Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Page 34

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Page 34
Jón Ma. Asgeirsson (1859-1906), Albert Schweitzer (1875-1965) og fleirum.4 í yfirlitsverkum um sögu heimspekinnar skipar Spinoza einkum rúm í samræmi við skoðanir höfunda á mikilvægi hans í þróun skynsemisstefnunnar (rationalism). Hugmyndir Spinoza um guð og guðdóminn eru jafnframt settar fram í sömu ritum meira og minna eftir afstöðu höfunda til trúar og trúarbragða. Anders Wedberg lýsir guðfræði og siðferðilegum ályktunum Spinoza á þennan veg: Hvorki er honum [þ.e. Guði] um neitt né setur hann sig á móti nokkrum hlut. Hann hvorki elskar né hatar, né heldur lætur hann nokkuð eiga sér stað í einhverjum tilgangi. Frá sjónarhóli eilífðarinnar (sub specie aeter- nitatis), sem er sjónarhóll Guðs, er hvorki nokkuð gott né illt, betra eða verra. Guð er það apparat (vél) sem er eitt með alheiminum og snýst af vélrænni nauðsyn.5 Faðir Frederick Copleston S.J. hefur ítarlega umræðu sína um Spinoza á því að líkja honum við frumspekinga sem koma með tilgátur um veröldina reistar á skynsemisrökum. Þannig er þá Spinoza settur í flokk með þeim heimspekingum sem Copleston lýsir að smætti (flokki) Qölbreytileikann niður í heila einingu (heild) (reduction of multiplicity to unity).6 Ólíkt þeim sem lýst hafi Spinoza sem guðleysingja (atheist) annars vegar og ölvuðum guðsmanni (God-intoxicated) hins vegar þá kveður Colin Brown upp þann dóm að Spinoza hafi verið skynsamur algyðistrúarmaður (rational panthe- ist).7 En fer það saman að vera (al)gyðistrúar og beita skynsamlegum rökum 4 Framlag Spinoza til biblíurannsókna felst einkum í sögurýni hans. Hún felst einkum í þrenns konar áherslum: í fyrsta lagi (1) beri að taka tillit til eðlis tungumálsins sem rit biblíunnar eru rituð á; i öður lagi (2) lagði Spinoza áherslu á að afmarka bæri inntak (doctrines) einstakra rita og flokka með skyldum verkum; og loks í þriðja lagi (3) að gera bæri grein fyrir örlögum allra rita Biblíunnar á grundvelli alls sem læra mætti um höfunda þeirra eins og um uppruna þeirra og ætlunarverk. Eins bæri að gera grein fyrir handa hverjum ritin hefðu upphaflega verið skrifuð, hversu margar afskriftir væru til af einstökum ritum, og loks hverjir hefðu meðhöndlað tiltekin rit og þannig átt hlutdeild í því að viðurkenna þau sem heilagar ritningar—nokkuð sem Spinoza vildi reyndar grenslast íyrir um varðandi helgiritasafnið í heild sinni. Sjá Theological-Political Treatise (VII. iii. 99-101) í Edwin Curley ritstj. og þýð., The Collected Works of Spinoza [Vol. 1] (Princeton, NJ: Princeton University Press, 1985), v. Um rannsóknir á hinum sögulega Jesú og hlut Spinoza í þeim, sjá Gregory W. Dawes ritstj., The Historical Jesus Quest. A Foundational Anthology (Tools for Biblical Studies 2; Leiden: Deo, 2001), en samantektin hefst á tilvitnun í verk Spinoza, sbr. 1. kafla bókar- innar. 5 A History of Philosophy, Vol. 2, The Modern Age to Romanticism (2nd ed.; English transl., John Swaffield et al.; Oxford: Clarendon Press, 1982 [1970]), 62. 6 A History of Philosophy, Book Two, Vol. IV: Descartes to Leibniz, Vol. V: Hobbes to Hume, Vol. VI: Woljf to Kant (Garden City, NY: Image Books, 1985 [1963-1964]), 214. 7 Philosophy and the Christian Faith: A Historical Sketch form the Middle Ages to the Present Day (London: Inter-Varsity Press, 1963), 54. 32
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.