
eða undir fátæktarmörkum. Taf-
arlaus sambærileg hækkun til þeirra
tekjulægstu og fékkst þó í kjara-
samningunum er því eðlileg og sjálf-
sögð krafa.
Það er svo rétt að víkja í lokin að
því kynferðislega ofbeldi sem virðist
svo skelfilega víða beitt og örugglega
er hræðileg staðreynd svo alltof, allt-
of oft. Aðeins vil ég minna á þátt
áfengis og annarra vímuefna í þess-
um gjörðum, afsökun engin, síður en
svo, en vissulega er þessi neyzla einn
áhrifavalda þessa óhugnaðar. Þessi
þáttur er alltof oft meðhöndlaður eins
og feimnismál sem ekki er orð á ger-
andi, en samt grunar mig, ef grannt
er gáð, að þetta spili ískyggilega oft
inn í þennan ógeðslega verknað.
Og nú er af tauti komið talsvert
meira en nóg og amen við hæfi.
Horft til ýmissa átta
Eftir Helga Seljan » Vaxtamunurinn og
milljarðagróðinn eru
táknin um þetta svokall-
aða heilbrigði.
Helgi Seljan
Höfundur er fv. alþingismaður.
Stórkostlegi skapari
og eilífi lífgjafi, Guð,
sem vakir öllu yfir og
ert allt um kring með
þinni eilífu blessun.
Þú sem allt elskar og
vekur með kossi sólar
þinnar og vermir með
heilagri nærveru anda
þíns, takk fyrir fegurð
lífsins!
Nú þegar nóttin er
björt, birtan algjör, allt út
sprungið og í blóma, lofa ég þig
og vil þakka þér fyrir fegurð
sköpunar þinnar, fyrir fegurð
lífsins sem blasir við mér hvert
sem litið er.
Hin íslenska sumarnótt er
engu lík. Kyrrð kvöldanna og
stillur morgnanna eru augnablik
sem ég gæti hugsað mér að
þreifa á. Augnablik sem ég fæ
upplifað ár eftir ár. Augnablik
sem ég gæti hugsað mér að gera
að eilífð. Hvílík ólýsanleg fegurð!
Algjör snilld! Fegurð sem ég má
upplifa, meðtaka og njóta ár eftir
ár.
Laufguð tré, græn gróin tún,
garðar í fullum skrúða með út-
sprungin blóm eða villt náttúran
með sína íslensku undrafegurð
sem engu er lík. Börn að leik
undir bláma himinsins sem spegl-
ast svo skýr og tær í lygnum
vötnum landsins og sólsetrið er
engu líkt. Fjölskrúðug menningin
með iðandi mannlífið á torgum
og strætum í allri sinni fegurð og
margbreytileika.
Nánast orðlaus færi ég þér
þakkir fyrir upplifunina og fyrir
að fá að vera með, vera hluti af
öllu saman. Hluti af einhverju
sem er stærra og meira en ég
næ að halda utan um, skilja eða
skilgreina en fæ að þiggja og
njóta.
Takk fyrir birtuna og vonina
sem henni fylgir. Hjálpaðu mér
að opna augun fyrir fegurð lífsins
og öllum þínu góðu gjöfum.
Tendra þú ljós þitt í hjarta mínu
svo ég fái gengið ævigötuna til
góðs og uppörvunar þeim sem
með mér ganga. Lát
svo ljósið þitt breiðast
út og ná þínum mildu
og friðsömu völdum í
hjörtum okkar allra
svo við festumst ekki í
tíðarandanum sem er
svo hégómlegur og í
rauninni ekki annað en
eftirsókn eftir vindi.
Hjálpaðu okkur
heldur að opna augu
okkar og hjörtu fyrir
því sem öllu er æðra
og alla varðar mest af öllu í lífi
sem dauða, það er að opna augun
fyrir fegurð lífsins, hleypa kær-
leika þínum að svo við fáum
blómstrað og notið þess friðar
sem þú býðst til að veita okkur og
við öll þráum innst inni.
Lát daggir næturinnar verða að
blessunardöggum sem vekja
hjarta mitt og næra það til eilífs
sumars, þar sem fegurð lífsins er
við völd, svo mig þyrsti ekki fram-
ar eftir því sem ekkert er. Því að
ég er þess fullviss að bestu og
fegurstu stundir ævinnar eru að-
eins sem forréttur að þeirri veislu
sem koma skal.
Opnaðu því augu mín fyrir birt-
unni og hjálpaðu mér að flýja ekki
frá kærleika þínum. Endurnærðu
mig í sumar. Leyfðu ferskum blæ
þíns heilaga anda að leika um
mig. Dýpkaðu líf mitt, gerðu mig
rótfastan og heilsteyptari svo ég
fái borið ávöxt. Varðveittu mig og
mína og vaktu yfir okkur. Takk
fyrir að fá að ganga í skjóli
vængja þinna.
Ég bið og þakka í Jesú nafni.
Amen.
Sumarbæn
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
»Hin íslenska sumar-
nótt er engu lík.
Kyrrð kvöldanna og
stillur morgnanna eru
augnablik sem ég gæti
hugsað mér að þreifa á
og gera að eilífð.
Höfundur er ljóðskáld og rithöf-
undur.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
VÍKKAÐU HRINGINN
Við gefum þriðja bílinn á þessu ári í glæsilegum
áskriftarleik fyrir trausta lesendur Morgunblaðsins.
Allir áskrifendur eru með í leiknum. Fylgstu með
þann 17. júlí þegar við drögum út fjórhjóla-
drifinn Mercedes-Benz B-Class
með 7 þrepa sjálfskiptingu
að verðmæti 6.970.000 kr.*
*Inni í verðinu er ríkulegur aukabúnaður.
Grunnverð á Mercedes-Benz B-Class CDI 4MATIC er 5.790.000 kr.