Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1987, Qupperneq 183
MÚLAÞING
181
kæmist í nótin, mátti ekki ná út í yfir-
borð veggjanna.
3. Taði var enn brennt um þetta
leyti, en þó farið að kaupa kol til elds-
neytis með mó.
4. Hóll rétt sunnan við bæinn og
kirkjugarðinn. Mjög óljós sögn er um
að þar hafi verið virki að fornu. Hann
var lækkaður og spre.ngt úr honum
grjót um þetta leyti, þóttu náttúru- og
minjaspjöll.
5. Beitarhús vestur í ásunum um það
bil miðja vegu milli bæjar og fljóts.
Afbýli fyrrum.
6. Húsið stóð þar sem nú er vestari
álma nýjasta skólahússins (heimavist-
ir).
7. Benedikt Kristjánsson ráðunaut-
ur Búnaðarsambands Austurlands að
fara í búfénaðarsýningarferð um um-
dæmið, sem um þetta leyti náði suður
að Skeiðará og norður til Langaness.
Hefur trúlega einnig mælt jarðabætur.
8. Skólapiltar stunduðu yfirleitt
verklegt nám á Eiðum sumarlangt.
Jónas Eiríksson (skstj. 1888 - 1906)
kenndi þeim einnig sund, og sú kennsla
hélt eitthvað áfram eftir að hann hætti.
9. Systir Björns Hallssonar bónda á
Rangá.
10. Húsbyggingin (smíðavinnan) var
boðin út í ákvæðisvinnu. Verktakar,
Guðnar tveir áðurnefndir fengu tæpar
8 þús. kr. fyrir verkið. Skólastjóri sá
um efnisaðdrætti og hafði eftirlit með
smíðinni f. h. skólanefndar.
11. Gröftur fyrir húsinu var ekki í
útboði verksins. átti skólastjóri að sjá
um þann verkþátt.
Júnímánuður
1. M. Vestan vindur hvass, heið-
skírt, sólskin. Smalað geldfé, tekin af
því ull. Hreinsað á túni afrak. Rist upp
þakjörð. Sumir af smiðunum grófu í
kjallaranum, en aðrir reistu upp elda-
og matreiðsluskála á lækjarbakkanum
fyrir sig.
2. Þ. Sunnan vindur þykkskýjað loft,
lítið sólskin. Hreinsað af túni, grafið í
skurðum, rúið af fé o. fl. Smiðirnir
farnir að steypa í grunninum. Mulið
grjót (kaupamenn).
3. M. Sunnan gola, þykkt loft, ekk-
ert sólskin, gróðarskúr e. m. litla
stund. Plægt og herfað á Borgarhóln-
um og hellulagðir skurðir (lokræsi).
Komið með vatnsleiðslupípurnar af
Seyðisfirði.1 Mulið grjót í steypuna í
Nýjahúsið.
4. F. Austan gola, þykkt loft, ekkert
sólskin. Sótt timbur út að Ketilsstöð-
um.’ Sama vinna og áður við hússmíð-
ina. Stórþvottur hjá konum.
5. F. Austan gola, þykkt lo'ft, dögg-
vot jörðf. m. Sunnangolameðsólskini
við og við e. m. Sótt timbur í Ketils-
staði. Þakið í flagi, plægt í flagi. Búið
að steypa á 3 vegu tveggja álna hátt í
kjallaranum.
6. L. Alveg sama veður og sama
vinna og daginn fyrir. 3 menn fóru að
heiman. 2 næturgestir. Þórunn fór.
7. S. Hvítasunnudagur. Sunnan
gola, þykkt loft, dálítil rigning f. m.
Þurrviðri og logn e. m. Allir heima,
engir gestir, ekkert skemmt sér.
8. M. Austan gola, þykkt loft, þurr-
viðri allan daginn, heldur kalt veður.
6 smiðir fóru í Egilsstaði, en 4 voru
heima. 3 verkamenn fóru heim til sín,
aðrir heima. Dans um kveldið.
9. Þ. Sunnan vindgola, þykkt loft
f. m., ský og skin e. m., hlýtt veður.
Smalað saman fé. Nýr kaupamaður
kom. Steypt fjórða hlið kjallaraveggs-
ins, veitt heim vatni til steypunnar.
12: