Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Síða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Síða 11
5.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 Tvennar systur úr Fljótshlíðinni opna á morgun, sunnudag, myndlistarsýningu í Sögusetrinu á Hvolsvelli sem er hluti menningar- dagskrár í Rangárþingi eystra sem ber yfirskriftina Þær í 100 ár. Lista- konur þessar eru systurnar Hrafn- hildur Inga og Þórdís Alda Sig- urðardætur frá Vestur-Sámsstöðum og Þórhildur og Sigrún Jónsdætur frá Lambey. Við opnun sýning- arinnar kl. 16 verða lesin ljóð og fleira, allt menning úr héraðinu. „Móðir náttúra – landið í öllum sínum birtingarmyndum – er rauði þráðurinn í verkum okkar fjögurra. Lagt var upp með að hver sýndi tvö til átta verk í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna.“ segir Sig- rún Jónsdóttir. Sýningin, sem opnuð verður á sunnudaginn, stendur fram til 7. ágúst næstkomandi. Tveimur dögum síðar, 9. ágúst, verður önnur opnun og þá sýna verk sín rangæsku listakonurnar Álfheið- ur Ólafsdóttir, Guðrún Le Sage De Fontenay, Katrín Jónsdóttir og nafna hennar Óskarsdóttir. Þá verð- ur flutt tónlist við opnunina – og sitt- hvað fleira skemmtilegt verður raunar einnig á dagskránni. FLJÓTSHLÍÐ Listakonan í Fljótshlíðinni, Sigrún Jónsdóttir, með pensilinn á vinnustofu sinni. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Systur með sýningu Starfsemi Perlna fjarðarins erokkar leið til að byggja undiratvinnulífið í þorpinu, efla þá ferðaþjónustu sem hér er fyrir. Hér á Flateyri, þar sem atvinnulífið er einhæft, hafa sjávarútvegsfyrir- tækin ítrekað tekið kollhnísa með þeim afleiðingum að nánast hvert einasta vinnandi mannsbarn verður atvinnulaust,“ segir Bryndís Sig- urðardóttir á Flateyri. Kyrrðin er mannbætandi Nýlega stofnuðu Bryndís, Hermann Þorsteinsson, Halldór Bragason og Guðmundur Konráðsson fyrirtæki á Flateyri, Perlur fjarðarins. Með því er ætlunin að sameina krafta allra þeirra í Önundarfirði sem ferða- þjónustu sinna. Sú starfsemi á svæðinu er reyndar orðin nokkuð fjölbreytt, þar eru þrjú gistiheimili, íbúðagisting á nokkrum stöðum, fyrirtæki sem býður upp á sjóst- angveiði, kajakleiga, handverkshús, söfn og veitingastaður. Meira er í bígerð á Flateyri, en almennt segir Bryndís að lengja þurfi ferða- tímabilið og bæta við afþreyingar- og gistimöguleikum og veitingasölu. Að því sé líka unnið um þessar mundir. „Önundarfjörður er fallegur og hér er, þótt ótrúlegt sé, mikil veð- ursæld. Kvöldlognið og kyrrðin er mannbætandi og okkur langar að gefa gestum fjarðarins tækifæri til að njóta þessarar mögnuðu náttúru sem hér er,“ segir Bryndís. Nefnir að í Önundarfirði séu óteljandi möguleikar á gönguferð- um, léttum og erfiðum, fjölbreytt fuglalíf og Holtsströndin með sínum hvíta sandi. Meira þurfi þó að gera, svo sem bjóða upp á skipulagðar göngu- og fuglaskoðunarferðir með leiðsögn. Enn blæðir úr sárinu Meira verður í boði. Hermann hef- ur skipulagt gönguferðir um bæinn þar sem sögð er saga snjóflóðsins sem féll haustið 1995 þegar tuttugu manns fórust. „Snjóflóðið 1995 var svo mikill harmleikur að hann er ennþá blæðandi sár og mjög erfitt verkefni að nálgast. Þetta var af- drifaríkur atburður í sögu stað- arins,“ segir Hermann sem tók þátt í björgunarstörfum á sínum tíma og mun segja ferðafólki söguna frá þeirri hlið. „Við viljum varpa ljósinu á hvernig til tókst við aðgerðir og hvernig almannavarnir og björg- unarsveitirnar takast almennt á við svona verkefni. Hér stóðu menn við leit að vinum og fjölskyldu og nú má spyrja hvernig því fólki hafi gengið að vinna úr þeirri reynslu. En fyrst og síðast viljum við fá að gleðjast innilega yfir þeim sem björguðust eða sluppu,“ segir Her- mann. Bókhald og múrverk Bryndís er Sunnlendingur og bjó lengst í Hveragerði. Starfaði lengi við hugbúnaðarþjónustu og átti þá oft erindi vestur á firði, þar sem hún fann sig vel. Rak seinna bók- haldsþjónustu í áraraðir, en vildi breyta til. Þegar vinna og tækifæri á Flateyri buðust tók hún slaginn. „Ég er með svæðisleiðsögurétt- indi á Suðurlandi. Er að öðru leyti nýgræðingur í ferðaþjónustu. Hafði þó mörg fyrirtæki í ferðaþjónustu í viðskiptum í bókhaldinu, sem gaf mér góða innsýn í rekstrarfor- sendur svona fyrirtækja,“ segir Bryndís. Hermann, sem stendur í stafni Perlnanna, er múrari og var þar til nýlega framkvæmdastjóri Vestfirskra verktaka. Hefur lengst alið manninn á Flateyri og þekkir því vel til staðhátta og náttúru Ön- undarfjarðar – sem nú stendur til að kynna ferðafólki betur. Hæglætisstefna „Markmið okkar er að innan fimm ára verði hér minnst þrjú vel arð- bær ferðaþjónustufyrirtæki, með starfsmenn á launum allt árið, sem styrkja atvinnulíf okkar í Önund- arfirði. Við teljum að sameiginlegur aðgangur að þjónustu í firðinum sé mikilvægur þáttur svo þetta mark- mið náist,“ segir Bryndís. Bætir við að þegar þau Hermann voru að undirbúa stofnun fyrirtækisins hafi þau rætt við fjölda fólks á svæðinu, haldið fundi og safnað hugmyndum og þannig náð góðri sátt við sam- félagið. „Við höfum síðan legið yfir þess- um hugmyndum og komist að þeirri niðurstöðu að hér eigi við hin svokallaða hæglætisstefna í ferða- þjónustu, á ensku kallað slow move- ment. Til að meðtaka töfra náttúr- unnar þarftu að gefa þér tíma til að njóta. Slowly Travel verður okkar framtíðarheiti og okkur langar til að Önundarfjörður verði staðurinn þar sem fjölskyldur og aðrir fá tækifæri til að tengjast náttúrunni og njóta.“ FLATEYRI Perlur styrki atvinnulífið ÖNUNDARFJÖRÐUR VERÐUR SAMEINAÐUR UNDIR EINU MERKI. ÞAR ER NÚ REKIN FJÖLBREYTT FERÐAÞJÓNUSTA Í MAGNAÐRI NÁTTÚRU Horft yfir Flateyri og fjörðinn fagra úr muna ganganna sem liggja í gegnum snjóflóðavarnagarðinn sem er í hárri fjallhlíðinni fyrir ofan kauptúnið. Allt í þjóðlega stílnum þar sem túr- istar kynna sér lopapeysuúrvalið. Hermann Karlsson og Bryndís Sigurðardóttir hyggjast sameina undir einu merki krafta þess fólks sem sinnir ferðaþjónustu í Flateyri og Önundarfirði. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Von er á alls 60 skemmtiferðaskipum til Ísafjarðar í sumar. Hið stærsta, MSC Splendida, með 3.500 far- þega var þar í fyrri viku. Þá var Aidal Luna vestra á dögunum og kemur þangað þrisvar í sumar. Ísafjörður Í sumar hefur verið unnið að endurnýjun hitaveitulagnar í Mývatnssveit, það er frá Geiteyjarströnd og í Skútustaði. Þetta er stofnlögn, um 1,8 kílómetra löng. Frá henni eru svo teknar heimtaugar á bæi á þessum slóðum. Mývatnssveit Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.re.is VIÐ SKUTLUM ÞÉR! Alltaf laus sæti Frí þráðlaus internet- tenging í öllum bílum Hagkvæmur kostur Alltaf ferðir Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Umhverfisvænt Kauptu miða núna á www.flugrutan.is Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll. OR *Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 3.500 kr. 1.750 kr.* FYRIR AÐEINS

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.