Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Page 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Page 31
5.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31 Hin árvissa fornbílasýning Fornbílaklúbbs Íslands verður á Ár- bæjarsafni sunnudaginn 5. júlí. Félagsmenn verða til skrafs og ráðagerða og sýna bíla sína. Þeir verða jafnframt uppáklæddir í takt við árgerð bílanna. Opið er milli 10 og 17. Fornbíladagur í Árbæjarsafni* Þú ættir að dæma mann af óvinumhans ekki síður en af vinum hans. Joseph Conrad Aðalheiður Atladóttir, arkitekt hjá A2F arkitektum, svarar spurningum um eftirlæti fjölskyldunnar þessa vik- una en fyrirtæki hennar og eigin- mannsins er m.a. ábyrgt fyrir hönnun verðlaunabyggingarinnar FMos. Fjölskyldumeðlimirnir eru: Aðalheiður Atladóttir, Falk Krüger, Hrönn tíu ára, Hanna átta ára og Freyja þriggja ára. Þátturinn sem allir geta horft á? Af þáttum í íslensku sjónvarpi eru Hraðfréttir og Drekasvæðið vin- sælir, sérstaklega hjá eldri börn- unum. En við horfum líka mikið á þýskt efni á netinu. Á þýsku ríkis- sjónvarpsstöðvunum er úr mörgu vönduðu efni að velja, t.d. fjöl- skylduþátturinn Rennschwein Rudi Rüssel. Hann fjallar um lit- ríka samsetta fjölskyldu og gæludýrið þeirra, svínið Rudi. Öðruvísi og skemmtilegur þáttur þar sem allar kynslóðir koma fyrir og er því eitthvað fyrir alla. Svo eru endalaust margir fræðslu- og skemmtiþættir fyrir börn sem foreldrunum finnst líka skemmtilegir, t.d. Löwenzahn, Die Sendung mit der Maus o.fl. Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Það eru ekki margir réttir sem allir fjölskyldumeðlimir fíla, en heimagerð pítsa slær alltaf í gegn. Þá útbúum við alltaf eina fyrir börnin og svo eina fyr- ir fullorðna. Ég fæ mikla aðstoð frá yngstu dótturinni sem er þriggja ára, en hún vill helst sjá um allt. Sem betur fer borða börnin fisk og því eru einfaldir fiskréttir oft eldaðir, t.d. bakaður silungur með möndluflögum og mangó- chutney – einfalt og mjög gott. Skemmtilegast að gera saman? Að stinga af úr bænum og eyða saman helginni í sumarbústaðnum. Þar spil- um við, förum í pottinn, borðum góðan mat, hvílum okkur og njótum þess að vera í sveitinni. Við fáum stundum góða gesti og þá er mikið fjör. Borðið þið morgunmat saman? Já, við borðum nánast alltaf morgunmat saman. Hann er frekar einfaldur á virkum dögum, við borðum oftast múslí eða hafragraut með ávöxtum, en um helgar njótum við þess að hafa meiri tíma. Þá verður úr hálfgerður dögurður, Þjóðverjinn á heimilinu sér um eggin, sýður þau eða útbýr ommelettu. Ég útbý góðan hristing, bleikan, grænan eða gulan, og svo er eitthvert brauð- meti með og auðvitað gott kaffi, sem er ómissandi. Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Við spilum nokkuð mikið saman, allt frá einföldustu spilunum eins og ólsen ólsen og lúdó, en svo er spilið Actionary er mjög vinsælt þessa dagana. Stelp- urnar okkar taka stundum upp á því að vera með leikrit eða tónleika með undirleik fyrir fullorðna fólkið og það er betra en nokkurt sjónvarpsefni. EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR Aðalheiður Atladóttir Leikrit og tónleikar heima í stofu Heimilistækjaframleiðandinn Bosch segir að meira en 40% Bandaríkja- manna rífist um hvernig eigi að raða í uppþvottavélina og 61% deili um hvort það þurfi að skola af diskunum fyrirfram. „Eftir að ég set vélina af stað opnar hann hana og byrjar að raða öllu upp á nýtt. Það gerir mig alveg brjálaða,“ sagði Jennifer Vargas í samtali við Wall Street Journal. „Jen er bara meira sama, það fer meira í taug- arnar á mér ef það er ekki raðað rétt. Ef ég held að þetta verði ekki hreint þá hreyfi ég hluti til,“ svaraði eig- inmaður hennar Levy Vargas. Hlaðin fyrir allra augum Þetta ætti að vera einfalt, hlaða glös- um, diskum og hnífapörum í vélina og setja af stað. Engu að síður er hvað mest rifist um þetta húsverk. Kannski vegna þess að fjölskyldu- meðlimir eru líklegri til að skipta með sér verkum verðandi þetta verk. Ennfremur er eldhúsið oftar en ekki hjarta heimilisins og uppþvottavélin er hlaðin fyrir allra augum. Það sem fólk deilir um er til dæmis hversu mikið megi setja í vélina, hvort hnífapör eigi að snúa upp eða niður og hvort plast megi fara bæði í efri og neðri hæð, samkvæmt könnun Bosch. Heimilistækja- og þvottaefnis- framleiðendur segja fólki að það þurfi ekki að hreinsa diskana fyrirfram en sumir gera það samt. Öryggisins vegna er betra að láta hnífana snúa niður. Ennfremur er ráðlagt að blanda hnífapörunum saman í körf- unni til að forðast að til dæmis skeið- ar staflist saman. Þannig verða áhöld- in hreinni þrátt fyrir að það bæti nokkrum sekúndum við tímann sem það tekur að ganga frá. 61% DEILIR UM HVORT ÞAÐ ÞURFI AÐ SKOLA FYRIRFRAM Alls eru 39% notenda ósammála um hvort hnífar eigi að snúa upp eða niður. Getty Images/iStockphoto Rifist um hvernig eigi að raða í uppþvottavélina Ú tivinnandi konur eru lík- legri til að ala upp dæt- ur sem gengur betur í vinnu og syni sem taka meiri þátt í uppeldi en börn heima- vinnandi mæðra. Þetta kemur fram í nýlegri ritgerð við Harvard Business School. Á bak við þessa niðurstöðu er tölfræði frá 24 lönd- um sem nær allt aftur til ársins 2002. Vísindamennirnir komust að því að uppkomnar dætur útivinn- andi mæðra voru líklegri til að vera í vinnu sjálfar og líka líklegri til að vera í yfirmannsstöðu og þéna meira en dætur sem áttu heimavinnandi mæður. Þær voru jafnframt líklegri til að vinna meira og eyða minni tíma í heim- ilisstörf. Hvað karlmennina varðar þá voru fullorðnir synir vinnandi mæðra líklegri til að hugsa um fjölskylduna og taka þátt í heim- ilisstörfum. Ennfremur leiddi rann- sóknin í ljós að bæði synir og dæt- ur mæðra með vinnu voru jafn- réttissinnaðari en börn mæðra sem voru heimavinnandi. Andstæðar raddir vestra Á Íslandi er hvað hæst hlutfall úti- vinnandi mæðra í heiminum svo Frónbúar taka þessum niður- stöðum ef til vill sem sjálfsögum hlut. Í Bandaríkjunum er þetta hins vegar vatn á myllu jafnrétt- issinna. Þar eru ennþá sterk öfl sem tala gegn útivinnandi mæðr- um. Gavin McInnes var gestur ný- verið í þætti Seans Hannitys á Fox News. Hann sagði að konur væru ekki eins metnaðarfullar og karl- menn og þær væru hamingjusam- astar heima hjá sér. Ekta femín- ismi fæli í sér að styðja við heima- vinnandi húsmæður og að konur sem ynnu væru að sóa tíma sínum, sagði hann. Hann sagði húsmæður styðja við góð gildi og vera betri fyrir samfélagið í heild. Hannity styður við þessa umræðu með því að malda ekki í móinn heldur leyfa gestinum að tala óhindrað. Harvard-ritgerðin leiðir hins vegar í ljós að útivinnandi mæður skapa jafnara samfélag og jafnari stöðu kynjanna bæði heima og á vinnumarkaði. NÝ RANNSÓKN FRÁ HARVARD BUSINESS SCHOOL Útivinnandi mæður skapa jafnara samfélag Fullorðnir synir vinnandi mæðra eru líklegri til að hugsa meira um fjölskylduna. Getty Images/iStockphoto ÚTIVINNANDI MÆÐUR ERU LÍKLEGRI TIL AÐ ALA UPP DÆTUR SEM GENGUR BETUR Í VINNU OG SYNI SEM TAKA MEIRI ÞÁTT Í UPPELDI EN BÖRN HEIMAVINNANDI MÆÐRA. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is VÍKKAÐU HRINGINN Morgunblaðinu er það mikilvægt að sýna lesendum hlutina í víðara samhengi. Fram undan er spennandi sumar fyrir áskrifendur Morgunblaðsins vítt og breitt um landið. Í dag sýnum við hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir einn af áskrifendum okkar. Allir áskrifendur Morgunblaðsins eru með í áskriftarleiknum. Fylgstu með þegar við drögum út vinningshafann þann 17. júlí.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.