Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Síða 18
Ferðalög og flakkerð lög
og flakk *Á ferðalögum fer ekki alltaf allt eftir þínuhöfði og er eitt besta ferðaráðið einfaldlegaað sýna þolinmæði. Annað ráð er að vaknasnemma á ferðalögum. Þá eru oft færri ferða-menn á stjái og morgunbirtan er góð fyrirmyndatökur. Þriðja ráðið er að hafa með sérléttan klút eða trefil. Hann mun koma sér vel
í flugvélum eða á svölum kvöldum. Hann get-
ur einnig varið þig fyrir brennheitri sólinni.
Þrjú góð ráð fyrir ferðalanga
B
orgin iðar af menningu yf-
ir sumarið en í júlí stend-
ur yfir grínhátíð sem
nefnist „Just for laughs“
og má þá finna viðburði tengda
leiklist og uppistandi út um allan
bæ. Hátíðin er sú stærsta sinnar
tegundar í heiminum. Hátíðin í ár
stendur frá 8. til 28. júlí og er því
tilvalið fyrir þá sem leggja leið
sína þangað fljótlega að kaupa sér
miða á einhverja sýninguna og
hlæja í fríinu.
Loftfimleikar og Formúlan
Á hverju sumri um mánaðamót
júní/júlí stendur yfir djasshátíð
þar en fyrir þá sem vilja eitthvað
meira krassandi er Formúla 1-
kappakstur þar þrjá daga í júní á
ári hverju. Ekki má missa af sýn-
ingu hjá Cirque du Soleil en loft-
fimleikarnir þeirra eru ógleyman-
legir hverjum sem upplifa. Fyrir
ungu kynslóðina er tívólí í borg-
inni sem ber nafnið LaRonde og
státar af tíu rússíbönum svo eitt-
hvað sé nefnt.
Mikill munur á árstíðum
Borgin skartar fallegum bygg-
ingum enda er elsti hluti borg-
arinnar frá því um miðja 17. öld.
Gaman er að rölta um gamla bæ-
inn og setjast svo inn á veitinga-
hús sem eru fjölmörg og fjöl-
breytt.
Mikill munur er á veðrinu eftir
árstíðum; á sumrin fer hitinn yfir
25 gráður en niður í 15 stiga frost
á veturna. Veturnir eru ansi harð-
ir frá nóvember fram í mars. Þá
er um að gera að skella sér á
skíði en stutt er í fjöllin í Mont
Tremblant en þangað er eins og
hálfs tíma keyrsla frá borginni.
Þar er dásamlegt að skíða og
brekkur við allra hæfi. Bærinn er
lítill og sætur og þar má finna
góð veitingahús og hótel. Gott er
að setjast inn og fá sér heitt kakó
að loknum góðum skíðadegi.
Fallegar kirkjur prýða borgina og eru sumar mörg hundruð ára
gamlar eins og Notre Dame-kirkjan á Place d’Armes.
FRANSKA BORGIN Í NORÐRI
Hátíð hláturs
á sumrin
MONTREAL HEFUR EVRÓPSKT YFIRBRAGÐ ENDA
TÖLUÐ ÞAR FRANSKA Á HVERJU GÖTUHORNI.
BORGIN STÁTAR AF BLÓMLEGRI MENNINGU OG
GÓÐU VEÐRI Á SUMRIN EN ÍSKULDA Á VETURNA.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Montreal er höfuðborgin í Quebec-héraði í
Kanada og er önnur stærsta borgin á eftir
Toronto, með rúmlega fjórum milljónum
íbúa. Hún er níunda stærsta borg
Norður-Ameríku. Franska er opinbera
tungumálið og er hún töluð af 68% íbúana
sem búa í borginni en langflestir tala bæði
frönsku og ensku. Montreal er önnur
stærsta frönskumælandi borg í heimi á eftir
París. Borgin hét upphaflega Ville-Marie, eða
borg Maríu, en heitir nú eftir Mount Royal,
þremur tindum sem eru í miðri borg en fjall-
ið hét á miðaldafrönsku Mont Réal. Vinsæl-
asta íþróttin er íshokkí. Montreal er miðstöð
viðskipta, fjármála, tækni, hönnunar, menn-
ingar, túrisma og kvikmyndagerðar, svo eitt-
hvað sé nefnt. Miklar frosthörkur eru þar á
veturna en sumur heit.
Blómleg menning
og gamlar byggingar
setja svip á borgina.
Á veturna flýja margir borgina
og skíða í Mont Tremblant
sem er eins og hálfs tíma
keyrsla frá Montreal.
NÆSTSTÆRSTA BORG KANADA
Hét Ville-Marie