Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2015
Undantekningarlítið hafa lög, reglur ogönnur ríkisafskipti að einhverju leytiaðrar afleiðingar en þeim er ætlað.
Þeir sem bönnuðu áfengi á fyrri hluta síðustu
aldar hafa vafalaust ekki ætlað sér með því að
renna stoðum undir starf glæpamanna og jafn-
vel glæpasamtaka eins og raunin varð víða á
Vesturlöndum.
Alls kyns boð og bönn af þessu tagi, þar sem
reynt er að stýra neyslu fullorðins fólks, færa
framleiðslu og sölu með hið forboðna undir yf-
irborðið.
Svo eru það lögin sem taka af einum og færa
öðrum.
Þeir sem lögðu drög að lögum um húsaleigu-
bætur á sínum tíma hafa líklega ekki ætlað
þeim að leiða til hærra leiguverðs og enda þar
með í vasa leigusalans. Það er engu að síður
sennileg niðurstaða af slíkum ríkisstyrkjum til
leigjenda. Þeir sem sömdu lög um vaxtabætur á
húsnæðislán hafa vonandi ekki heldur ætlað sér
að færa fé frá skattgreiðendum til fjármála-
stofnana en að öllum líkindum leiða slíkir styrk-
ir til lántöku til hærri vaxta á lánum íbúðar-
kaupenda en ella væri.
Þessi dæmi eru af löggjöf sem er ekki mjög
flókin og í raun hefði mátt blasa við í upphafi
að hún gæti haft þessar afleiðingar.
Það liggur í augum uppi að eftir því sem lög
verða flóknari er hættara við alls kyns hlið-
arverkunum af þessu tagi og ekki síður að erf-
itt sé að koma auga á óæskilegar afleiðingar.
Lögum um endurnýjanlegt eldsneyti var ætl-
að að láta bíleigendur í gegnum ríkissjóð styðja
framleiðslu á innlendu eldsneyti í nafni um-
hverfisverndar. Lögin eru byggð á miklum
bálkum Evrópusambandsins um sama efni
ásamt séríslenskum fjallabaksleiðum. Raunin
varð hins vegar sú að ríkisstyrkirnir hafa að
mestu leyti runnið úr landi til framleiðenda á
endurnýjanlegu lífeldsneyti. Þar fór stuðning-
urinn við innlenda framleiðslu. Lífeldsneyti er
að auki mjög umdeilt vegna þess að það er
framleitt úr matjurtum. Í desember 2013 lagði
hópur samtaka á borð við Greenpeace og
Friends of Earth fram harða gagnrýni á stefnu
Evrópuríkja varðandi lífeldsneyti því hún
„leiddi til aukins en ekki minni útblásturs gróð-
urhúsalofttegunda í samanburði við jarðefna-
eldsneyti, hefði skógareyðingu í för með sér og
skaðaði fjölbreytileika lífríkisins, hrekti smá-
bændur af jörðum sínum og ógnaði fæðuöryggi
fátækasta fólksins í veröldinni“. Þar fór um-
hverfisverndin fyrir lítið.
Þetta er ágætt að hafa í huga þegar menn
ætla að leysa hvern vanda með nýjum lagabálki
eða handfylli af skattfé.
Lögin hafa aukaverkanir
* Það liggur í augumuppi að eftir því sem lögverða fleiri og flóknari er
meiri hætta á alls kyns
óvæntum uppákomum og ekki
síður að erfitt sé að koma
auga á óæskilegar afleiðingar.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridur.is
Heiða Rún
Sigurð-
ardóttir, leik-
konan sem er
að slá í gegn í
Poldark í Bret-
landi, er nýlega
komin til landsins í sumarfrí. Mik-
ið er rætt um hinn mikla fjölda
ferðamanna sem streymir til Ís-
lands og það vakti athygli Heiðu
að sjá hvergi Íslending á leiðinni
heim í flugvélinni en hún skrifaði á
Twitter: „Er að fara í loftið til Ís-
lands, ég sver að ég held að ég sé
eini Íslendingurinn hér í röðinni.
