Morgunblaðið - 11.07.2015, Qupperneq 29
MESSUR 29á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Akureyrarkirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Björgvin
gítarkvartett spilar. Félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jóns-
son.
Árbæjarkirkja | Árbær, Grafarholt og Graf-
arvogur eru með sameiginlega útimessu á
Nónholti við Grafarvog kl. 11. Sr. Þór Hauks-
son þjónar. Reynir Jónasson verður á harm-
onikku. Krisztian K. Szklenár leikur á hljóm-
borð og félagar úr Kór Árbæjarkirkju leiða
söng. Boðið verður upp á grillaðar pylsur eftir
messuna. Gengin verður pílagrímsganga frá
kirkjunum þremur að Nónholti og hefst hún frá
Árbæjarkirkju kl. 10.20 en frá Guðríðarkirkju
og Grafarvogskirkju kl. 10.30.
Áskirkja | Áskirkja er lokuð vegna sumarleyfa
sóknarprests og starfsfólks til 18. ágúst.
Næsta almenna messa verður í kirkjunni
sunnudaginn 23. ágúst. Sjá nánar á askirkja-
.is.
Bústaðakirkja | Sumarmessa kl. 11. Kór Bú-
staðakirkju leiðir sönginn undir stjórn kantors
Jónasar Þóris. Messuþjónar aðstoða. Heitt á
könnunni eftir messu. Prestur er Pálmi Matt-
híasson.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og mán., mið. og fös.
kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnu-
dagsmessa.
Dómkirkjan | Messa kl. 11. Karl Sigurbjörns-
son biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Dóm-
kórinn syngur og organisti er Kári Þormar.
Egilsstaðakirkja | Messa kl. 11. Þorgeir Ara-
son sóknarprestur prédikar og leiðir stundina.
Organisti er Torvald Gjerde. Almennur
safnaðarsöngur. Kaffisopi eftir messu.
Garðakirkja | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Ung
stúlka mun fermast og Jóhann Baldvinsson
organisti spilar á orgelið. Sjá nánar á garda-
sokn.is.
Glerárkirkja | Kvöldguðsþjónusta kl. 20.
Krossbandið leikur og leiðir söng. Persónu-
legar fyrirbænir. Sr. Gunnlaugur Garðarsson
þjónar.
Grafarvogskirkja | Útimessa á Nónhæð kl.
11. Árbær, Grafarholt og Grafarvogur eru með
sameiginlega útimessu á Nónholti við Graf-
arvog (nálægt sjúkrastöðinni Vogi). Gengið
verður frá kirkjunum þremur að Nónholti og
hefst gangan frá Árbæjarkirkju kl. 10.20, en
frá Guðríðarkirkju og Grafarvogskirkju kl.
10.30. Sr. Þór Hauksson þjónar í messunni.
Reynir Jónasson spilar á harmonikku, Krisztina
K. Szklenár á hljómborð og félagar úr Kór Ár-
bæjarkirkju leiða söng. Grillað verður eftir
messu. Bílastæði er við messustað.
Grensáskirkja | Messa kl. 11. Prestur er
Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir. Molasopi eftir
messu.
Guðríðarkirkja í Grafarholti | Útimessa á
Nónhæð. Söfnuðirnir á samstarfssvæði hinnar
fornu Gufunessóknar, Árbær, Grafarholt og
Grafarvogur, eru með sameiginlega útimessu
kl. 11 á Nónholti við Grafarvog (nálægt sjúkra-
stöðinni Vogi). Sr. Þór Hauksson þjónar í mess-
unni. Reynir Jónasson verður á harmonikku.
Krisztian K. Szklenár leikur á hljómborð og fé-
lagar úr Kór Árbæjarkirkju leiða söng. Boðið
verður upp á grillaðar pylsur eftir messuna.
Hafnarfjarðarkirkja | Helgistund kl. 11. Org-
elleikur, sálmasöngur, ritningarlestur, íhugun,
bænagjörð, samfélagið um Guðs borð. Prestur
er Jón Helgi Þórarinsson. Organisti er Douglas
A. Brotchie. Kaffisopi eftir stundina.
Hallgrímskirkja | Evensong kl. 17 á laug-
ardag. Messa kl. 11 á sunnudag. Dr. Sigurður
Árni Þórðarson prédikar og þjónar ásamt sr.
Leonard Ashford og hópi messuþjóna. Félagar
úr Mótettukór leiða messusöng. Organisti er
Eyþór Franzson Wechner. Sögustund fyrir börn-
in í umsjá Ingu Harðardóttur. Gestakór, Chapel
Choir of Peterhouse frá Cambridge í Bretlandi,
syngur í messunni og heldur stutta tónleika að
messu lokinni. Alþjóðlegt orgelsumar: Tón-
leikar á laugardag kl. 12 og sunnudag kl. 17.
