Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2001, Síða 181
Kýnikear og kanónar: Heimspeki í skugga Platóns
kea eins og t.d. Melager frá Gadara. En Dudley nefnir einnig hin svo kölluðu
Bréf Kýnikea sem talin eru frá fyrstu öld fyrir og eftir hið nútímalega daga-
tal. Bréf þessi eru eignuð þekktum nöfnum Kýnikea frá þriðju öld eða fyrr f.
Kr. og samanstanda mörg, að áliti Dudley, einfaldlega af frekari útvíkkunum
á kunnum stefjum og frásagnarkornum. Þrátt fyrir þann söguskilning Dudley
að Kýnikear hafi meir og minna horfið af sjónarsviðinu á fyrstu öldinni fyr-
ir Kristsburð þá neitar hann því ekki að víða megi sjá áhrif Kýnikea í sam-
tímabókmenntum þess tíma.4
Svo hverfandi var þessi rödd Kýnikea á fyrstu öld f. Kr., að skilningi
Dudley, að hann telur það kraftaverki líkast að hún mætti finna nýtt líf þeg-
ar á fyrstu öld e. Kr. Og orsakirnar sem Dudley rekur að baki þessari þróun
hlutu að eiga sér afleitar forsendur! Þannig rekur hann einmitt ástæður þessa
til pólitískra róta þar sem kringumstæður eru að verða til í Róm líkar þeim
sem fylgdu í kjölfar sigra Alexanders mikla og eftirmanna hans: heimsborg-
araskapur og munaðarlíf. Rétt eins og á tíma Alexanders þá telur Dudley að
þessar kringumstæður hafi kallað á gagnrýni þar sem einfalt líferni og fram-
takssemi urðu kjörorð að nýju. Það er inn í þessar kringumstæður að Kýni-
keinn Demetríus (uppi á 1. öld e. Kr.) tekur að deila á stjórnvöld - ádeila sem
verður upphaf endurreisnar kýníkískrar heimspeki allt til lokaskeiðs hennar
sem Dudley setur við upphaf sjöttu aldar þegar kirkjan hefir hrifið einstak-
linginn til sín með fyrirheit um betra líf að loknu þessu. „Kýníkísk heimspeki
hafði þá ekkert frekar að boða mannkyni,“ segir Dudley5.
Með slíkan bakhjarl sem Dudley er þarf Platón vart að óttast um sinn eig-
in skugga. Aðrir sérfræðingar sem um Kýnikea hafa fjallað hafa á hinn bóg-
inn fundið þar efni sem um margt er forvitnilegt einkum í tengslum við upp-
runa kristindómsins. Þannig bendir Abraham J. Malherbe á þá hefð innan bibl-
íufræða að notast við ýmsar hefðir Kýnikea einkum til samanburðar á efni
Nýja testamentisins. Þar er þó sá vandi á höndum að flestir textar sem varð-
veist hafa eftir heimspekinga Kýnikea hafi ekki verið gefnir út né þýddir á
nútímamál. Heimildir um Kýnikea hafa þannig einkum verið rannsakaðar í
4 Ibid., 119-124. í lokakafla bókar sinnar fjallar Dudley um samsvörun við Kýnikea í dag
en þar heldur hann fram að stjómleysisstefna samtímans (anarchism) falli best að slíkri
samlíkingu, ibid., 209-213. Hans Dieter Betz rekur áhuga á heimspeki Kýnikea á ofan-
verðri tuttugustu öld til áhrifa Friedrich Wilhelm Nietzsche þar sem niðurstaðan kveði á
um „trúlausan kýnískan Jesús,“ „Jesus and the Cynics: Survey and Analysis of an [sic]
Hypothesis," (Ljósritað handrit, 1994 [síðar, JR 74 (1994): 453-475]), 33-35. Ummæli
Nietzsche, sem ná hámarki í verki hans Svo mœlti Zaraþústra, að áliti Betz, gera kröfu
um að vera ekkert minna en „staðgengill orða Jesú og þá betri orða heldur en Jesú sjálfs,"
ibid., 34.
5 History of Cynicism, 125-208.
179