Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2009, Blaðsíða 36
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 6. tbl. 85. árg. 200932
Ingibjörg Gunnarsdóttir, ingigun@landspitali.is
14.október síðastliðinn var gefin út hér á
landi bókin „Bragð í baráttunni – Matur
sem vinnur gegn krabbameini“ en hún
nefnist á ensku „Cooking with foods
that fight cancer“. Höfundar bókarinnar
eru þeir dr. Richard Béliveau og dr.
Denis Gingras og var hún upphaflega
gefin út árið 2007 í Kanada. Höfundar
bókarinnar starfa við Háskólann í Quebec
í Kanada og hafa á síðastliðunum árum
og áratugum stundað rannsóknir sem
tengjast krabbameini. Dr. Béliveau hefur
birt meira en 200 ISItímaritsgreinar
(alþjóðlegar ritrýndar vísindagreinar sem
uppfylla ákveðnar gæðakröfur). Það sem
helst einkennir bók þeirra dr. Béliveau
og dr. Gingras er að hún er laus við
allar öfgar er kemur að mataræði. Í
uppskriftum bókarinnar er að finna
fæðu úr öllum helstu fæðuflokkunum.
Lesandanum gefst tækifæri til þess að
fræðast um krabbamein þar sem stuðst
er við einfalt málfar og skýringarmyndir.
Því næst er farið með lesandann í eins
konar ferðalag um heiminn þar sem
kannaðir eru helstu kostir mataræðis á
svæðum með lága krabbameinstíðni. Má
þar nefna Miðjarðarhafssvæðið, Indland,
Kína og Japan. Dregnar eru fram
fæðutegundir sem rannsóknir benda til
að gætu nýst í baráttunni við krabbamein.
Áherslur bókarinnar eru mjög í samræmi
við ráðleggingar sem gefnar voru út
í skýrslunni Food, Nutrition, Physical
Activity and the Prevention of Cancer:
a Global Perspective árið 2007 (World
Cancer Research Fund og American
Institute for Cancer Research) sem
og ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um
fæðuval.
Það sem vakti strax áhuga minn á bókinni
er sú staðreynd að áhersla er lögð á
mataræði sem nýst gæti í baráttunni
gegn krabbameini í stað þess að leggja
áherslu á að forðast fæðutegundir sem
gætu ýtt undir krabbameinsmyndun eða
krabbameinsvöxt. Hún ber því jákvæðan
boðskap í stað þess að einblína á boð
og bönn.
Ávaxta og grænmetisneysla Íslendinga
er innan við helmingur af því sem
ráðleggingar segja til um. Bókin er því
kærkomin viðbót við aðrar matreiðslu
bækur þar sem áhersla er lögð á að auka
hlut grænmetis og ávaxta í mataræði.
Einstaklega fallegar ljósmyndir prýða
bókina. Áhersla er lögð á matreiðslu
fæðutegunda úr jurtaríkinu sem og notkun
ýmissa framandi kryddjurta án þess að
nokkur fæðuflokkur sé undanskilinn.
Við Íslendingar ættum einnig að taka
fagnandi uppskriftum að ýmsum réttum
úr þangi, auðlind sem í dag er vannýtt til
manneldis á Íslandi.
Íslensk þýðing bókarinnar var í höndum
Þórunnar Hjartardóttur. Þórunn fær hrós
fyrir þýðingu bókarinnar sem í heildina
hefur tekist með prýði. Íslenskan titil
bókarinnar hefði ef til vill mátt dempa
þar sem rök fyrir tengslum ákveðinna
fæðutegunda, sem nefndar eru
í bókinni, og krabbameina byggjast í
sumum tilfellum ekki á mjög sterkum
vísindalegum grunni. „Matur sem vinnur
gegn krabbameini“ er þar af leiðandi of
sterkt til orða tekið. Nokkur atriði ber
þó að nefna sem snúa að nákvæmni við
þýðingu bókarinnar.
„Áhersla er lögð á matar æði
sem nýst gæti í baráttunni
gegn krabba meini í stað
þess að leggja áherslu á
að forðast fæðutegundir
sem gætu ýtt undir krabba-
meinsmyndun.“
Á blaðsíðu 41 í bókinni er yfirlitstafla
yfir líkamsþyngdarstuðul (kg/m2) og
flokkun WHO á kjörþyngd, ofþyngd og
offitu kynnt. Þarna hefði mátt huga betur
að hugtakanotkun. Notað er hugtakið
kjörþyngdarstuðull fyrir Body Mass Index
en orðið líkamsþyngdarstuðull er það
hugtak sem oftast er notað í íslenskri
þýðingu. Eins er hugtakið yfirþyngd
notað til þess að lýsa ofþyngd (BMI
2529,9 kg/m2). Þó svo að hér séu
um smáatriði að ræða getur ósamræmi
valdið ruglingi meðal almennings og rétt
að hvetja alla til þess að nota sömu
hugtök. Á blaðsíðu 50 er líka rétt að
benda á ónákvæmni í þýðingu sem leiðir
Bragð í baráttuni: Matur sem vinnur
gegn krabbameini. Höfundar: Richard
Béliveau og Denis Gingras. Útgefandi:
VakaHelgafell, Reykjavík, 2009. ISBN:
9789979221036. Bókin er 272 bls.
BÓKARKYNNING
Út er komin bók sem er í senn lærdómsrit,
heilsuhvati og uppskriftabók. Ingibjörg Gunnarsdóttir
næringarfræðingur veitir okkur hér innsýn í bókina.
BRAGÐ Í BARÁTTUNNI