Morgunblaðið - 11.07.2015, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
AF TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Finnskir vinir mínir giftu sigum síðustu helgi og viðhjónin flugum yfir til
þeirra og samglöddumst. Brúð-
kaupið var haldið á lítilli, skógi
vaxinni eyju rétt við borgarmörk
Helsinki og að lýsa umhverfi sem
og aðstæðum sem myndrænum
nær vart upp í það sem fram fór.
Það var eins og við værum að
leika í bíómynd og tikkað var í öll
þau box sem skandinavískt sveita-
brúðkaup að sumarlagi felur í
sér.
Fyrir utan mat, drykk, ræðu-
höld, punt og pjátur lék tónlist
veigamikið hlutverk í brúðkaup-
inu. Tilgangur hennar að því leyt-
inu til var giska margþættur; hún
var stundum í brennidepli (t.d.
þegar gestir tróðu upp með atriði
eða þegar hljómsveit eða plötu-
snúður lék fyrir dansi) og stund-
um í víkjandi stöðu ef við getum
orðað það sem svo (plötusnúður
lék hálfgildings bakgrunnstónlist
undir spjalli á tímabili og daginn
eftir, yfir morgunmat, var tón-
hlaða brúðgumans látin malla
undir morgunmatnum). Tónlistin
þurfti þá ekki endilega að glymja
í eyrum fólks, hún virkaði líka
sem ísbrjótur í samræðum þeirra
sem voru áhugasamir um þetta
eðla listform (þó að tilkoma
snjallsíma geri það æ algengara
að fólk fletti upp tóndæmum til
að styðja mál sitt). Tónlistin var
þannig yfir og allt um kring, þó
að maður gerði sér ekki alltaf
sterklega grein fyrir því.
Villtur dans
Eftir að hafa komið siglandi
upp að eyjunni á lítilli bátsskel
gengu brúðhjónin upp að sam-
komuhúsinu, þar sem brúðgum-
inn hélt eilitla tölu. Við svo búið
einhentu nýbökuð brúðhjónin sér
í lag ásamt kornungum börnum
sínum, spilað var á það sem hendi
var næst og mágkona gumans
söng gamalt finnskt dægurlag af
miklum fítonskrafti. Undir borð-
haldi tróðu svo vinir upp með lítil
tónlistaratriði, frumsamið efni
sem tökulög, í söngvaskáldabún-
ingi sem hljómsveitar. Yðar ein-
Sumarbrúðkaup í Finnlandi
Fjör Bad Ass Brass Band skemmti gestum en það var brúðguminn sjálfur, hönnuðurinn og tónlistarunnandinn
Jussi Karjalainen, sem á heiðurinn af því. Hér gefur að líta nýjustu plötu sveitarinnar.
lægur lagði meira að segja í
púkkið ásamt betri helmingnum.
Byrjaði á því að afskræma fallegt
lag eftir kántrílistamanninn Chris
Stapleton (ekki viljandi, ég klúðr-
aði því og það gjörsamlega) en
við björguðum okkur fyrir horn
með orkuríkri útgáfu af „Who’s
Got the Crack“ með The Moldy
Peaches.
Gestum að óvörum kom svo
blásturssveitin Bad Ass Brass
Band þrammandi upp að húsinu
og hóf að pumpa út dansvænni og
nokk trylltri klezmer-tónlist.
Sveitin færði sig inn í sal og náði
að vippa upp þvílíka stuðinu, ung-
ir sem aldnir stigu villtan dans
sem andsetnir væru. Sameining-
araflið í svona nokkru er einkar
fallegt og hrífandi. Þegar um
hægðist tók svo plötusnúður við,
reyndur höfðingi sem af smekk-
vísi lék gamla finnska dæg-
urtónlist, blús, sálartónlist og
rokk og ról.
Úti um allt
Til eru ótal kenningar um
hvernig tónlist litar líf okkar á
margvíslega vegu og hvernig við
nýtum okkur hana, meðvitað sem
ómeðvitað. Stundum er hún svo
sjálfsögð reyndar að við tökum
varla eftir henni. Ég veit fyrir
víst að brúðhjónin lögðu ekki
sérstaklega upp með að hafa
brúðkaupið „tónlistarlegt“ en
þarna var hún samt, alltaf og úti
um allt.
Líf án tónlistar væri mistök
sagði Nietzsche og ágætt fyrir
forpokaða ráðamenn og aðra
„óunnendur“ lista að hafa þau
vísu sannindi í huga næst þegar á
að teygja sig í niðurskurðarhníf-
inn eða tuðskjóðuna.
» Til eru ótal kenn-ingar um hvernig
tónlist litar líf okkar á
margvíslega vegu og
hvernig við nýtum okk-
ur hana, meðvitað sem
ómeðvitað. Stundum er
hún reyndar svo sjálf-
sögð að við tökum varla
eftir henni.
Hvert er samfélagslegt hlutverk tón-
listar? Sumarbrúðkaup sýnisdæmi
an. Þeir hétu þá að reisa kirkju á
þessum stað ef þeim yrði bjargað.
Pétur mun því fjalla um dýrling kirkj-
unnar, Maríu mey, og færa rök fyrir
því að það hafi í raun verið María mey
sem þarna birtist sæförunum,“ segir
Björg.
Túristar fá dýrmætt tækifæri
„Ég hef fundið fyrir ánægju hjá
heimamönnum með að það sé boðið
upp á fleiri viðburði í kirkjunni, en
svo er auðvitað messað reglulega í
kirkjunni. Aðstæðurnar breyttust
mikið þegar nýi Suðurstrandar-
vegurinn kom. Það gerbreytti
streyminu þarna um. Það er mjög
mikið um túrista sem koma þarna
núna. Við höfum orðið vör við það að
ferðafólkið er mjög þakklátt fyrir að
fá þarna tækifæri til þess að hlýða á
tónlist, jafnvel þegar tónlistarmenn
eru að æfa í kirkjunni,“ segir hún.
Meðal annarra viðburða í sumar má
nefna tónleika Svavars Knúts og
Kristjönu Stefáns sunnudaginn 19.
júlí auk þess sem þrjár söngkonur,
Ísabella Leifsdóttir sópran, Margrét
Einarsdóttir sópran og Þóra Pas-
sauer kontra-alt, ásamt Magnúsi
Ragnarssyni organista, munu koma
fram á tónleikum 2. ágúst. Sunnu-
daginn 9. ágúst koma fram Eyjólfur
Eyjólfsson tenór, sem jafnframt
leikur á langspil, Hugi Jónsson barí-
tón og Kári Allansson sem leikur á
harmóníum og orgel. Á loka-
tónleikum 16. ágúst mun Sigrún
Hjálmtýsdóttir koma fram ásamt
Björgu Þórhallsdóttur, Elísabetu
Waage og Hilmari Erni Agnarssyni,
en þá mun einnig verða upp-
skerumessa í umsjá sr. Baldurs
Kristjánssonar sóknarprests.
Tríó Hrólfur, Helga Bryndís og Björg koma fram á sunnudaginn.
ÍSLENSKT TAL
ARNOLD
SCHWARZENEGGER
EMILIA
CLARKE
SÝND MEÐ ENSKU TALI Í 2D
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 2D OG 3D
EIN STÆRSTA FJÖLSKYLDUMYND ÁRSINS
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
Ódýrt í bíó
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS
SÝND KL. 2
SÝND KL. 2
Miðasala og nánari upplýsingar
SÝND
Í 2D
SÝND Í
2D OG 3D
ÍSL
TAL
ÍSL
TAL