Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Síða 35
Spinoza og spegillinn:
eða öllu heldur tilgátum um uppruna og lok alheimsins? Hefir ekki með því
verið snúið á skynsemdarmanninn og hann gerður að andstæðu sinni sem er
bókstafstrúarmaðurinn og trúboði leyndardómsfullra kenninga (mysta-
gogue) sem verða æ framandlegri á meðan manneskjan hendist í áttina að
Mars?
Guðir og gerðar upp sagnir
Umræðan um guð(dóminn) hefir sannarlega ekki ávallt hafist á grundvelli
frumspekilegra vangveltna heldur einmitt í heimi goðsögunnar eða frásög-
unnar um guð(i) (myth). Heimspekingurinn Kelsus (uppi á annarri öld e. Kr.)
heimfærir frásögur guðspjallanna upp á lærisveina Jesú og ásakar þá um að
megna ekki að „ljá uppspunanum sannleikslit þrátt fyrir augljósar falsanir
þeirra“ (Contra Celsum II.26).8 En ef kristindómurinn er að hans áliti
byggður á goðsögu einni þá á goðsagan sér dýpri rætur í gyðingdómi, sem
Kelsus ætlar sér, að skilningi Orfgensar (uppi á þriðju öld), að leggja að
jöfnu með sömu rökum (Contra Celsum 1.22). Þar grípur þá Kelsus til
goðsögunnar um hinn eina guð sem hann kallar „grófa blekkingu“ sem Móse
hafi tælt hjarðmenn og fjárhirða til að trúa á (Contra Celsum 1.23). í trúvörn
sinni kallar Orígenes eftir rökstuðningi Kelsusar fyrir því hvemig hann gæti
hugsanlega sýnt fram á tilveru grískra guða og guða barbaranna, eins og
hann kemst að orði, á grundvelli ekki eins heldur margra guða. Órígenes
heldur síðan áfram og setur fram þau rök að Kelsus muni ekki geta sýnt fram
á nokkum þann verknað þessara uppgerðu grísku guða í mannlegu líki, sem
sanni guðdóm þeirra. Ef engin eru verk þessara guða þá sér Órígenes ekki
heldur hvernig frásögur Grikkja ættu að vera trúverðugri heldur en goðsögur
Egypta og annarra þjóða eins og Kelsus hefir sýnilega haldið fram. Sterkustu
rökin gegn Kelsusi finnur Órígenes þó í þeirri staðreynd sem hann segir
skipulag heimsins vera. Samræmi alheimsins útilokar að hans skilningi
nema einn höfund þess og skapara. Og eins er himninum ekki haldið uppi af
hreyfingu ótölulegra sálna (sem eigi sér sjálfstæða tilveru) heldur eru þær
hlutar af heiminum og þannig ófullkomnar ólíkt guði sem ekki er partur af
heiminum né heldur heildin sem heldur pörtunum saman (Contra Celsum
1.23)!
8 Órígenes, Contra Celsum í Alexander Roberts & James Donaldson ritstj., The Ante-Nicene Fatlters:
Translations of the Writings of the Fathers down to A.D. 325, Vol. IV, Tertullian, Part Fourth;
Minucius Felix; Commodian; Origen, Parts First and Second (Revised and Chronologically
Arranged, with Brief Prefaces and Occasional Notes by A. Cleveland Coxe; Grand Rapids, MI &
Edinburgh: Eerdmans & Clark, (ekkert ártal) [1885]), 442-443.
33