Morgunblaðið - 11.07.2015, Blaðsíða 33
sem við störfuðum saman á Al-
þingi. Hann lét aldrei deigan síga
og vann nánast óskiljanleg þrek-
virki í þingstörfum sínum allt til
síðasta dags, þrátt fyrir erfiða
baráttu sína við krabbameinið,
sem lagði ótal hindranir á vegi
hans á síðastliðnum misserum.
Hann vissi vel hvert stefndi, en
hann vildi ekki eftirláta sjúkdóm-
inum einum degi meira en þyrfti,
því það var svo margt sem þyrfti
að gera.
Mér þykir afar vænt um þetta
samstarf okkar Péturs á þingi og
get borið um það að ég, líkt og
fleiri nýir þingmenn, lærði mikið
af honum. Elja hans, staðfesta og
ákefð var hverjum þingmanni góð
fyrirmynd og verður það áfram
fyrir okkur þingsystkini hans.
Vonandi getum við miðlað því
áfram. Ég mun sakna Péturs. Ég
mun sakna samtala okkar um
pólitík, efnahagsmál og lífsgát-
una, ég mun sakna góðu stund-
anna og þessara erfiðu líka, en
mest af öllu mun ég sakna þess
góða vinar sem nú er hniginn til
hinstu hvílu.
Fyrir hönd Sjálfstæðisflokks-
ins votta ég fjölskyldu Péturs
samúð okkar og þakkir fyrir allt
og allt. Guð blessi minningu Pét-
urs H. Blöndal.
Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Um Pétur H. Blöndal má segja
það sama og sagt var um annan
mikinn kappa: Engum var Pétur
líkur. Þegar hann kom til þings
árið 1995 var hann ákaflega vel
undirbúinn fyrir það starf. Góð og
mikil menntun hans, margþætt
lífsreynsla og þekking sem hann
hafði aflað sér varð haldgott
veganesti inn á þær einstöku
lendur sem þingmannsstarfið svo
sannarlega er.
Athyglisvert er að jómfrúræða
hans á Alþingi laut að réttindum
kvenna. Hann lagði út frá lífsgild-
um sínum um einstaklingsfrelsið
og þeim hagsmunum atvinnulífs-
ins og þjóðarinnar að konur jafnt
og karlar fengju sömu tækifærin.
Það væri ekki einasta rétt út frá
hugsjónum manna um einstak-
lingsfrelsið heldur væri einfald-
lega efnahagslega skynsamlegt.
Mig minnir að málflutningur
hans hafi notið mismikils skiln-
ings. Nú, 20 árum síðar, á hundr-
að ára afmæli kosningaréttar
kvenna, var þessum rökum hins
vegar teflt fram og þau viður-
kennd.
Þannig var Pétur hinn ódeigi
baráttumaður oft á undan samtíð
sinni í málflutningi sínum, braut
ísinn og barðist óhikað gegn
straumnum.
Það var þessi eiginleiki hans
sem aflaði honum virðingar og
vinsælda. Oftsinnis varð ég þess
var að margir vildu gjarnan eiga
þess kost að heyra málflutning
hans, kannski þar sem maður átti
þess ekki endilega von. Á lands-
byggðinni var stundum kallað eft-
ir því að Pétur mætti með okkur
landsbyggðarþingmönnunum á
fundi í kjördæmum okkar.
Menn sóttust eftir því að heyra
hans frísklegu viðhorf og einarða
málflutning. En því fór fjarri að
Pétur fetaði alltaf greiðfæra slóð í
stjórnmálabaráttu sinni. Það er
líka þannig með þá sem eru trúir
sjálfum sér og hugsjónum sínum.
Dugnaður Péturs var líka
stundum alveg með eindæmum.
Stjórnmálastarfið var honum um-
fram allt ástríða. Hann naut þess
og vildi helst ekki víkja úr þing-
salnum á meðan fundir stóðu yfir.
Eftir að heim var komið vann
hann áfram að málefnaundirbún-
ingi, oft langt fram á kvöld og
nætur. Eftir að sjúkdómurinn
sem að lokum felldi hann, var far-
inn að herja á hann, hvöttum við
félagar hans hann oft til að leggja
ekki svona hart að sér. Á þau ráð
hlustaði hann helst aldrei, en stóð
meðan stætt var.
Þó að Pétur hafi mjög haslað
sér völl í umræðu um fjármál og
efnahagsmál var hugur hans frá-
leitt bundinn við þau mál ein og
sér. Hans lífsskoðun var sú að
ríkisvaldið ætti að takmarka, en
því ætti hins vegar að beita í þágu
þeirra sem á þyrftu að halda.
Þess vegna var hann einn okkar
helsti sérfræðingur um trygg-
ingamál, enda menntaður á því
sviði. Hann benti okkur á veilur
og rangsleitni í tryggingalöggjöf-
inni, sem nauðsynlegt væri að
breyta. Síðustu misserin vann
hann sleitulaust að róttækum
breytingum á þessum sviðum,
sem vonandi eiga eftir að líta
dagsins ljós.
Pétur Blöndal var minnisstæð-
ur maður. Við kynntumst vel,
enda sat ég með honum á þingi
allan hans þingmannsferil. Hann
var góður félagi og vinur, mál-
efnalegur, vel að sér og hugsjóna-
maður af lífi og sál. Hans er nú
sárt saknað.
Eiginkonu hans og fjölskyldu
sendum við Sigrún kona mín okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Einar K. Guðfinnsson.
Pétur H. Blöndal var óvenju-
legur þingmaður. Ástríðufullur í
öllu sem hann fékkst við, hvort
sem það voru þingstörfin, mara-
þonhlaup um fjöll og firnindi,
hjólaskautarnir um allan bæ eða
dansinn á erlendum diskótekum.
Hann var alveg þindarlaus. Við
sem unnum náið með honum
kynntumst þessu vel.
Um árabil vorum við saman í
ÖSE, Íslandsdeild þings Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu. Á
fundum á fjarlægum slóðum var
Pétur stundum búinn að hlaupa
marga kílómetra um ókunnar
heimsborgir þegar við mættum
fyrir allar aldir á fundi. Þar
spurði hann óvenjulegra spurn-
inga sem vöktu oft furðu. Það var
gaman að fylgjast með honum
þar sem þýskan rann upp úr hon-
um eins og innfæddum Þjóðverja.
„Hver er þessi þingmaður? Það
hefur enginn spurt svona spurn-
inga áður,“ var sagt við okkur. Í
fyrstu voru svörin sem Pétur
fékk nokkuð rýr, en hann gafst
ekki upp. Hann hafði sitt fram að
lokum og vakti aðdáun fyrir.
Í nánu samstarfi í hátt á annan
áratug, í félagsmálum og heil-
brigðis- og tryggingamálum í
nefndum þingsins, tókumst við
oft á og rökræddum það flókna
kerfi sem við þekktum bæði
manna best og er svo mikilvægt
að gagnist þeim sem á það þurfa
að treysta.
Vinnusamur var hann. Eljan
var engu lík, hvort sem um var að
ræða nýtt greiðsluþátttökukerfi
fyrir sjúklinga, sem við lágum yfir
tímunum saman í tvö ár, eða önn-
ur verkefni. Í nefndinni sem
kennd var við hann kynntum við
okkur greiðslukerfi í nágranna-
löndunum sem við vildum horfa til
við breytingarnar. Pétur vildi
ganga lengra og hafa allt velferð-
arkerfið undir. Hann var óþreyt-
andi að búa til reiknilíkön, töflur
og línurit. Við þá vinnu nutu
nefndarmenn reynslu og sérþekk-
ingar Péturs í stærðfræði og
tryggingafræðum.
Pétur var hreinskilinn, hrein-
skiptinn, umhyggjusamur, skarp-
greindur, einlægur og viðkvæm-
ur. Sérstaklega var honum
ráðdeildarsemi í blóð borin. Hjá
honum var ekki eytt í vitleysu.
Ég átti með honum dýrmætar
stundir þar sem hann deildi
óvenjulegri lífsreynslu sinni og
sýn á lífið. Við ræddum barna-
uppeldi og matargerð og áhuga-
verðar aðferðir hans og upp-
skriftir.
Hann nálgaðist viðfangsefnin
ólíkt öðrum. Það er dýrmætt fyrir
löggjafarsamkomu að eiga þing-
menn sem skera sig frá fjöldan-
um og sjá verkefnin í öðru ljósi.
Það auðgar umræður og skilar oft
að lokum betri niðurstöðum. Pét-
ur var slíkur þingmaður. Ég
þakka vináttu hans og gott sam-
starf á Alþingi í átján ár, sem ekki
bar skugga á. Börnum hans og
fjölskyldu votta ég samúð.
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir.
Ég veit ekki hversu miklu
þetta starf mitt hefur skipt eða
hvort það hefur haft nokkur
raunveruleg áhrif,“ sagði Pétur
við mig í einu af okkar síðustu
samtölum. Við Pétur höfðum oft
áður rætt um stjórnmálin, hug-
sjónirnar og baráttuna fyrir
betra samfélagi en eftir því sem
nær dró endalokunum var ljóst að
hann spurði sig stöðugt áleitnari
spurninga um tilganginn og það
sem mestu skiptir. Í góðu sam-
ræmi við það eyddi hann síðustu
vikunum heima með börnunum
sínum og sagði mér í síðasta
tölvupóstinum sem hann sendi
mér að það væru einstök forrétt-
indi og hann færi sáttur og sæll
eftir góðar samverustundir með
þeim.
Við Pétur kynntumst árið 1995
þegar hann settist á Alþingi í
fyrsta sinn og ég hóf störf sem
framkvæmdastjóri þingflokks
Sjálfstæðisflokksins. Pétur hafði
þá hlotið góða kosningu í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins og þá
strax var ljóst að hann yrði kraft-
mikill, vinnusamur og stefnufast-
ur þingmaður. Þannig var hann
alltaf óþreytandi í að vinna hug-
sjónum sínum og stefnu Sjálf-
stæðisflokksins fylgi, óhefðbund-
inn í áherslum sínum og
aðferðum og óeigingjarn í að
sinna af áhuga öllum þeim verk-
efnum sem hann taldi viðfangs-
efni stjórnmálanna. Fyrst og
fremst var hann baráttuglaður
hugsjónamaður sem langaði ekk-
ert meira en að hafa áhrif til góðs.
Einmitt þess vegna var svo
auðvelt að svara því þegar hann
efaðist um eigið ágæti eða áhrif,
með því að benda á hversu oft ein-
stök mál urðu betri eftir aðkomu
hans; hversu oft áherslur Sjálf-
stæðisflokksins urðu farsælli fyr-
ir hans tilstilli og hversu margt
fólk hreifst af stjórnmálum og
baráttunni fyrir betra samfélagi
einmitt vegna hans.
Pétur Blöndal var stjórnmála-
maður sem munaði um. Hans
verður sárt saknað af vettvangi
stjórnmálanna og Sjálfstæðis-
flokksins sem mun lengi búa að
hans góða starfi, sterku hugsjón-
um og skýru draumum um enn
betra Ísland. Ég kveð Pétur með
miklu þakklæti fyrir að hafa
kynnst þessum einstaka stjórn-
málamanni og fyrir að hafa getað
kallað hann samflokksmann,
samstarfsmann og vin til margra
ára. Öllum ástvinum hans sendi
ég innilegar samúðarkveðjur með
ósk um að blessuð sé minning
þessa góða manns.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Kveðja frá Félagi íslenskra
tryggingastærðfræðinga
Pétur Blöndal var um árabil fé-
lagi í Félagi íslenskra trygginga-
stærðfræðinga (FÍT), sat nokkr-
um sinnum í stjórn félagsins og
var formaður þess árin 1990-
1993. Pétur stundaði nám í hag-
nýtri stærðfræði, líkindafræði,
tölfræði, tryggingastærðfræði og
alþýðutryggingum við Kölnarhá-
skóla og lauk doktorsprófi frá
skólanum árið 1973. Á langri
starfsævi kom Pétur víða við,
stjórnaði Lífeyrissjóði verzlunar-
manna, var forstjóri Kaupþings,
kennari og alþingismaður. Alls
staðar vakti hann athygli fyrir
atorkusemi, brennandi áhuga og
elju við að koma málum áfram.
Pétur hafði góðan skilning á
þeim málefnum sem sneru að
tryggingastærðfræði, ekki aðeins
út frá tæknilegri hlið heldur ekki
síður hvaða áhrif mismunandi
reglur stjórnvalda hefðu á líf al-
mennings. Hann var síðustu árin
formaður nefndar sem lagði til
breytingar á almannatrygginga-
kerfinu, en nefndin hafði ekki lok-
ið störfum þegar hann lést. Pétur
var alla tíð talsmaður þess að
peningum skattgreiðenda væri
vel varið, þannig að þeir nýttust
þeim sem mest þyrftu á þeim á
halda.
Pétur var traustur félagi, ein-
lægur og hreinskiptinn, hafði
góða þekkingu á sínu fagi sem
nýttist vel í störfum hans á Al-
þingi. Hann var fljóthuga og
áhugasamur um framgang sinna
mála, en sumar af hans hugmynd-
um festust í viðjum svifaseins
stjórnkerfis.
Pétur var áhugasamur um
menntun tryggingastærðfræð-
inga og beitti sér sem formaður
FÍT fyrir kynningu á greininni.
Hans verður saknað af kollegum
og samstarfsmönnum.
Félagið vottar fjölskyldu Pét-
urs innilega samúð.
Vigfús Ásgeirsson,
formaður.
Kveðja frá Verði – full-
trúaráði sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík
Réttsýni, dugnaður og vinnu-
semi einkenndu ávallt störf Pét-
urs H. Blöndal sem í tvo áratugi
vann þrotlaust og óeigingjarnt
starf á Alþingi í þágu okkar
Reykvíkinga. Það var eiginlega
ekki annað hægt en að bera virð-
ingu fyrir Pétri sem stjórnmála-
manni enda var hann fastur fyrir
og hélt alla tíð sínum grunngild-
um.
Hann var ætíð málefnalegur
og óhræddur við að tjá sína skoð-
un, rökstyðja og verja þrátt fyrir
mótlæti.
Pétur var líka með eindæmum
duglegur, hann var ávallt að
vinna í hinum og þessum málum
inni á þingi og gerði það alltaf
með þeim hætti að prýði var að.
Meira að segja á þessum síðustu
árum, þegar hann háði langa og
erfiða baráttu vegna veikinda
sinna virtist dugnaðurinn og elju-
semin eflast sem aldrei fyrr.
Samstarf mitt við Pétur á vett-
vangi Sjálfstæðisflokksins var
gott, við vorum kannski ekki allt-
af sammála um allt en ég bar þó
ómetanlega virðingu fyrir honum
og hans hugsjónum. Péturs verð-
ur sárt saknað, með fráfalli hans
hafa reykvískir sjálfstæðismenn,
sem og í raun borgarbúar allir,
misst litríkan og einlægan mál-
svara sem alla tíð fylgdi eigin
sannfæringu. Takk, Pétur, fyrir
samstarfið, fyrir störf þín í þágu
flokksins og í þágu þjóðar, megi
minning þín og arfleifð lifa um
alla framtíð.
Hugur minn hvílir hjá fjöl-
skyldu Péturs og henni sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Óttarr Guðlaugsson,
formaður Varðar –
fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík.
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁSLAUGAR SÓLBJARTAR
JENSDÓTTUR
frá Núpi í Dýrafirði.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
starfsfólki deildar 2B á hjúkrunarheimilinu
Eir.
.
Ásta Valdimarsdóttir,
Gunnhildur Valdimarsdóttir,
Rakel Valdimarsdóttir, Sigurður Björnsson,
Hólmfríður Valdimarsdóttir, Birgir Sigurjónsson,
Kristinn Valdimarsson, Guðrún Ína Ívarsdóttir,
Jensína Valdimarsdóttir, Georg V. Janusson,
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, Björn Stefán Hallsson,
Sigríður Jónína Valdimarsdóttir,
Viktoría Valdimarsdóttir, Diðrik Eiríksson,
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR,
fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og síma,
Hellu,
lést miðvikudaginn 1. júlí á
hjúkrunarheimilinu Ísafold, Garðabæ.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug, sérstaklega þökkum við
starfsfólki Ísafoldar fyrir frábæra umönnum og hlýhug.
.
Særún Jónasdóttir, Kjartan Sigurðsson,
Helgi Jónasson, Bodil Mågensen,
Guðrún Kjartansdóttir,
Sigurrós O. Kjartansdóttir, Sacha Ásgeir Medina,
Jónas Helgason, Dorothy Bisse Groth,
Michael Toby Helgason,
Kjartan Hjaltalín,
Viktor Freyr.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN VIÐAR TRYGGVASON
múrari,
Kópavogsbraut 1b, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hans.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Þeim sem vija minnast
hans er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi.
.
Guðmunda Sigurðardóttir,
Tryggvi Jónsson, Ingveldur Bragadóttir,
Sigurður Helgi Jónsson, Liv Kari Tyvand,
Jón Viðar Jónsson, Þorbjörg Hróarsdóttir,
Hreinn Jónsson, Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morg-
unblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda
inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur rennur út.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar