Morgunblaðið - 11.07.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
✝ Pétur H. Blön-dal fæddist í
Reykjavík 24. júní
1944. Hann lést á
heimili sínu 26.
júní 2015.
Foreldrar Pét-
urs voru Haraldur
H.J. Blöndal, sjó-
maður og verka-
maður, fæddur 29.
mars 1917, dáinn
22. júní 1964, og
Sigríður G. Blöndal skrif-
stofumaður, fædd 5. september
1915, dáin 29. júní 2000. Systk-
ini Péturs eru Svanfríður
Blöndal, f. 24. júní 1944, Krist-
ín Blöndal, f. 9. desember
1946, Hjörtur Blöndal, f. 22.
júní 1950, og Lárus Blöndal, f.
22. júní 1950. Þau eru öll á lífi.
Pétur var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Monika Blöndal,
f. 31. janúar 1947, kennari.
Þau skildu. Foreldrar Moniku
voru Fritz Dworczak og Maria
Dworczak. Börn og kjörbörn
Péturs og Moniku eru 1) Davíð
Blöndal, f. 23. ágúst 1972,
maki Kristín Birna Óðins-
dóttir, f. 19. júní 1974. Börn
þeirra eru Kári, Klara og
Bergs Eiríkssonar, f. 26. jan-
úar 1945, d. 5. nóvember 2007,
og Sigríðar Eyglóar Antons-
dóttur, f. 1. janúar 1945.
Pétur lauk stúdentsprófi frá
MR árið 1965 og diplom-prófi í
eðlisfræði, stærðfræði og
tölvufræði við Kölnarháskóla
1968. Hann lauk svo diplom-
prófi í hagnýtri stærðfræði,
líkindafræði, tölfræði, trygg-
ingastærðfræði og alþýðu-
tryggingum við Kölnarháskóla
1971 og doktorsprófi í lík-
indafræði við sama háskóla
1973. Pétur starfaði sem sér-
fræðingur við Raunvísinda-
stofnun Háskóla Íslands á ár-
unum 1973-1975. Hann var
stundakennari við Háskóla Ís-
lands 1973-1977 og forstjóri
Lífeyrissjóðs verslunarmanna
1977-1984. Þá sinnti hann
tryggingafræðilegri ráðgjöf og
útreikningum fyrir lífeyris-
sjóði og einstaklinga árin
1977-1994. Pétur var fram-
kvæmdastjóri Kaupþings hf.
1984-1991 og kennari við
Verslunarskóla Íslands 1991-
1994. Hann var starfandi
stjórnarformaður Tölvusam-
skipta hf. 1994-1995. Frá 1995
til æviloka starfaði Pétur sem
alþingismaður.
Pétur var jarðsunginn frá
Kópavogskirkju 7. júlí 2015.
Knútur. 2) Dagný
Blöndal,f. 13. sept-
ember 1972, maki
Halldór Nikulás-
son, f. 19. desem-
ber 1974. Börn
þeirra eru Sandra
Sif, Pétur Andri,
Nikulás og Eva
Björt 3) Stefán
Blöndal, f. 28. júní
1976, maki Lára
Guðmundsdóttir, f.
19. febrúar 1988. Börn þeirra
eru Monika og Ólíver 4) Stella
María Blöndal, f. 30. mars
1980, maki Gunnlaugur Þor-
geirsson, f. 30. apríl 1978.
Börn þeirra eru Arnar Már,
Katrín og Elín.
Pétur átti einnig tvö börn
með Guðrúnu Birnu Guð-
mundsdóttur, f. 2. maí 1966,
tölvunarfræðingi. Foreldrar
Birnu eru Guðmundur Unnar
Agnarsson og Ingveldur
Björnsdóttir. Börn þeirra eru
1) Baldur Blöndal, f. 29. sept-
ember 1989, 2) Eydís Blöndal,
f. 3. janúar 1994.
Seinni kona Péturs var Ey-
rún Rós Árnadóttir, f. 11. júní
1975, þroskaþjálfi, dóttir Árna
Ég á eftir að sakna pabba míns
mjög mikið.
Ég á margar góðar minningar
um samveru með honum í gegn-
um árin. Ég man eftir löngu
sumrunum þar sem við börnin
fórum með mömmu yfir skólafríið
til ömmu í Þýskalandi og svo var
ferðast um alla álfuna þegar
pabbi kom. Ég man eftir hjóla-
ferðunum með honum þegar
hann skokkaði sína tugi kíló-
metra í hverri viku og fjallgöng-
unum. Ég man eftir því þegar
hann kom upp á 15 mínútna fresti
til að vekja mig, því á einhverjum
tíma sem barni fannst mér svo
gott að vera hálfvakandi og dotta
aftur. Ég á síðan einnig góðar
minningar frá síðustu ævidögum
hans, en ég tók mér frí frá vinnu í
tvo mánuði til þess að geta verið
eins mikið með honum og hægt
væri. Það var tími sem gaf okkur
báðum mjög mikið.
Pabbi hafði mörg sterk per-
sónueinkenni. Hann trúði á hið
góða í heiminum og vildi öllum
vel. Þannig hjálpaði hann öllum
sem leituðu aðstoðar hjá honum
og var t.d. undantekningarlaust
tilbúinn að passa barnabörnin.
Hann studdi fátæk börn um allan
heim í marga áratugi án þess að
segja nokkrum frá. Hann talaði
aldrei illa um neinn og fyrirgaf
fólki mistök þess. Jafnrétti var
honum hjartans mál og hann gaf
t.d. afastelpunum fótbolta og
smíðadót í jólagjöf. Hann lét aldr-
ei segja sér fyrir verkum, gerði
einfaldlega það sem honum þótti
rétt og tók lífinu eins og það kom
án eftirsjár.
Síðan hef ég aldrei nokkurn
tímann hitt einstakling sem er
eins ósérhlífinn. Sem unglingur
vann hann margar vaktir í röð
innan um úldna síldina á meðan
samstarfsfólkið gafst upp. Hann
hljóp oft í brjáluðum veðrum
þannig að tær kól eða framtennur
skemmdust. Þessa hörku sýndi
hann alveg til enda og mætti á
hvern einasta fund á Alþingi sam-
hliða því að fara í geislameðferð
og þrjár lyfjameðferðir gegn
krabbameini. Hann neitaði ein-
faldlega að skilgreina sig sem
sjúkling.
En í mínum huga situr þó fyrst
og fremst tvennt eftir. Í gegnum
alla mína ævi hefur pabbi verið
siðferðislegur áttaviti minn og
fyrirmynd. Það hefur verið alger-
lega ómetanlegt að geta leitað til
hans með hin ýmsu álitaefni og fá
hlutina setta í samhengi, en að
mati pabba var mannorðið ómet-
anlegt. Í öðru lagi má segja að
varla hafi liðið sá dagur að við
sendum ekki einhverjar vanga-
veltur á milli okkar eða tókum
margra klukkutíma langar rök-
ræður. Þær umræður byggðust
iðulega á langtímaáhrifum ein-
hverra aðgerða eða mati á áhættu
við þær, sem oft var erfitt að fá
aðra til að skilja eða hlusta á. Því
miður hefur sagan sýnt að
áhyggjur hans voru réttlætanleg-
ar, m.a. í mörgum af þeim stærstu
áskorunum sem Ísland stendur
núna frammi fyrir.
En nú eru breyttir tímar fram
undan. Núna er þessi stoð ekki
lengur til staðar. Það verður erf-
itt að taka upp símann til þess að
hringja í pabba eða sjá frétt sem
ég myndi vilja senda honum, að-
eins til að átta mig á því að enginn
er til svara. Þetta tómarúm er
vandfyllt en þegar söknuðurinn
sækir á verður vonandi huggun
að minnast hans eigin æðruleysis
og hafa það að leiðarljósi.
Davíð.
Að kveðja pabba sinn og einn
af bestu vinum sínum er óendan-
lega sárt. Sársaukinn sem ég
upplifi núna er hluti af hamingj-
unni sem ég upplifði þá.
Elsku pabbi, orðin eru fá þessa
dagana en minningarnar eru
margar.
Þú varst einn af mínum bestu
vinum og við áttum mjög sérstakt
og náið samband, þú hvattir mig í
öllu sem ég gerði og langaði til að
gera. Þú varst kletturinn minn.
Við töluðum saman nánast dag-
lega og gátum talað út í eitt, þú
gast alltaf ráðlagt mér eða bent
mér á einhverjar lausnir ef ég
þurfti á að halda.
Ég er svo þakklát núna fyrir að
hafa fylgt þér í gegnum lyfjameð-
ferðina síðustu árin uppá spítala
og veit hvað þér þótti gott og
vænt um að hafa mig og minn
stuðning þar og það gaf mér líka
mjög mikið.
Þær eru eftirminnilegar fjöl-
skyldumatarveislurnar sem við
héldum oft á föstudögum, við
systkinin, makar og barnabörnin
sem þér þótti svo vænt um.
Ég var alltaf til í hvaða ævin-
týri sem var með þér og það var
einnig gagnkvæmt, ég og Sigga
Dögg fylgdum þér heilt maraþon
á línuskautum, fórum saman í
Hvalfjarðargangahlaupið, þú að
hlaupa og ég á línuskautum en
tókst samt fram úr mér í lokin því
ég rann varla upp brattann.
Tókst á móti mér brosandi og
þegar bent var á rútuna sem átti
að flytja okkur til baka sagðir þú
„maður eða mús?“ og þá var ekk-
ert annað í stöðunni en að fara
aftur til baka.
Ég kenndi þér síðan í kjölfarið
á línuskauta sem áttu hug þinn
allan ásamt hlaupunum. Við fór-
um óteljandi hringi og langar
línuskautaferðir á sumrin, hingað
og þangað um Reykjavík og ná-
grenni en minnisstæðastar eru
ferðirnar „Úr sveit til sjávar“
þegar við fórum í góðum hóp frá
húsi Halldórs Laxness í Mosfells-
dal vestur að Gróttu á Seltjarn-
arnesi.
Þér fannst svo gaman að
dansa og saman, ásamt Hildi og
Bergdísi, fórum við á salsanám-
skeið, sem byrjaði nánast uppá
sviði í Borgarleikhúsinu í sýn-
ingu á vegum Kramhússins. Þar
kynntumst við mörgu góðu fólki
sem hélt hópinn og fórum við
vikulega að dansa salsa á salsa-
stað í bænum og hittumst einnig
oft í matarveislum, sem enduðu
yfirleitt með því að húsgögn
voru færð til og dansað salsa.
Ég hef fylgt þér í öll Lauga-
vegshlaup nema eitt og hlaupið
með þér síðustu kílómetrana og
eitt Jökulsárhlaup með Dóra og
Kollu en þá varstu orðinn mjög
veikur án þess að vita það.
Þú tókst skyndiákvörðun og
komst með mér í fyrstu göngu
mína á Hvannadalshnjúk og einn-
ig í eina Jónsmessugöngu yfir
Fimmvörðuháls, þar sem þú
reyndar hljópst og varst kominn
nokkrum klukkutímum fyrr inní
Þórsmörk og tjaldaðir fyrir okk-
ur og Bergdísi og tókst brosandi á
móti okkur.
Ég var svo ánægð að þú vildir
hafa mig með í veislunum á
Bessastöðum og fögnuðum hjá
þingflokknum. Evrópureisan er
ógleymanleg þegar við fórum tvö
með fjögur börn, Söndru, Pétur,
Baldur og Eydísi, með ekkert
plan nema það að fara til sem
flestra landa. Öll ferðalög innan-
lands, þú sem hálfgerður leið-
sögumaður.
Síðustu tveir mánuðir voru
mjög erfiðir og það var mikið áfall
um miðjan apríl þegar læknirinn
þinn sagði að þú ættir bara 2-4
mánuði eftir ólifaða og ég hugsaði
með mér að þú ættir örugglega
meiri tíma með okkur en svo urðu
þetta bara tveir mánuðir.
Ég sakna þín nú þegar svo
mikið og veit hreinlega ekki
hvernig ég á að komast í gegnum
lífið án þín þótt ég hafi fengið
ágætis ráðleggingar hjá þér varð-
andi það sem ég mun reyna að
nýta mér.
Minning um brosmildan, ljúfan
og skemmtilegan pabba sem vildi
öllum vel, lifir.
Ég mun alltaf geyma þig í
hjartanu.
Þín,
Dagný.
Meira: mbl.is/minningar
Pétur var gáfaður og góðvilj-
aður dugnaðarforkur. Þar sem
aðrir sáu aðeins þoku og súld þar
sá hann spennandi framtíðar-
tækifæri. Þekking hans og skiln-
ingur á stærðfræði, þjóðmálum,
hagfræði og kjörum fólks var ein-
stök.
Ég kynntist Pétri fyrst árið
1986 en þá kom hann í heimsókn
og vildi kaupa stóran hlut í
kennslufyrirtækinu Tölvu-
fræðslunni hf. sem ég var í for-
svari fyrir.
Hann hreifst af menntastefnu
fyrirtækisins en mikil áhersla var
lögð á að ráða fólk með góða há-
skólamenntun og markmiðið var
að kenna fólki að vinna með nú-
tíma tölvutækni við skrifstofu- og
stjórnunarstörf. Síðan lágu leiðir
okkar oft saman og sérstaklega
eftir að ég stofnaði þekkingarfyr-
irtækið Tölvu- og stærðfræði-
þjónustuna sem kennir stærð-
fræðivinnu með verkfærum
nútímans. Við voru algjörlega
sammála um að fjölbreytt hagnýt
menntun er undirstaða velmeg-
unar og framfara.
Pétur var svo áhugasamur,
hugmyndaríkur og fróður um
menntamál að ég var að vona að
hann yrði einhvern tíma mennta-
málaráðherra og hann var í póli-
tík til að hafa áhrif. Það varð því
miður aldrei og hann fékk aldrei
að nýta sína frábæru starfskrafta
í ráðherrastóli. Steininn tók þó úr
eftir kosningarnar 2007 þegar
þjóðin var á barmi hruns eftir allt
frjálshyggjuruglið. Þá þarfnaðist
þjóðin sárlega manns með mikla
þekkingu og staðfestu til að stýra
fjármálum þjóðarinnar. Enn var
gengið fram hjá Pétri og valinn í
stöðuna friðsamur maður með
góða þekkingu á dýrasjúkdóm-
um. Sú vegferð endaði hálf illa
eins og öllum er kunnugt.
Fyrir nokkrum árum hringdi
Pétur í mig frá Berlín og hafði þá
kynnt sér fjölmörg þýsk kennslu-
forrit fyrir börn. Hann sá strax þá
miklu möguleika sem góður hug-
búnaður og upplýsingatækni
skapar í starfi kennara.
Pétur var afar glettinn og gam-
ansamur og var snillingur í að út-
skýra flókin mál á einfaldan hátt.
Hann var tíður gestur í fjölmiðl-
um og aflaði Sjálfstæðisflokknum
vinsælda með skemmtilegri og
hrífandi útskýringum á vanda-
málum þjóðarinnar.
Það var mikil gæfa að njóta
vináttu Péturs og þiggja góð ráð
frá honum. Ég fór oft með fyrsta
eintakið af bókunum mínum til
hans og gaf honum áritað eintak.
Hann var undrafljótur að fara í
gegnum bækurnar og var áhuga-
samur og hugmyndaríkur gagn-
rýnandi.
Það var alltaf jafn gaman að
koma á litlu skrifstofuna hans við
Austurvöll. Þar voru myndir af
börnum hans á veggnum og hann
lét sér afar annt um þau og
menntun þeirra.
Hann leit á það sem heilaga
skyldu við þjóðina að fara vel með
opinbera fjármuni. Hann valdi
minnstu skrifstofuna á hæðinni,
ferðaðist á ódýran máta og gisti á
ódýrum hótelum.
Hann bauðst til að útvega mér
viðtalstíma við ráðherra mennta-
mála en slík bið tekur mörg ár
fyrir frumkvöðla. Ég hafnaði
góðu boði og vildi engin sérrétt-
indi umfram aðra.
Ég hitti Pétur síðast fyrir
kosningarnar 2013 en þá var
sjúkdómurinn farinn að herða
tökin en hann var glaður í bragði
og lagði óhræddur á stað í síðustu
orrustuna. Ég þakka Pétri fyrir
alla vináttuna og hvatninguna í
gegnum árin.
Aðstandendum votta ég sam-
úð.
Ellert Ólafsson.
Hann var um margt sérstakur,
hann Pétur Blöndal, frjór í hugs-
un og afburðagreindur, leit málin
öðrum augum en flestir samferð-
armenn, sagði skoðanir sínar um-
búðalaust á mönnum og málefn-
um, gat verið hvass en samt svo
innilegur. Það voru forréttindi að
fá að kynnast honum og vinna
með honum í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins og við söknum
vinar og samferðamanns.
Sagt hefur verið að viskuna
öðlist menn aðeins með því að
hafa hugann ávallt opinn og vak-
andi og það átti svo sannarlega
við um Pétur Blöndal. Oftar en
ekki kom hann með svo mörg og
margslungin sjónarhorn á mál-
efnin að við hin sátum þögul, ann-
að tveggja skildum við hann ekki
eða hugsuðum þetta er PHB en
við hlustuðum og stundum tók-
umst við á.
Pétur Blöndal hafði óbilandi
áhuga á að breyta kerfum sam-
félagsins sem voru flókin og erfið
þeim sem í þeim voru eða þurftu
að leita til þeirra, þar hélt hann á
lofti og fylgdi fast eftir sjónarmið-
um og aðferðum sem hann taldi
að miðuðu að því að gera kerfin
réttlátari og skilvirkari oftar en
ekki fyrir þá sem minna máttu sín
í samfélaginu. Við félagar hans í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins
munum fylgja hans málum eftir á
komandi þingum og heiðra á þann
hátt minningu hans.
Góður og vandaður maður er
fallinn frá og heimurinn er fátæk-
ari án hans, megi hann hvíla í
friði. Við í þingflokki Sjálfstæð-
isflokksins kveðjum góðan félaga
og sendum fjölskyldu hans okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
F.h. þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Kveðja frá Sjálf-
stæðisflokknum
Stórt skarð og vandfyllt er
höggvið í raðir okkar sjálfstæð-
ismanna. Frá er fallinn félagi
okkar og vinur, Pétur H. Blöndal,
einhver ötulasti málsvari sjálf-
stæðisstefnunnar og borgara-
legrar raunsæisstefnu í íslenskri
þjóðmálaumræðu og á Alþingi Ís-
lendinga í tvo áratugi.
Pétur var skarpgáfaður maður
og hugur hans beindist í ýmsar
áttir. Öllu því gaf hann góðan
gaum og hugsaði til þrautar, en
það átti jafnt við um innri hugð-
arefni og verkefni þau, sem hann
tókst á hendur. Pétur var há-
menntaður í eðlisfræði, stærð-
fræði, líkindafræði, tölfræði,
tryggingastærðfræði og alþýðu-
tryggingum, en hann var doktor
frá Kölnarháskóla. Jafnframt afl-
aði hann sér umfangsmikillar
þekkingar á fjölmörgum sviðum
öðrum eftir því sem áhuginn
bauð. Yfirburðaþekkingu sína og
víðfeðma reynslu í akademíu og
atvinnulífi hagnýtti Pétur sér við
þingstörf sín og til að ná fram ein-
földum lausnum í flóknum við-
fangsefnum, líkt og í málefnum
lífeyrissjóða, efnahagsmálum og
við endurskoðun almannatrygg-
ingalaga, svo nokkur dæmi séu
tekin. Þótt Pétur hafi einatt verið
talsmaður hinnar köldu rök-
hyggju, þá skyldi enginn halda að
honum hafi verið hið mannlega
fjarri. Þvert á móti var áhuginn á
mannlegri velferð driffjöðrin í
öllu hans starfi.
Pétur markaði sér mikla sér-
stöðu sem þingmaður. Hann var
prinsippmaður, sem vann að hug-
sjónum sínum af dugnaði og elju-
semi, var ávallt samkvæmur
sjálfum sér og gaf aldrei afslátt af
grundvallarskoðunum sínum.
Sumum þótti jafnvel nóg um á
stundum, sögðu dugnaðinn
þrjósku og staðfestuna einstreng-
ingshátt. En þótt stjórnmálin séu
mikið til list hins mögulega,
samningar og eftirgjöf, þá er
nauðsynlegt að hafa menn eins og
Pétur með sér í liði, til þess að
minna á grundvöllinn, hvað sé
umsemjanlegt og hvað ekki.
Gagnvart andstæðingunum var
Pétur fastur fyrir og ef þeir vildu
ekki beygja sig fyrir rökum hans,
þá eyddi hann engum tíma í
mælskubrögð: þeir urðu bara að
hafa rangt fyrir sér! En það segir
sína sögu að í hópi pólitískra and-
stæðinga naut hann bæði virðing-
ar og væntumþykju.
Eldmóður Pétur hætti aldrei
að koma mér á óvart þau tólf ár,
Pétur H. Blöndal
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson