Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1987, Page 63
MUI.AMNC.
61
í Fljótsdal lögðu Orkustofnunarmenn jeppaslóð frá þessum vegi, fyrst
inn á Grenisöldu. þar sem þeir reistu skála einn mikinn, en efnið í
hann hafði verið flutt á sleðum ástaðinn um veturinn eða vorið 1975.
Þegar það kom í ljós, eftir rannsóknir sérfróðra manna að fýsilegt
var að virkja vötn þau er falla til Fljótsdals var Vegagerð ríkisins falið
að leggja vel færan veg inn á Grenisöldu til að byrja með. Einar
Þorvarðarson, umdæmisverkfræðingur á Reyðarfirði, lét mæla fyrir
veginum í samráði við Orkustofnun og fól mér að sjá um verkið sem
hófst um miðjan ágúst 1975. Vegna þess að ég hafði á minni könnu
fleiri verk réði Einar til mín flokkstjóra Orm Sveinsson frá Norðfirði,
sem var verkstjóri þar í vegagerð og einnig eitthvað í Mjóafirði.
Mikið kapp var lagt á að hraða þessari vegagerð. Voru t. d. þar að
starfi 4 jarðýtur og annar tækjakostur í samræmi við það. Við vega-
gerðarmenn fengum að hafa bækistöð okkar í skálanum á Grenisöldu,
gott svefnrými var þar, auk eldhúss og borðstofu. Frá Grenisöldu hófst
lagning vegarins út heiðina og síðan niður fjallið á Upphéraðsveg hjá
Bessastöðum. Ekki tókst að Ijúka verkinu þetta sumar, en lokið var
því sumarið á eftir (1976) að öðru leyti en því að eftir var að brúa
Bessastaðaá og Sauðabanalæk neðri. Brýr voru byggðar á þessi vatns-
föll 1979. Valmundur Björnsson brúarsmiður frá Vík í Mýrdal sá um
það verk. Vegagerð var haldið áfram inn heiði frá Grenisöldu og mátti
heita akfært inn að Laugará 1980.
Guðni Nikulásson tók við verkstjórn af Ormi Sveinssyni um haustið
1975 og sá um þessa vegarlagningu til 1979 en Björn Sigurðsson sá um
verkið sumarið 1980. Hrafn Sveinbjarnarson á Hallormsstað hefir unn-
ið meira og minna við vegagerðina á Fljótsdalsheiði síðan 1978 og
stjórnaði verki þar við slóðagerðir og endurbætur vegar á heiðinni.
M. a. sá hann um gerð slóðar, eða vegar, að fyrirhuguðu brúarstæði
á Jökulsá þar á öræfunum og inn að Eyjabökkum. einnig vestur með
Laugaránni til tengingar við jeppaveginn sem ruddur var upp á heiðina
úr Hrafnkelsdal 1970. Víðar þurfti að laga til þess að komast með
ýmiss konar rannsóknartæki um öræfin. Orkustofnun kostaði ruðnings-
veginn upp á heiðina úr Hrafnkelsdal 1970 og var þá komið fyrir skála
fyrir vatnamælingamenn við Laugará og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
reisti þá skála sinn við Snæfell. Aðalsteinn Aðalsteinsson á Vaðbrekku
sá um lagningu þessa ruðningsvegar upp á heiðina úr Hrafnkelsdal,
sjálfur var hann ýtustjórinn.