Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2009, Blaðsíða 27
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 6. tbl. 85. árg. 2009 23
Furusveppur. Þeir finnast víða: við Mógilsá í
Kollafjarðarbotni, í Borgarfirði og fyrir austan fjall
svo nokkrir staðir séu nefndir.
„Hefðin fyrir því hér á landi að fara út í nátt
úruna að tína sveppi er ekki sterk. Sjálf get
ég varla svarað því svo vel sé hvaðan þessi
áhugi minn kemur nema ef vera skyldi að
ég hef alltaf haft mikinn áhuga á útivist og
náttúrunni almennt. Það var fyrir um þrjátíu
Stjórn og starfsfólk Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur á
yfirstandandi ári kappkostað að halda rekstrarkostnaði félagsins
í takt við fjárhagsáætlun ársins 2009, með góðum árangri. Strax
í upphafi ársins var lagt upp með þá stefnu að rekstur félagsins
yrði eins hagkvæmur og kostur væri á, í erfiðu árferði, án þess að
skerða þjónustu við félagsmenn. Þá þegar var gripið til aðgerða
til hagræðingar, svo sem að skerða fjárveitingar vegna ímyndar-
verkefnis, fresta endurhönnun vefsvæðis, draga úr ferðum vegna
erlends samstarfs, loka skrifstofu í sumar og lækka laun formanns.
Ljóst er að þessar aðgerðir hafa haldið rekstri félagsins innan
þeirra marka sem sett voru, auk þess sem kostnaðarvitund
hefur eflst og var þó töluverð fyrir. Það er stefna stjórnar FÍH að
félagsgjöld félagsmanna séu hófleg og nægi til að tryggja rekstur
og viðhalda núverandi þjónustu við félagsmenn. Árlega er metið
í ljósi rekstrarniðurstöðu félagssjóðs hvort tilefni sé til að lækka
félagsgjöld og ákvörðun um félagsgjöld tekin á aðalfundi félagsins.
Áfram verður haldið á sömu braut í rekstri félagsins í þeim tilgangi
að tryggja áfram sem besta beina þjónustu við félagsmenn á
breyttum tímum.
Að lokum má nefna að félagsgjöld félagsmanna eru eingöngu nýtt
í rekstur félagssjóðs, þar með talið skrifstofu félagsins. Launa-
greiðendur greiða gjöld samkvæmt kjarasamningi í orlofs-, starfs-
menntunar-, styrktar-/sjúkra- og vísindasjóði félagsins.
Fjárhagsstaða FÍH
Fr
ét
ta
pu
nk
tu
r
Með garnið. Lita má garn með sveppum og hefur
Ása í hyggju að skrifa um þá list.