Morgunblaðið - 11.07.2015, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
AF TÓNLIST
Hjalti St. Kristjánsson
hjaltistef@mbl.is
Þegar þetta er ritað er hátíðinEistnaflug búin að fara afarvel fram. Það má segja að
tveir dagar séu liðnir af tónleika-
haldi og hillir undir upphaf þess
þriðja. Jafnframt virðist ansi stutt í
að við þurfum að segja skilið við
Neskaupstað þetta árið.
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að sambúðin hafi verið góð.
Hér er óskaplega vel hugsað um
okkur gestina. Það eru ruslastampar
á hundrað metra fresti á helstu
gönguleiðum og kamrar á öðru
hvoru götuhorni. Allt er tæmt dag-
lega og þrifið. Fyrir þetta greiðum
við vissulega gjald, sem kom ansi
flatt upp á marga þar eð þetta er í
fyrsta skiptið sem þjónustugjald er
innheimt við afhendingu armband-
anna á hátíðina. 2.000 krónur er
kannski ekki há upphæð, hins vegar
kom hvergi fram við miðakaup að
upphæðin sem greidd var fyrir mið-
ann væri ekki endanleg upphæð, það
styggði suma.
Annað sem kalla mætti undar-
legt er að aldurstakmarkið á hátíð-
ina er óhagganlegt. Yngri en 18 ára
fá ekki að fara inn, óháð því hvort
þeir eru í fylgd með forráðamönnum
eður ei. Þetta stingur örlítið í stúf
þar eð landslög leyfa ungmennum að
sækja vínveitingastaði í fylgd með
forráðamönnum. Tónleikahaldari
sagði mér þó að hann væri ekkert að
velta sér upp úr þessu því að svona
hefði þetta alltaf verið. Samstarfið
við alla sem eiga þarf við til að halda
svona hátíð væri svo gott að þetta
einstaka atriði væri ekki fyrirstaða.
Rífandi rokk
Tónleikahald dagsins hófst
klukkan 14.30. Var strax tekið fast á
því og meðlimir fyrsta bands voru
allir klæddir hinum nýja einkennis-
búningi íslenskra þungarokkara:
gallabuxum, hettupeysu og jakka-
fatajakka. Svolítið skítugt, svolítið
smart. Frontmaðurinn var með til-
komumikinn líkfarða (e. corpse
paint) og meðlimir allir, svona heilt á
litið, nokkuð ófrýnilegir. Þar fór
hljómsveitin Auðn og fer vel á því að
hvetja alla málmáhugamenn að
kynna sér þá öðlingspilta.
Næst fór hin danska LLNN.
Sú hljómsveit var mér að öllu ókunn
en kom skemmtilega á óvart. Hel-
þétt og keyrði á öllum átta strokk-
um allan tímann. Aðrar hljómsveitir
kvöldsins þarf svo kannski síður að
kynna. Agent Fresco var þrælgóð
og hélt uppi dúndrandi stemningu.
Sjaldan hef ég séð menn jafn glaða
yfir því að spila nokkurs staðar og
var þakklæti þeirra fúslega end-
urgoldið í þakklæti tónleikagesta.
Doktor Gunni sté á svið og hélt uppi
góðu fjöri ásamt því að telja í gamla
slagara sem ég tel fullvíst að fæstir
hafi átt von á. Hin fornfræga pönk-
hljómsveit DYS fór mikinn og
þrumaði sér á ótrúlegum hraða í
gegnum prógrammið. Og þar mátti,
bak við trommusettið, sjá glitta í
sjálfan tónleikahaldarann, Stefán
Helvítis rokking rokk
Gleði Drengirnir í Agent Fresco voru þrælgóðir og ákaflega glaðir yfir því að leika á Eistnaflugi.
Magnússon. Hann var hress. Kont-
inuum keyrði í góða upphitun fyrir
komandi landvinninga, en sú sveit
er á útleið til frekara tónleikahalds.
Hún er ein þeirra sem ég heyri
landa mína sjaldan tala um en er þó
reglulega á faraldsfæti erlendis.
Tékkið á henni!
Punkturinn yfir i-ið
Hljómsveitirnar Conan frá
Bretlandi og Rotting Christ frá
Grikklandi set ég undir sama hatt.
Þessar hljómsveitir hafði ég ekki
náð að kynna mér svo heitið gæti og
hef því svo sem ekki margt um þær
að segja. Sludge-metal Bretarnir
náðu klárlega að hreinsa út úr öllum
opum, eins og Stefán sagði sjálfur nú
á dögunum. Rotting Christ spilaði
bara helvítis þungarokk og gerði það
vel. Það var pínu sérkennilegt að
heyra sungið á grísku en gott samt.
Fyrra aðalnúmer kvöldsins, Car-
cass, var ekki minna en stórkostlegt.
Keyrði alveg á útopnu allan tímann
og var meira að segja með vindvél
eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Hitt aðalnúmerið var svo Sólstafir.
Þeir eru í fantaformi, enda í góðri
æfingu, og leikmaðurinn gat ekki
greint nein áhrif frá nýafstöðnum
mannabreytingum.
Heilt yfir var kvöldið stórgott
og nú þegar er Eistnaflug farið að
búa sér til stað í hjarta undirritaðs.
» Sludge-metalBretarnir náðu klár-
lega að hreinsa út úr öll-
um opum, eins og Stefán
sagði sjálfur nú á dög-
unum.
Stórkostlegt Fyrra aðalnúmer kvöldsins, Carcass, var ekki minna en
stórkostlegt. Keyrði alveg á útopnu allan tímann og var m.a.s. með vindvél.
Ljósmyndir/Gaui H
Sólstafir Voru í fantaformi, enda í góðri æfingu, og leikmaðurinn gat
ekki greint nein áhrif af nýafstöðnum mannabreytingum.
Myndlistarmennirnir Ingólfur
Arnarsson og Þuríður Rós Sigur-
þórsdóttir opna sýningu í Skaft-
felli á Seyðisfirði í dag kl. 16.
Í tilkynningu segir um verk
Ingólfs og Þuríðar að við fyrstu
sýn virðist þau nota ólíkar leiðir í
listsköpun sinni.
„Stefnumót verkanna sem hér
eru til sýnis felst í spurningunni
um málaralistina, verkin geta tal-
ist til málaralistar án þess að
vera eiginleg málverk,“ segir í
tilkynningu. Steinsteyptar lág-
myndir Ingólfs birtist sem kyrr-
lát inngrip með óreglulegu milli-
bili á veggjum sýningarrýmisins.
Verk hans hafi með lóðrétta fleti
veggjarins að gera en Þuríður
beini athyglinni að láréttum gólf-
fletinum og á sama hátt dragi
verk hennar fram eðli flatarins
sjálfs. Sýningin bjóði upp á
vangaveltur um efniskennd og
fleti og endurskoðun vafans um
það hvað felist í málverki og
hvað geri málverk að málverki.
Enn fremur velti hún upp hug-
myndum um það hvernig lista-
verk taki yfir rými eða hvernig
þau búi um sig í rýminu og vinni
með því, tengi við það, við arki-
tektúrinn sjálfan, við lóðrétta og
lárétta fleti rýmisins sem hvor
listamaður um sig hafi tekið í
sína þjónustu. Til að draga enn
fremur fram gagnvirknina á milli
verkanna og rýmisins verði flutt
hljóðverk við opnun sýningar-
innar eftir raftónsmiðinn Auxpan,
sérstaklega samsett og flutt af
þessu tilefni.
Ingólfur og Þuríður sýna saman í Skaftfelli
Ingólfur
Arnarsson
Þuríður Rós Sig-
urþórsdóttir
Egypski kvikmyndaleikarinn Omar
Sharif lést af völdum hjartaáfalls í
Kaíró í gær, 83 ára að aldri.
Að sögn Steve Kenis, umboðs-
manns Sharifs, hafði leikarinn dval-
ist á sjúkrahúsi fyrir Alzheimer-
sjúklinga en hann greindist með
sjúkdóminn fyrr á þessu ári.
Sharif fæddist 10. apríl 1932.
Hann byrjaði að leika í kvikmynd-
um á sjötta áratug síðustu aldar en
varð heimsfrægur þegar hann lék
arabahöfðingja í kvikmyndinni
Arabíu-Lawrence árið 1962. Hann
hlaut Golden Globe-verðlaun fyrir
leik sinn í myndinni og var til-
nefndur til Óskarsverðlauna. Hann
fékk önnur Golden Globe-verðlaun
fyrir leik sinn í myndinni Doctor
Zhivago árið 1965. Sharif lék í
fjölda kvikmynda og sjónvarps-
þátta á næstu áratugum. Hann var
einnig bridsspilari í fremstu röð og
tók þátt í mótum víða. Hann spilaði
meðal annars á bridshátíð í Reykja-
vík árið 1991.
Bridsstjörnur Omar Sharif og Zia
Mahmood á bridshátíð árið 1991.
Omar Sharif látinn