Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1987, Blaðsíða 72
70
MULAÞING
því í snúningum á veginn innan við Teig í Vopnafirði. Leið þessi
opnaðist bílaumferð um 1940. Hefir hin síðari ár verið unnið að upp-
byggingu þessa vegar og er það verk nú 1984 vel á veg komið og frekar
gerlegt að halda veginum opnum að vetrarlagi. Þetta styttir leið þeirra
Vopnfirðinga til Akureyrar en lengir að mun leið þeirra til Héraðs og
fjarðanna sunnan Héraðsflóa, frá því sem er þegar farin er Hellisheiði.
Á þessum heiðarvegi hafa tvær ár verið brúaðar, Langadalsá 1970,
brúarsmiður Sigurður Jónsson á Sólbakka og Hölkná 1973. Áður var
ekið yfir þessar ár, því sjaldan eru þær vatnsmiklar.
Sumarið 1959 var gerður brattur vegruðningur upp á Hellisheiði
Héraðsmegin og til Fagradals. Þessi vegur var síðan lagfærður á næstu
árum og þá ruddur frumstæður vegur yfir heiðina til Vopnafjarðar.
Þessi vegur hentar vart öðrum bílum en jeppum, þótt flestir bílar
komist um hann þegar þurrt er á sumrin. Umferð um þennan veg má
segja að hæfist um 1965. Vegalengdin milli bæja um Hellisheiði er um
15 km. Mikill áhugi heimamanna er fyrir því að tengja saman byggðir
norðan og austan heiðarinnar með góðum vegi um hana.
Samkvæmt vegalögum frá 1947 eru þá teknir í tölu þjóðvega í Vopna-
firði: 1. Vesturdalsvegur af Stranda- og Jökulsárhlíðarvegi nálægt
Vesturdalsá um Vesturdal, síðan yfir Háls á Vopnafjarðarveg innan
við Hof. 2. Sunnudalsvegur af Stranda- og Jökulsárhlíðarvegi austan
við Hofsá að Sunnudal. Aðrir vegir í Vopnafirði voru enn um sinn
sýsluvegir og hreppavegir.
Strandhöfn er yzti bær á norðurströnd Vopnafjarðar, þangað varð
skröltfært með bílum 1951, brú á Landamótaá sett 1955 og á Strand-
hafnará 1969. Þetta eru smábrýr. mun Jón Grímsson smiður á Vopna-
firði hafa séð um smíði þeirra. Selárdalur er nyrztur þriggja dala sem
inn af Vopnafirði liggja. Um og upp úr 1960 fór dalur þessi að mestu
í evði. var þá kominn slarkfær vegur þar á flesta bæi frá aðalvegi við
Selárbrú sem byggð var 1927 eins og áður segir. Brúin var endurbyggð
1980, brúarsmiður þá var Einar Sigurðsson frá Reyðarfirði.
Miðdalurinn inn af Vopnafirði er Vesturdalur. Brú á Vesturdalsá á
Stranda- og Jökulsárhlíðarvegi var byggð 1943, brúarsmiður var Jón
Dagsson frá Melrakkanesi. Endurbyggð var þessi brú að miklu leyti
1968, brúarsmiður þá Sigurður Jónsson. Eftir að þessi brú kom fvrst
varð fljótlega akfært á yztu bæina í dalnum. En til þess að koma vel
akfærum vegi til innri bæjanna þurfti að brúa ána víðar. Árið 1966 var
byggð brú við Öskumel hjá Ytri-Hlíð, brúarsmiður Gísli Gíslason t'rá
Eyhildarholti. Árið 1976 eru byggðar tvær brýr á á.ia. hjá Fremri-Hlíð