Hörður Áskelsson organisti leikur.
Háteigskirkja | Síðasta sumargleðin í bili.
Messa kl. 11, máltíð og leikir á eftir. Prestur er
Eiríkur JóhannSson. Organisti er Kári All-
ansson.
Hveragerðiskirkja | Guðsþjónusta í umsjón
Félags fyrrum þjónandi presta kl. 14.
Keflavíkurkirkja | Púttmessa kl. 13. á pútt-
vellinum við Mánagötu. Hið árlega kirkjumót
verður haldið og boðið verður upp á kaffiveit-
ingar í safnaðarheimilinu að móti loknu. Prest-
ur er Sigfús Baldvin Ingvason.
Kópavogskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Guðni Már Harðarson prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti er Sólveig Sigríður Ein-
arsdóttir.
Kópavogskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Guðni Már Harðarson þjónar, organisti er Sól-
veig Sigríður Einarsdóttir. Stundin er hluti af
sumarsamstarfi Þjóðkirkjusafnaðanna í Kópa-
vogi.
Laugarneskirkja | Messuhald fellur niður 28.
júní til 2. ágúst. Bent á þjónustu í Háteigs-
prestakalli á meðan.
Lindakirkja í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl.
11. Lofgjörðarstund kl. 20. Sr. Guðni Már
Harðarson þjónar. Ávextir andans leiða tónlist-
ina og Sigrún Sigfúsdóttir flytur vitnisburð.
Stundin er hluti af sumarsamstarfi Þjóð-
kirkjusafnaðanna í Kópavogi.
Maríukirkja við Raufarsel | Messutímar eru
alla virka daga kl. 18.30. Laugardaga (sunnu-
dagsmessa) kl. 18.30 á ensku. Sunnudaga kl.
11.
Miðdalskirkja í Laugardal | Fermingar-
messa kl. 14. Sr. Egill Hallgrímsson sóknar-
prestur annast prestsþjónustuna. Söngkór
Miðdalskirkju syngur. Organisti er Jón Bjarna-
son. Fermd verða Jón Gunnarsson, Kópavogi,
og Katla María Guðmundsóttir, Noregi.
Neskirkja | Messa kl. 11. Prestur er Sigurvin
Lárus Jónsson, organisti er Steingrímur Þór-
hallsson. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng.
Salt kristið samfélag | Sumarfrí fram yfir
verslunarmannahelgi.
Selfosskirkja | Messa kl. 11 á 6. sunnudegi
eftir þrenningarhátíð. Sr. Axel Á. Njarðvík
messar og lýkur þar með prestsþjónustu sinni
við Selfossprestakall að þessu sinni. Organisti
er Jörg E. Sondermann og Kirkjukór Selfoss
leiðir söng. Súpa og kaffi í hádeginu að vanda.
Seljakirkja | Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Bryndís
Malla Elídóttir þjónar og Tómas Guðni Eggerts-
son leikur á orgel.
Seltjarnarneskirkja | Helgistund kl. 11 í
umsjá sr. Franks M. Halldórssonar. Kaffisopi
eftir athöfn.
Skálholtsdómkirkja | Messa kl. 17. Sr. Egill
Hallgrímsson sóknarprestur annast prests-
þjónustuna. Í messunni verður flutt tónlist frá
sumartónleikum helgarinnar. Organisti er Jón
Bjarnason.
Þingvallakirkja | Messa kl. 14. Skírn. Krist-
ján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Organisti er Glúmur Gylfason.
Orð dagsins:
Jesús kennir af skipi.
(Lúk. 5)
Morgunblaðið/Arnaldur
Kópavogskirkja
Kjartan Hallgeirsson
lögg. fasteignasali
GSM 824 9093
kjartan@eignamidlun.is
Austurstræti – fágætt tækifæri
Höfum fengið í sölu þessi sögufrægu
endurbyggðu hús í hjarta Reykjavíkur.
Heildareignin er 2.386 fm og er hún öll
í leigu.Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Fasteignin Austurstræti 22 er í raun þrjú hús,
Lækjargata 2, Austurstræti 22 auk bakhússins
Lækjargötu 2b.
Húsin voru endurbyggð eftir verðlaunatillögu
um uppbyggingu á reitnum eftir að þau hús
sem fyrir stóðu eyðilögðust í bruna árið 2007.
Arkitektastofurnar Gullinsnið, Studio Granda
og Argos unnu tillöguna.
Sala fasteigna frá
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
Upplýsingar veitir: