Morgunblaðið - 11.07.2015, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Embætti hæstaréttardómara laust til umsóknar
Innanríkisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Stefnt er að því að
skipa í embættið frá og með 1. október 2015 eða hið fyrsta eftir að nefnd um hæfni dómara hefur lokið starfi
sínu í samræmi við 4. gr. a laga um dómstóla nr. 15/1998 og reglur um störf dómnefndar sem fjallar um
hæfni umsækjenda um dómaraembætti nr. 620/2010. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 4. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Í samræmi við 4. gr. reglna nr.
620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) núverandi starf, 2) menntun og framhalds-
menntun, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum,
6) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar
ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af öðrum
aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 9) upplýsingar
um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum,
11) upplýsingar um tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði
munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr.
620/2010 og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli
skipta fyrir störf hæstaréttardómara.
Umsóknir óskast sendar til innanríkisráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík og á netfangið
postur@irr.is. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í
munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og
greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af
úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af
tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði
auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem hæstaréttardómari.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem
notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
skipun liggur fyrir.
Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu eigi síðar en 4. ágúst nk.
Innanríkisráðuneytinu,
10. júlí 2015.
Glímufélagið Ármann óskar eftir að ráða íþróttafulltrúa í 75%
starf. Ármann er fjölgreina íþróttafélag, með aðsetur í Laugar-
dalnum. Félagið er með um 2.600 virka iðkendur í 12 deildum.
Starfssvið:
• Að stuðla að metnaðarfullu og faglegu starfi félagsins.
• Samskipti við allar deildir Ármanns.
• Samskipti við ÍSÍ, ÍTR, ÍBR, sérsamböndin og önnur félög.
• Umsjón og ábyrgð á skráningakerfum sem félagið notar, s.s Felix
og Nora. Skýrslugerðir fyrir félagið.
• Fagleg aðstoð við ráðningu þjálfara deilda Ármanns.
• Úthlutun æfingatíma ÍBR í samráði við framkvæmdastjóra.
• Skipulag skólastarfs á vegum Ármanns t.d sumarskóla.
• Samskipti við skóla, kirkju, félagsmiðstöðvar, lögreglu og aðra sem
koma að íþrótta- og félagsmálum barna og unglinga á starfssvæði
Ármanns.
• Aðstoð við viðburði á vegum félagsins.
• Önnur störf sem stjórn eða framkvæmdastjóri óskar eftir á hverjum
tíma.
Hæfniskröfur:
• Framúrskarandi mannleg samskipti og vilji til að starfa með öðrum.
• Þjónustulund og faglegur metnaður.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Háskólapróf og/eða mikil reynsla sem nýtist í starfi.
• Æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu og/eða reynslu í notkun á
skráningar- og skýrslukerfum félagsins s.s Nora og Felix.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í haust þegar ný önn hefst.
Umsóknarfrestur er til 24 júlí. Umsóknir og fyrirspurnir skal senda
á netfangið jon.thor@armenningar.is og verður farið með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
Samkvæmt lögum ÍSÍ verða umsækjendur að skila inn sakavottorði eða heimila
félaginu að óska eftir því.
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á
augl@mbl.is
eða hafðu
samband í síma
569-1100
Allar auglýsingar
birtast bæði í
Mogganum og
ámbl.is
ER AUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?