Morgunblaðið - 11.07.2015, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
YUMI MATBORĐ
115 CM
GINA
AMI
OSLO SKENKUR 160 CM - KR. 152.800
KR.. 78.800
KR.. 19.700
KR.. 19.900
FRÁBÆRT
ÚRVAL
AF PÚĐUM
NÝTT - CALVIN
HORNTUNGUSÓFI
260X203
KR. 247.600
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Notaðu daginn til þess að halda upp
á árangurinn sem þú hefur náð í tilteknu
sambandi. Ekki gera ekki neitt í vandamáli
sem skotið hefur upp kollinum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú vinnur sjálfum/sjálfri þér aðeins
tjón með því að neita að horfast í augu við
staðreyndir. Reyndu að halda aftur af þér og
ekki æsa þig upp þó að móti blási.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver samskiptavandi ríkir milli
þín og vinnufélaga þinna. Vertu sáttfús.
Mundu að réttlætið sigrar alltaf að lokum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert að endurskipuleggja heiminn
þinn og ástvinur virðist standa í veginum.
Ekki grípa fram í fyrir öðrum nema lífið liggi
við.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú blómstrar af ást og þarft að fá útrás
fyrir sköpunarhæfileika þína. Umhyggja þín
fyrir öðrum jafngildir lækningamætti. Aldrei
er góð vísa of oft kveðin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þegar þú metur sjálfa/n þig, gera aðr-
ir það líka. Smekkur fólks er ólíkur og ekki
alltaf eins og þinn. Reyndu að sigla milli skers
og báru.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þetta er reglulega vondur dagur ef þú
hyggst leita til yfirmanns eða foreldra með
tiltekið efni eða biðja um leyfi. Samræður við
vini eru hlýlegar og innilegar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samræður við maka þinn skipta
óvenjumiklu máli þessa dagana. Njóttu hvíld-
ar en vertu á varðbergi ef engin verkefni eru á
dagskránni hjá þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er einhver sem er að þrýsta á
þig og vill fá þig til að gera hlut sem þér er
þvert um geð. Ekki láta undan ef þér er mis-
boðið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fylgdu málum þínum eftir af djörf-
ung og dug. Forðastu manneskju sem tekur
frá þér orku með stöðugum kvörtunum. Allir
vilja elli bíða, en enginn hennar mein líða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinn í dag er kjörinn til að
fara í gegnum eigur þínar, tímarit, bækur og
hluti sem þú hefur haldið dauðahaldi í. Hug-
myndaauðgi þín er mikil í dag og það skaltu
notfæra þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt skilið að hvíla þig eftir góða
vinnutörn. Einhleypir í fiskamerki njóta hugs-
anlega góðs af fjármagni annarra næstu vik-
ur, jafnvel mánuði.
Síðasta vísnagáta var eftir Guð-mund Arngrímsson sem endra-
nær:
Fagur margan fuglinn skreytir,
Fatnaður sá blautur er.
Ofsareiði útrás veitir.
Eitilharður bjargar sér.
Árni Blöndal á þessa lausn:
Skreytir fugla fagur hamur.
Fór úr blautum ham í gær.
Hamóður, í ham – ei tamur.
Hamramur sér bjargað fær.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Fjaðrahamur fugla skreytir,
fara úr hamnum kafarar.
Í reiðihamnum rógi hreytir,
rekkur einhamur vart þar.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Haminn á hænan magra.
Í hamskipti blautt þarf skinnið.
Hamslaus er hetjan fagra.
Hamhleypur: Verki sinnið!
Næstur er Helgi R. Einarsson:
Hamur glæstur anda er,
í úrkomu ég haminn ber,
með hamsleysið oft heimskan fer,
hamrammur ei kveinkar sér.
Og í lokin er ráðning Guð-
mundar:
Fjaðrahamur fuglinn skreytir.
Flíkin blauta hamur er.
Ofsabráður hamur heitir.
Hamhleypan æ bjargar sér.
Og að venju lætur hann limru
fylgja:
Hann Grettir var eigi einhamur,
við óvini barðist hamramur.
