Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Page 54
Kristín Loftsdóttir
ferla á afkomu WoDaaBe og þá sérstaklega hvernig þau hafa á margan hátt
grafið undan framfærslugetu þeirra. Samtímis nýta WoDaaBe sér slík ferli til
að finna nýjar leiðir til framfærslu.
WoDaaBe fólkið
Afríka var lengi vel skilgreind í vestrænum fræðum sem „heimsálfa án
sögu,“ ósnortin af tíma. Það eimir enn eftir af þessu viðhorfi þegar einu
raddirnar í daglegri umræðu og sögubókum snúast um sögu Evrópubúa í
Afríku, rétt eins og sagan sé förunautur Evrópubúa og fýlgi þeim einum.
Fyrir utan að vera vitnisburður um fordóma er slík sýn jafnframt furðuleg í
einföldun sinni. Til að taka einungis lítið dæmi af mörgum er hún furðuleg í
ljósi þeirra miklu og vel þekktu tengsla sem Vestur-Afríku hefur átt við
menningarheim íslam í gegnum aldir.6
Saga WoDaaBe er ekki síður en saga annarra samofin stærri sögulegum
ferlum álfunnar. WoDaaBe eru í eldri heimildum almennt taldir sem hluti af
þjóðernishópnum Fulani enda tala þeir sama tungumál og hafa marga
svipaða siði. Talið er að Fulani fólkið hafi komið til núverandi Nígeríu með
bækur og boðskap íslams á 15. öld en saga íslam og Fulani fólksins hefur í
margar aldir verið samofin ríkjamyndun í Vestur-Afríku. Vestur-afrískir
múslimir voru í sterkum tengslum við trúbræður sína annars staðar frá og
tóku þátt í víðtæku vísinda- og fræðisamstarfi.
WoDaaBe eru því tiltölulega nýlegur klofningur frá Fulani fólkinu7 en
skilgreina sig almennt í dag sem sérstakan þjóðernishóp, þrátt fyrir að vísa
til Fulani sem „bræðra“ við ákveðnar aðstæður. Þetta flæði í skilgreiningu á
tengslum milli Fulani og WoDaaBe undirstrikar áherslur fræðimanna á
síðustu áratugum hvað varðar þjóðernishópa, þ.e. þjóðernishópa sem
flæðandi, sögulega mótuð fyrirbæri með margræða, breytanlega merkingu.
WoDaaBe samfélag er ættflokkasamfélag þar sem ættrakning er í karl-
legg. Nokkrar Qölskyldur leitast við beita dýrunum sínum á svipuðum
svæðum, þá oftast foreldrar með fjölskyldum sona sinna eða bræður sem
ferðast saman með konum og börnum. Slíkar einingar sameinast og brotna
upp eftir aðstæðum hverju sinni, til dæmis vegna hlutfalls barna og full-
orðinna, fjölda dýra á heimilinu eða vistfræðilegum aðstæðum hverju sinni.
Heimili WoDaaBe er undir berum himni og samanstendur af einingum sem
fljótlegt er að taka í sundur og setja saman. Þrátt fyrir að tíðni búferlaflutn-
6 Sjá til dæmis Hunwick 1997.
7 Etnógrafíur skrifaðar á fyrri hluta 20. aldarinnar skilgreina WoDaaBe til dæmis sem hluta af Fulani
fólkinu.
52
Á