Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2015
Það er búið að vera bara ágætt. Það skiptist á
gott og slæmt. Ég hefði viljað fá meiri hita og
geta farið meira í sólbað.
Helga Rut Sæmundardóttir
Eins og þið sjáið er það bara mjög gott. Þeg-
ar sumardagurinn fyrsti kemur fer ég bara í
stuttbuxur og er í þeim yfir sumartímann.
Guðjón Þór Mathiesen
Það hefði mátt vera betra. Það er búin að
vera leiðindarigning og ég hefði viljað meiri
sól. Ég hafði svosem ekki miklar væntingar,
það er búið að vera leiðinlegt í allan vetur.
Ylva Rós Þorleifsdóttir
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Ég verð hér á landi í rúman mánuð og finnst
veðrið mjög gott. Ég er fæddur í október í
landinu mínu, Lettlandi, og þar er veðrið allt-
af svona í október.
Neimantas
Morgunblaðið/Kristinn
SPURNING VIKUNNAR: HVAÐ FINNST ÞÉR UM VEÐRIÐ Í SUMAR?
Guðmundur Ingi Þor-
valdsson, framkvæmda-
stjóri Tjarnarbíós, hefur það
að markmiði að gera
Tjarnarbíó að lifandi heimili
sjálfstæðra sviðslista. Á
næsta leikári verða frum-
sýndar 13 sýningar í Tjarn-
arbíói, þar af átta ný íslensk
leikrit. Menning 48
Í BLAÐINU
Morgunblaðið/Kristinn
Forsíðumyndina tók
RAX
Feneyjatvíæringurinn er umfangsmikið æv-
intýri fyrir alla áhugamenn um lifandi listsköpun.
Sumir skálarnir eru vel lukkaðir en aðrir vekja minni
athygli. Menning 44
Safakúrar af ýmsum
toga njóta mikilla vin-
sælda um þessar mundir
en hverjir eru meintir
kostir þeirra og hvernig
líður manneskju eftir að
hafa lifað á fljótandi fæði í
nokkra sólarhringa? Er
það yfirhöfuð hægt?
Heilsa og hreyfing 16
Útivinnandi mæður
eru líklegri til að ala upp
dætur sem gengur betur í
vinnu og syni sem taka
meiri þátt í uppeldi og
heimilisstörfum en börn
heimavinnandi mæðra, að
því er segir í nýlegri ritgerð
við Harvard Business
School. Fjölskyldan 31
Gunnar Ragnarsson er annar söngvarinn í Grísalappalísu, sem er ein þeirra
hljómsveita sem spila á ATP Iceland-tónlistarhátíðinni í ár. Hljómsveitin
mun spila á ókeypis tónleikum á Kex hosteli næstkomandi miðvikudags-
kvöld, 8. júlí, og troða upp á hátíðunum LungA og Eistnaflugi í sumar.
GUNNAR RAGNARSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hvað ertu að gera í þessum samfestingi?
Ég er að háþrýstiþvo blokkirnar hérna við KR-völlinn. Þegar ég er ekki að syngja í
rokkhljómsveit háþrýstiþvæ ég stundum byggingar fyrir Berglindi ehf. Við
Baldur, sem er hinn söngvarinn í Grísalappalísu, mundum oft byssurnar
saman í vinnunni.
Hvað er Grísalappalísa?
Við erum rokkhljómsveit skipuð sjö tón-
listarmönnum á þrítugsaldri úr Reykjavík. Við
erum búnir að gefa út tvær plötur og tvær sjö-
tommur. Ali hét fyrsta platan, sem kom út árið 2013, og
þar á eftir Rökrétt framhald, sem kom út í fyrra. Við leggjum
áherslu á að semja texta á íslensku og vera svolítið pönkaðir
á því.
Hvað merkir titill hljómsveitarinnar?
Hljómsveitin er nefnd eftir laginu Grísalappalísu eftir Meg-
as. Það er á plötunni Drögum að sjálfsmorði, uppáhaldsplötu
okkar Baldurs. Þegar við vorum niðurlútir að drekka fyrir
nokkrum árum – áður en við stofnuðum hljómsveitina því nú er-
um við alltaf svo glaðir – vorum við alltaf að hlusta á Drög að sjálfs-
morði.
Hvernig tónlist spilið þið?
Við erum með svolítinn geðklofa hvað það varðar. Þetta er kannski
rokktónlist með aðferða- og fagurfræði pönksins að leiðarljósi. Fyrir
alla í hljómsveitinni er mjög mikið frelsi fólgið í Grísalappalísu. Allt
má flakka, við tökum okkur ekki of alvarlega og flækjumst til og frá í
stílum og áhrifum. Til dæmis eru tvö lög á nýjustu plötunni þar sem
við höfum Bruce Springsteen fastlega í huga og annað lag sem heitir
Þurs, því þar kemur kafli sem minnir mjög á Þursaflokkinn.
Hverjir eru bestu tónleikar sem þið hafið haldið?
Þeir eru svo margir, maður. Við fórum í tónleikaferð um landið í fyrra
sem við kölluðum Gríslandstúrinn. Við ætlum að gefa út „live“ plötu með
upptökum af honum. Ef ég þyrfti að nefna eitthvað eitt var sá túr alveg
sérstaklega eftirminnilegur.
Hvernig hefur ykkur litist á ATP í ár?
Ótrúlega vel. Þetta er langbesta dagskrá sem ég hef vitað af á tónlistar-
hátíð á Íslandi. Við erum fáránlega sáttir við þetta, bæði að spila og sjá hina
tónlistarmennina.
Hver eru stærstu nöfnin í ykkar augum?
Þessi stóru frægu nöfn eru náttúrlega flott en síðan er svo margt í boði. Belle
and Sebastian og Iggy Pop voru bæði á fimmtudeginum en þetta er ekki eins
og á Secret Solstice-hátíðinni þar sem allt þetta stóra var á einu kvöldi og ekk-
ert í gangi hina dagana. Á ATP horfir maður á dagskrána og sér að það er bara
ennþá meiri snilld kvöldin sem eftir eru. Ég var spenntur fyrir nöfnum eins og
Lightning Bolt, Swans, Ice Age og ótrúlega mörgu fleiru.
Munda byssurnar og
eru pönkaðir á því