Morgunblaðið - 11.07.2015, Side 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Ólafur Már Ásgeirsson hefur unnið við dúklagningar og vegg-fóðranir meirihluta ævi sinnar, en hann lærði fagið hjá föðursínum, Ásgeiri Val Einarssyni. Ólafur rekur fyrirtækið Dúk-
arinn Óli Már og hefur tekið þátt í félagsstarfi dúklagninga- og vegg-
fóðrarameistara, setið í stjórn og verið formaður. Hann rak heild-
verslun og OM búðina á Grensásvegi, allt í sambandi við gólf- og
veggefni, en hefur starfað eingöngu við fagið sjálft síðustu 20 árin.
Ólafur hefur verið viðriðinn tónlist meira og minna allt sitt líf. „Það
var stanslaus músík á heimilinu mínu, móðir mín og systkini hennar
spiluðu mikið. Ég lærði ungur á píanó og fór svo einnig út í rafmagns-
orgelið. Ég var í ýmsum hljómsveitum en þekktust þeirra var Sóló og
spiluðum við mikið á Keflavíkurflugvelli og sveitaböllum um allt land.
Síðast spilaði ég með Garðari Guðmundssyni söngvara fyrir Félag
eldri borgara í Spöng fyrr á þessu ári.“
Eiginkona Ólafs er Camilla Hallgrímsson. „Við kynntumst fimmtán
ára á skautum á Tjörninni. Svo fórum bæði utan til náms, ég í ensku-
nám og hún í djassballett, en byrjuðum aftur saman þegar heim var
komið og eigum 50 ára brúðkaupsafmæli á þessu ári.“ Camilla var
varaformaður Íþróttasambands fatlaðra yfir 20 ár, hefur fengið
viðurkenningar frá íþróttahreyfingunni og verið virkur félagi í Lions-
hreyfingunni. Sjálfur hefur Ólafur verið meðlimur í Lionsklúbbnum
Viðari í yfir 25 ár, setið í stjórn og verið formaður. Börn Ólafs og
Camillu eru Thor Ólafsson og María Ólafsdóttir.
Ólafur heldur upp á daginn í faðmi fjölskyldunnar í Skorradal.
Fjölskyldan Ólafur ásamt Camillu, börnum og barnabörnum í tilefni
100 ára minningar um móður Ólafs, Sigríði Beinteinsdóttur.
Kynntist konunni á
skautum á Tjörninni
Ólafur Már Ásgeirsson er sjötugur í dag
A
rnheiður og Ólöf fædd-
ust á Akureyri 11.7.
1975 en ólust upp í
Hrísey frá þriggja ára
aldri. Þær voru í
Grunnskólanum í Hrísey.
Starfsferill Arnheiðar
Arnheiður lauk stúdentsprófi frá
MA 1995, B.Sc.-prófi í rekstr-
arfræði frá HA og M.Sc.-prófi í al-
þjóðamarkaðsfræði frá The Uni-
versity of Strathclyde í Glasgow
árið 2000. Hún hefur einnig sótt
ýmis námskeið til Evrópsku einka-
leyfastofunnar (EPO).
Á háskólaárum hér heima á
sumrin vann Arnheiður á Hótel Ak-
ureyri, Hótel Húsavík og á hótelum
í Austurríki og Noregi auk þess
sem hún vann við fiskvinnslu í
Hrísey, á Djúpavogi og Akureyri,
en sumarið 1999 starfaði hún við
FSA.
Arnheiður vann við úttektir á
sjálfsmatsaðferðum grunn- og
framhaldsskóla fyrir mennta-
málaráðuneytið 1999, sinnti tíma-
bundinni stöðu framkvæmdastjóra
Kötluvikurs ehf. 2001, var verk-
efnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands 2003-2011, var verk-
efnastjóri flugklasans Air 66N hjá
Markaðsstofu Norðurlands í 2011-
2013 en í ársbyrjun 2013, varð hún
framkvæmdastjóri Markaðsstofu
Norðurlands sem er samstarfsvett-
vangur Norðurlands í ferðamálum.
Að Markaðstofunni standa um 180
ferðaþjónustufyrirtæki og 19 sveit-
arfélög.
Arnheiður hefur þróað og stýrt
ýmsum námskeiðum um gerð við-
skiptaáætlana og stofnun og rekst-
ur fyrirtækja, m.a. Brautargengi,
Sóknarbraut og Frumkvöðlaskól-
anum sem var undirbúinn í sam-
starfi við Háskólann á Akureyri.
Arnheiður og Ólöf Jóhannsdætur
Tvíburar með tvíbura Tvíburasysturnar Arnheiður og Ólöf með tvíburasyni Arnheiðar, þá Friðrik Brynjar og Örv-
ar Þór Þorbergssyni. Auk þess á Arnheiður þrjú börn en Ólöf á tvo syni og Magnús Ingi, maður hennar, einn son.
Hressar systur úr Hrísey
Guðrún María Gunnarsdóttir, frá
Kirkjubæ, Vestmannaeyjum, er 70 ára í
dag, 11.júlí. Hún mun taka á móti vinum og
vandamönnum að heimili sínu, Tröllakór
14, í Kópavogi, milli klukkan 14 og 18 í dag.
Árnað heilla
70 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
FRÁ
106.800kr
FRÁ
122.900kr
58.900kr
KÍKTU Á VEFVERSLUN
KRUMMA.IS