Jökull

Eksemplar

Jökull - 01.12.1993, Side 51

Jökull - 01.12.1993, Side 51
Mynd 4. Mælingar á segul- misvísun 1750-1810. Töl- um í Reykjavík er sleppt. í horni kortsins er mynd af R Löwenörn úr bókinni "Den danske Spetat", 2. bindi 1935. — Magnetic decl- ination measurements 1750- 1810. Inset: P. Löwenörn Íega að miða við stefnu til sólarinnar á því augnabliki þegar hún komi upp eða gangi til viðar, sé ekki heppi- leg á mjög norðlægum breiddargráðum vegna áhrifa ljósbrots við sjóndeildarhringinn. Breytti hann mæli- aðferðinni til að minnka skekkjur af völdum þessa. I enn einni grein ræðir Löwenörn (1803) af mikilli skarpskyggni um hugsanlegar orsakir jarðsegulsviðs- ins sjálfs. Segulhallanál og áttaviti til misvísunarmælinga voru með í leiðangri J.T. Stanleys til íslands 1789 en mælingarnar misheppnuðust eða glötuðust að mestu. I dagbók úr leiðangrinum (West 1976, bls. 78) er reikn- að með að misvísunin sé 3-3.5 "points", þ.e. 34 - 39°, suðaustur af Vestmannaeyjum. Sveinn Pálsson get- ur tveggja mælinga sinna á misvísun með vasaáttavita uppi á fjöllum 1792, en varla eru þær öruggar. Eflaust hafa fleiri ferðalangar haft með sér áttavita á íslands- ferðum á átjándu öld, og gæti verið fróðlegt að leita uppi frásagnir þar að lútandi, en ekki verður það reynt að sinni. Á árunum 1801 -19 voru hér norskir landmælinga- menn, sem ásamt öðrum störfum sínum var ætlað að mæla misvísun áttavita. Haraldur Sigurðsson (1978) nefnir mælingar í Flatey og Súgandisey á Breiðafirði 1806 og á Akureyri 1808. Sjómælingar voru síðan gerðar 1820-21, og nefna Löwenörn (1821,1822) og Haraldur Sigurðsson nokkrar tölur um misvísunina þá, en óljóst er þó hversu nákvæmar þær stefnumælingar voru. Löwenörn lætur þess einnig getið hér að áttaviti sé sérstaklega óstöðugur nálægt segulpólum jarðar; þetta er rétt athugað og stafar m.a. af því að láréttur þáttur megin-segulsviðsins er þar lítill svo að truflan- ir af völdum bergs verða meira áberandi en nálægt miðbaug. Á 4. mynd eru sýndar mælingar Löwenörns og þær aðrar sem nefndar hafa verið frá árunum í kringum 1800. Þær gefa nokkuð dreifð gildi, enda áætlaði Bug- ge (1793) um þetta leyti að einstakar misvísunarmæl- ingar á skipsfjöl"...., endog med de bedste Compasser, ere usikkre og vaklende paa 3 a 5 Grader nær". Auk skráðra segulmælinga frá þessum tíma, má nota það að hraun segulmagnast í stefnu ríkjandi jarðsviðs við kólnun eins og nefnt var hér að ofan. Mæld hef- ur verið segulstefnan í Skaftáreldahrauninu frá 1783 (Haraldur Auðunsson, pers. uppl. 1990). Sýni voru tekin við Tungufljót, Eldvatn og Hverfisfljót af þrem mismunandi leiðöngrum. Að meðaltali hefur misvís- unin í hrauninu gildið 35°, en óvissa (staðalfrávik) í því gildi gæti þó náð allt að 15°. JÖKULL,No. 43, 1993 49

x

Jökull

Subtitle:
Ársrit Jöklarannsóknarfélags Íslands og Jarðfræðafélags Íslands
Publication Type:
Collection:
Gegnir:
ISSN:
0449-0576
Language:
Volumes:
72
Issues:
73
Registered Articles:
Published:
1951-present
Available till:
2023
Locations:
Editor:
Jón Eyþórsson (1952-1967)
Sigurður Þórarinsson (1957-1982)
Guðmundur Pálmason (1965-1976)
Sveinbjörn Björnsson (1967-1976)
Helgi Björnsson (1983-1985)
Leó Kristjánsson (1983-1985)
Ólafur G. Flóvenz (1986-1987)
Tómas Jóhannesson (1988-1989)
Helgi Björnsson (1990-1993)
Leó Kristjánsson (1990-1993)
Áslaug Geirsdóttir (1994-2007)
Tómas Jóhannesson (1998-1998)
Bryndís Brandsdóttir (1998-2007)
Halldór Gíslason (2002-2003)
Snævarr Guðmundsson (2006-2007)
Freysteinn Sigmundsson (2008-2008)
Leifur A. Símonarson (2008-2008)
Olgeir Sigmarsson (2008-2008)
Ívar Örn Benediktsson (2012-2012)
Helgi Björnsson (2012-2012)
Guðrún Larsen (2012-2012)
Olgeir Sigmarsson (2012-2012)
Bryndís Brandsdóttir (2013-2016)
Snævarr Guðmundsson (2013-2016)
Þorsteinn Þorsteinsson (2013-2016)
Keyword:
Description:
Reykjavík Jöklarannsóknafélag Íslands Jarðfræðafélag Íslands 1951-.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar: 1. tölublað (01.12.1993)
https://timarit.is/issue/387311

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

1. tölublað (01.12.1993)

Handlinger: