Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Qupperneq 43
5.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
rískt og íslenskt nafn. Þau tala ekki ís-
lensku en eru í góðu sambandi við landið,
munu til dæmis koma með mér hingað
næst þegar ég kem, í sumar.“
Aftur að sjónvarpinu en þar hefur Egill
Örn kynnst mörgu mætu fólki. Breski leik-
arinn Idris Elba var ein skærasta stjarna
The Wire en í lok þriðju seríunnar var
hann skrifaður út úr þeim og persóna hans
látin deyja. Að sögn Egils Arnar var Elba
allt annað en sáttur við þær lyktir mála og
furðaði sig á ákvörðun aðstandenda þátt-
arins í samtali þeirra. „Hvers vegna eru
þeir að drepa mig?“ segir Egill Örn og
hermir með býsna sannfærandi hætti eftir
leikaranum. „Ég sagði honum að hafa ekki
áhyggjur af þessu. Þetta væri það besta
sem fyrir hann gæti komið. Hann ætti eftir
að verða miklu stærri. Og það hefur sýnt
sig.“
Egill Örn stýrði kvikmyndatökum á sjö
þáttum af The Wire og það spurðist hratt
út enda nutu þættirnir geysilegra vinsælda.
Árið eftir, 2005, var hann fenginn til að sjá
um tæknibrellurnar í kvikmyndinni Flight
Plan, þar sem óskarsverðlaunaleikkonan
Jodie Foster fór með aðalhlutverkið. „Það
var mjög skemmtilegt verkefni.“
Sagði nei við Bruckheimer
Sama ár kom síðan risastórt tækifæri. Sím-
tal kom frá aðstandendum hinna vinsælu
sakamálaþátta CSI: Miami en Egill Örn lét
sér fátt um finnast í fyrstu enda hafði hann
ekki séð þættina á þeim tíma. Framleiðand-
inn sjálfur, Jerry Bruckheimer, einn valda-
mesti maðurinn í bandarísku sjónvarpi, hafði
horft á efni eftir Egil Örn og vildi ráða
hann. „Ég sagði bara pent nei við Bruckhei-
mer,“ segir Egill Örn hlæjandi.
Skömmu síðar var kvikmyndatökustjóra
þáttanna sagt upp störfum og þá sneri
Bruckheimer sér aftur að Agli Erni sem lét
til leiðast. Hann sér ekki eftir því. „CSI:
Miami var mjög krefjandi verkefni enda
hafði ég frjálsar hendur og breytti útliti
þáttarins. Það var með allt öðrum hætti áð-
ur en ég kom að verkefninu og leyfi ég mér
að segja einstakt á þeim tíma. Eftir því var
tekið.“
Egill Örn kveðst hafa hugsað þættina eins
og hann væri að gera 30 sekúndna auglýs-
ingu, hver rammi yrði að ríghalda áhorfand-
anum. Hann sá fyrir sér ævintýraheim sem
áhorfendur gætu glaðir dottið inn í eftir
langan og strangan vinnudag í raunheimum.
„Uppleggið var að þátturinn yrði klukkutíma
flótti frá raunveruleikanum.“
Egill Örn var ekki búinn að vinna lengi
við CSI: Miami þegar hann fékk eftirfarandi
spurningu frá aðstandendum þáttanna: Viltu
ekki leikstýra?
„Hvers vegna?“ spurði hann.
„Það er augljóst. Við sjáum hvernig þú
vinnur,“ var svarið.
Umdeild aðalpersóna
Hann lét vitaskuld ekki segja sér það tvisv-
ar, leikstýrði átta þáttum af CSI: Miami.
Ekki nóg með það, Egill Örn varð líka fljót-
lega einn af framleiðendum þáttanna. Fram-
leiddi í það heila 59 þætti.
CSI: Miami naut gríðarlegrar hylli og var
um tíma einn vinsælasti sjónvarpsþáttur í
heimi. Aðalpersónan, rannsóknarlögreglu-
maðurinn Horatio Caine, var þó alltaf um-
deild enda leikin í nokkrum ýkjustíl af David
Caruso. Sá stíll var ekki allra. „Það báru
ekki allir virðingu fyrir aðalleikaranum,
hann var í senn umdeildur og misskilinn.
David Caruso er með fyndnari mönnum sem
maður hittir og ætti að vera að gera kó-
medíur,“ segir Egill Örn.
Hann sagði skilið við CSI: Miami árið
2008 og hefur komið nálægt mörgum sjón-
varpsþáttum síðan, aðallega sem leikstjóri.
Má þar nefna Heroes: Destiny, Dark Blue,
Chase, Arrow, Nikita, CSI: Crime Scene
Investigation og Once Upon a Time.
Nýjustu verkefnin eru Gotham, Hawaii
Five-0, CSI: Cyber, sem sýndur hefur verið
í meira en 150 löndum, og TURN: Wash-
ington’s Spies, þar sem Íslendingnum Agli
Erni var falið að móta kunna persónu,
George nokkurn Washington.
Það er til marks um virðinguna sem Egill
Örn nýtur vestra að honum var fyrir nokkr-
um árum boðið að gerast meðlimur í Am-
erican Society Of Cinematographers, ASC.
Það er stærsta viðurkenning og heiður sem
kvikmyndatökumanni getur hlotnast. Þetta
er elsta félagið í bransanum og þarna eru
frægustu kvikmyndatökumenn sögunnar
meðlimir, bæði fyrr og nú. Egill Örn er
fyrsti Íslendingurinn sem verður meðlimur.
ASC veitir árlega verðlaun, The ASC Aw-
ards, þar sem veitt eru verðlaun fyrir bestu
töku bæði í sjónvarpi og kvikmyndum. Egill
Örn hefur verið tilnefndur til þessara verð-
launa nokkrum sinnum og er sá eini sem
hefur unnið fyrir þátt þar sem hann var
bæði tökumaður og leikstjóri.
Verður að vera einhver óvissa
Sem fyrr segir kemur Egill Örn til með að
vinna að verkefnum hér heima á næstu
misserum og langar að gera meira af því í
framtíðinni. Honum bauðst á sínum tíma að
taka upp Game of Thrones hér á landi en
var þá búinn að ráðstafa sér í annað. „Ég er
yfirleitt bókaður meira en ár fram í tímann.
Veit til dæmis núna hvar ég verð í mars á
næsta ári. Ég er alltaf á ferð og flugi og
hefði ég haldið upp á alla flugmiðana mína
myndu þeir þekja heilan sal. Annars gæti ég
þess að hugsa aldrei of langt fram í tímann.
Það verður að vera einhver óvissa í lífinu.“
Egill Örn í essinu sínu á ströndinni í Hawaii vegna þáttanna Hawaii Five-O.
Börn Egils Arnar og Denice Egilsson bera öll bæði íslensk og bandarísk nöfn. Egill Cole er elstur, þá kemur Ethan Örn, sem heldur utan um
móður sína á myndinni, og yngst er Zoe Rós. Myndin er tekin á Laugaveginum í heimsókn fjölskyldunnar til Íslands á dögunum.
Egill Örn segir David Caruso, aðalleikara CSI: Miami, vera mikinn höfðingja. Persóna hans í hinum
vinsælu sjónvarpsþáttum, Horatio Caine, var þó ekki allra.
Egill Örn við tökur á bílaaugslýsingu. Búið er að
klippa þakið af bílnum. Síðan er honum hent.
Egill Örn ber hinum virta leikara Ted Danson vel söguna.