Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1980, Page 101
MÚLAÞING
99
Löngum mun ]?að hafa verið og er enn, erfitt pað hlutverk
prestanna að tilkynna dauðsföll vina og vandamanna. Þennan
mikla slysadag þurfti séra Jón Finnsson víðar að koma en til
Þórhalls og ekkjunnar í Hammersminni. Að Geithellum og Star-
mýri lá feið prestsins. Það hafði dregið dimmt ský yfir þetta
byggðalag.
Á Geithellum sat Vilborg Einarsdóttir í baðstofu og saumaði
brúðarkyrtil, sem hún ætlaði að vera í á giftingardegi sínum og
Tryggva. Við getum hugsað okkur hve lífið hefur verið bjart og
gæfan brosað við ungu konunni, sem saumaði með ánægju fatið
sem hún ætlaði að kiæðast á sínum heiðursdegi.
Á leiðinni frá Djúpavogi til Geithellna voru tveir menn á ferð,
séra Jón og Ólafur læknir. Það mun hafa verið liðið á daginn,
þegar peir komu að Geithellum. Þeir hittu Einar bónda fyrstan
manna og sögðu honum hvað gerst hefði. Hann gekk sjálfur upp
í baðstofu til Vilborgar og sagði henni lát unnusta síns og bróður,
■— „og getur pú hætt að sauma brúðarkyrtil J)inn,“ bætti hann við.
Fleiri munu orð hans hafa verið, en ég læt þetta nægja.
Stefán Jónsson og Þormóður Einarsson voru jarðsettir í Hofs-
sókn 6, maí sama ár, en lík Tryggva og Bjöms fundust ekki. 14 júlí
eignaðist Vilborg dóttur, sem hún lét heita Þóm Tryggvínu.
Þórhallur föðurbróðir hennar tók hana til sín er hún var orðin
stálpuð, og var hún um tíma á heimili hans, en fór svo til náms
og hlaut hún kennaramenntun og kenndi við Austurbæjarskólann
í Reykjavík. Þóra giftist Jóhanni Jóhannessyni. Varð hjónaband
J’eirra stutt. Þóra varð ekki gömul |>ví hún andaðist af bamsburði
að fyrsta bami feirra hjóna 1935.
Vilborg Einarsdóttir giftist 1902 Gísla Sigurðssyni í Krossgerði
a Berufjarðarströnd. Þau eignuðust sjö börn, þrjú þeirra misstu
Þau, svo helming bama sinna lifði hún. Vilborg andaðist í Reykja-
vík 1959 og hafði ]>á verið ekkja frá 1937.