Hvar eru þeir eiginlega?“
Margir
minntust Pét-
urs H. Blöndal
alþingismanns
með hlýju á
samskipta-
miðlum í vik-
unni en Pétur lést fyrir um viku.
Þeirra á meðal var Karen Kjart-
ansdóttir, upplýsingafulltrúi LÍÚ,
sem skrifaði á Facebook: „Pétur
var eitt sinn í útlöndum. Hann
vildi hlaupa maraþon en var skó-
laus. Hann keypti sér því par og
lagði af stað. Fljótlega fann hann
að skórnir pössuðu honum engan
veginn, eða eins og hann sagði:
„Ég missti allar táneglurnar en
maður heldur samt alltaf áfram og
klárar verkefnið.“ Þetta fannst
mér lýsandi fyrir hann. Blessuð sé
minning Péturs.“
Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson,
prófessor við
Háskóla Ís-
lands, skrifaði
á Facebook í
tilefni rektorsskipta í Háskóla Ís-
lands: „Ég var viðstaddur rekt-
orsskiptin, þegar Jón Atli Bene-
diktsson tók við af Kristínu
Ingólfsdóttur. Þau eru bæði sóma-
fólk, frambærileg og góðviljuð. Ég
velti því hins vegar stundum fyrir
mér á háskólahátíðum, hvort eft-
irsóknarvert sé, að svo margir
stundi háskólanám, sérstaklega í
hugvísindum. Þurfum við ekki
frekar meiri hagnýta þekkingu?
Fleiri rafvirkja, smiði,
pípulagningamenn, vélvirkja? Og
eiga ýmsar umönnunargreinar
heima í háskóla? Er ekki betra að
þjálfa fólkið á staðnum, á sjúkra-
húsum, dagheimilum og í skól-
um?“
AF NETINU
Vettvangur
Í kjölfar þess að einn virtasti ferða-
vefur heims, Lonely Planet, valdi
Akureyri sem einn besta áfanga-
stað Evrópu í ár hafa fjölmiðlar
ytra veitt kaupstaðnum fyrir norð-
an þó nokkra athygli. Þannig birtist
á dögunum viðtal við bæjarstjórann
á Akureyri, Eirík Björn Björgvins-
son, í Huffington Post þar sem
hann sat fyrir svörum um ýmislegt
er tengist Akureyri. Blaðamaður
Huffington Post hefur sjálfur
ferðast til Akureyrar og segir er-
lenda ferðamenn ekki vera nægi-
lega meðvitaða um ágæti Akureyr-
ar heldur séu of fastheldnir á að
halda sig við Reykjavík. Akureyri
sé engu síðri.
Í viðtalinu við vefmiðilinn er Ei-
ríkur Björn meðal annars spurður
út í hvernig eigi að bera fram „Ak-
ureyri“ og bæjarstjórinn svarar að
fyrir enskumælandi fólk sé best að
setja kaupstaðarheitið saman
svona: „Accu-ray-ri“. Hins vegar
þurfi enginn að hafa áhyggjur af
því sem ferðast til Íslands að kunna
ekki tungumálið þar sem hérlendis
tali nær allir ensku og margir þar
að auki skandinavísk tungumál,
þýsku og frönsku. Hann fræðir les-
endur um veðurfarið fyrir norðan,
hvernig sé best að komast þangað,
hátíðir svo sem verslunarmanna-
helgina og helstu kennileiti bæj-
arins sem og það áhugaverðasta
sem skoða má í næsta nágrenni
Akureyrar. Bæjarstjórinn ráð-
leggur ferðamönnum að dvelja í
það minnsta 4-5 daga á staðnum til
að fá sem mest út úr ferðinni.
Að lokum var Eiríkur Björn
spurður út í hvaða gersemar ferða-
menn gleymi stundum að skoða
sem ættu síður að gleymast og
nefndi bæjarstjórinn þá sundlaug-
arnar og bergmyndanirnar við
Krossanesborgir.
Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur
Björn Björgvinsson, sat fyrir svörum
hjá Huffington Post.
Akureyri í kastljósinu
Akureyri er engu síðri staður
til að heimsækja en Reykjavík,
samkvæmt Huffington Post.
Morgunblaðið/Ómar