Á Glámi vann
sá garpur og hann
síðan var ekki samur.
Hér kemur svo ný gáta eftir Guð-
mund:
Lögg af víni víst hann er.
Valtur stundum reynist hann.
Traustur þó af gulli ger.
Í Gúttóslag menn báru þann.
Gömul vísa í lokin:
Kári stóð í falda flík
fast um slóðir keilu
svo að óðum öldubrík
öslaði móð að Keflavík.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af hamskiptum
Í klípu
„HEFÐI ÞAÐ DREPIÐ ÞIG AÐ
RAKA ÞIG ÁÐUR?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERS VEGNA SETTI GUÐ ÖLL VÍTAMÍNIN
Í KÁL OG ENGIN Í NAMMI?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að taka úr eyrunum
meðan hún talar.
ÉG HUGSA AÐ ÉG
GERI EITTHVAÐ
KARLMANNLEGT.
EINS OG
HVAÐ?
SLÁ GARÐINN BER
AÐ OFAN!
ÉG ER
FASTUR.
NÚNA ER
TÆKIFÆRIÐ
ÞITT TIL ÞESS
AÐ FLÝJA.
ER ÞETTA
GRÆNMETI
„SANNGIRNIS-
VOTTAГ?
ÞAÐ ER ÞAÐ EF
ÞÚ BORGAR
FYRIR ÞAÐ.
HEIMS-
ENDIR
Í NÁND
Víkverji fór til Vestmannaeyjaekki alls fyrir löngu. Þar er
gaman að vera. Herjólfur stoppaði í
Landeyjahöfn aldrei þessu vant.
Þegar Víkverji dró upp dós af ís-
lensku neftóbaki komu nokkrir góðir
menn og úr varð pínulítil heitapotts-
stund – um borð í bát.
x x x
Rætt var um höfnina. Einn sagðiað hún hlyti að vera mestu mis-
tök Íslandssögunnar. Erfitt er að
mótmæla því.
„Höfn er aldrei mistök. Vesenið
með höfnina er náttúrunni að
kenna,“ sagði annar og þáði góðan
slurk í nefið. Snýtti sér ekki fyrr en
eftir hálftíma. Það fannst Víkverja
sérstakt. Hvað ætli sé metið í að fá
sér góðan slurk í nefið og snýta sér?
Sjálfur getur Víkverji aldrei verið
með tóbakið lengur innan nasa en í
nokkrar sekúndur.
x x x
Hver ætli séu mestu mistök þjóð-arinnar í byggingum? spurði
Víkverji í sæluvímu. „Hallgríms-
kirkja var illa byggð og efnið sem
var valið til að byggja turninn var
blautt. Enda kostaði mikið að reyna
að laga turninn,“ sagði einn. „Harp-
an mun alltaf hafa slæman stimpil á
sér,“ sagði annar. Sá þriðji benti á að
turnarnir í miðbænum væru ekki
fallegir og pössuðu illa að mið-
bænum. Sá fjórði sagði að hótelið
sem nú rís undir merkjum Fosshót-
els hefði engan heillað, minnti helst
á sovéska bæjarblokk. Grátt og ljótt.
x x x
Ljótar byggingar, brýr eða hafnireru lýti og það á ekki að leyfa
einum arkitekt að ráða hvernig
svona ægileg hús líta út,“ sagði
meistarinn sem gat verið með nef-
tóbakið í hálftíma.
Slíkt er trúlega rétt hjá þeim
gamla. Víkverji telur óþolandi að
menn með ljótan smekk geti ráðið
hvernig landið lítur út.
Þegar umræðan var að ná há-
marki renndi Herjólfur að landi.
Karlarnir stóðu upp, þökkuðu fyrir
tóbakið og kvöddu.
x x x
Eftir stóð Víkverji, tóbakslaus.víkverji@mbl.is
Víkverji
Ef einhver er í Kristi er hann orðinn
nýr maður, hið liðna varð að engu,
nýtt er orðið til. Síðara Korintubréf 5:17