Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1987, Side 30
28
MULAMNCS
Á klöpp við Fljótið niður af Egilsstaðabænum reis hið svokallaða
Fljótshús. þar var vörugeymslan. þangað var vörum ekið á vögnum og
kerrum af Reyðarfirði. Þaðan gekk bátur, „Lagarfljótsormurinn", og
flutti vörurnar áleiðis til bænda, aðallega á Upphéraði, en sumpart
voru þær fluttar þaðan á hestum.
Að lokinni lagningu Fagradalsbrautar 1909 hvarf Erlendur Zakarías-
son héðan aftur suður og kemur ekki meira við sögu vegagerðar á
Austurlandi.
Sigurður Þorsteinsson hét maður sunnlenzkur, hann vann hjá Erlendi
sumurin 1908 og 1909. í september 1909 eru þeir að ljúka verkinu en
áttu eftir að bera ofan í brautarstúf ofan við Egilsstaðatún. Sigurður
segir orðrétt í endurminningum sínum:
„Um sama leyti gerði allmikla snjókomu, einkum um nætur, svo að
fvrri hluta dags var lítið annað gert en moka snjó af veginum, þar sem
bera skyldi ofan í hann. Stundum varð að gera það tvisvar á dag, þegar
mest snjóaði. Þó gátum við lokið þessu verki, en þá var eftir að komast
með allan flutning, verkfæri og annað til Reyðarfjarðar. Þar beið okkar
lítilsháttar verk við veginn, er átti að lj úka við áður en strandferðaskipið
„Hólar“ kæmi þar á suðurleið, því þá ætluðum við heim. - Snjókoman
varð svo mikil, að Fagridalur var talinn illfær yfirferðar og vorum við
áhyggjufullir hvernig það myndi ganga. Talið var mjög tvísýnt að það
tækist, nema með því móti að vera tvo daga á leiðinni og liggja úti á
dalnum yfir nóttina. Varð þá að ráði að biðja Jón Bergsson bónda og
kaupmann á Egilsstöðum um leyfi til að liggja í heyhlöðu, er hann átti
við beitarhús á Egilsstaðahálsi, svo við gætum tekið upp tjöldin um
kvöldið. sem vinnunni var lokið og haft tilbúinn allan farangur okkar
og flutning og farið þaðan snemma að morgni. Jón leyfði þetta góðfús-
lega, en setti okkur vitanlega strangar reglur um að nota ekki eld eða
ljós. er valdið gæti íkveikju. Lofuðum við öllu góðu um það.
í fjárhúsunum hituðum við okkur kaffi og þar reyktu þeir pípur
sínar, er þess þóttust þurfa, og lágum við svo í heyinu í hlöðunni um
nóttina. Áður en dagur rann, morguninn eftir. lögðum við af stað
þaðan og komum til Reyðarfjarðar undir miðnætti um kvöldið. Við
fengum allerfiða ferð yfir Fagradal. Daginn eftir lét Erlendur okkur
ekki vinna. heidur hvíla okkur eftir ferðaslarkið."
Eins og fram kemur hér á undan var það landssjóður sem lagði fram
féð í byggingu Fagradalsvegar. Frá 1913 eru það sýslurnar, Suður- og
Norður-Múlasýslur sem sjá um að kosta viðhald vegarins allt þar til
1925 að ríkissjóður tekur við þvi. Hefi ég í sýslufundargerðum séð